06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1627 í B-deild Alþingistíðinda. (2584)

131. mál, alþýðutryggingar

Hannes Jónsson:

Ég hygg, að það hafi oft verið venja að bera upp kafla sérstaklega með þeim breyt., sem á þeim hafa orðið. Þegar nú koma fram óskir um, að þessi kafli sé borinn undir atkv., er ekki nema eðlilegt, að hæstv. forseti verði við þeim tilmælum. Og þar sem viðurkennt er, að kaflinn sé höfuðlaus, þá vil ég ekki bera ábyrgð á honum og vil fá tækifæri til þess að greiða atkv. um hann.