11.12.1935
Neðri deild: 96. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1629 í B-deild Alþingistíðinda. (2592)

131. mál, alþýðutryggingar

Gísli Sveinsson [óyfirl.]:

Ég hefi áður talað hér um þetta mál almennt og greint frá ástæðum til þess, að ég væri ekki tilbúinn að ljá þessu máli fylgi mitt, svo lítt rannsakað og þekkt sem það er hér á landi, enda mun svo vera, að aðrir munu ekki fylgja því orðalaust en þeir, sem fyrirfram eru bundnir, en með þeim hætti er einmitt flestum málum tryggður framgangur innan þingflokka stj. á þessu þingi.

Alþýðutryggingar þær, sem hér ræðir um, eru algert nýmæli hér á landi, að því undanteknu, sem tekið er upp úr gildandi lögum um slysatryggingar. Og það er ekki nóg með, að þessar tryggingar séu með öllu óþekktar hér, heldur hafa sumar greinar þeirra reynzt mjög illa annarsstaðar, og á ég þar einkum við atvinnuleysistryggingarnar. Það kemur því næsta undarlega fyrir sjónir, að stjórnarflokkarnir skuli nú ætla að hespa þetta varhugaverða stórmál af á 2—3 dögum, og það því fremur sem kunnugt er, að allmargir framsóknarmenn voru málinu andvígir í öndverðu.

Mál þetta er enn svo órannsakað, að með öllu er óvíst, hvort hinum tryggðu verður nokkur ágóði að tryggingunum. En hitt er víst, að þær leggja bæði einstaklingum og sveitar- og bæjarfélögum þungar byrðar á herðar, svo þungar, að telja má drápsklyfjar á þessum tímum, þegar allir eru að örmagnast undir álögum hins opinbera. Allar líkur eru til þess, að allir tapi, en enginn græði.

Sérstaklega kemur þetta þó þungt niður á bæjar- og sveitarfélögum, sem öllum liggur við greiðsluþroti, nema Reykjavík, sem allir játa. nú, að standi sig vel undir stjórn sjálfstæðismanna.

En það er ekki nóg með það, að hér séu lagðar beinar og þungbærar álögur á hin þrautpíndu sveitarfélög, heldur eru þau með hinum háu útgjöldum einstaklinganna enn á ný svipt tekjustofnum sínum, svo að hér eftir má teljast alveg vonlaust, að einstaklingarnir geti innt af hendi lögskil til þeirra. Hvernig er nú hægt að ætlast til þess, að annað eins og þetta sé samþ. orðalaust. Og hvernig ætla framsóknarmenn að fara að þvo hendur sínar af því að bæta nú inn svo stórfelldum álögum á sveitirnar, bæði hreppsfélög og einstaklinga, til útgjalda, sem aðeins koma bæjunum, og þó ekki öllum, að gagni? Hvernig ætla þessir hv. þm. að forsvara það, eftir að hafa fyrir nokkrum dögum lýst sig andstæða málinu, að hafa samið um, að málið skuli ganga fram gegn því að stj. fái að hanga á horriminni, - forsvara það, að þeir hafa nú selt frumburðarrétt sinn í hendur þessara varga, sem sýna framsóknarmönnum stöðugan yfirgang, er þeir iðulega krauma undan. Það virðist ekkert lát vera á því taki, sem sósíalistar hafa með klóm sínum í framsóknarmönnum, og má mikið vera, ef ekki svíður undan þegar út úr rifnar, svo framsóknarmenn finni þá, að þeir hafa fengið svöðusár. Ég tel það að bæta gráu ofan á svart að lögleiða þetta í einu kasti, þó stjórnarflokkarnir hafi um það gert samninga á bak við tjöldin, með nokkurri sviksemi þó. Það mætti ekki minna vera en þeir, sem undan þessum lögum á að blæða, fengju að segja álit sitt um þau, áður en þessir lýðskrumarar, sem skreyta sig svo mjög með lýðræðis- og frelsishjali sínu, gera út um málið. Það mætti ekki minna vera en þeir spyrðu þá að því, hve langt þeir mættu ganga í þessu máli, sem ekki er þeirra mál, hve dýrt þeir mættu selja sig. Ég hugsa, að ef umbjóðendur þessara hv. þm. fengju að segja sitt álit, þá vildu þeir ekki verzla; þeir mundu vilja kalla sína umboðsmenn heldur heim, sem það gerðu, áður en flokkarnir klofna og rofna í þessum samningamálum og það langt er gengið, að e. t. v. er verr farið en heima setið.

Ég tel það engan undirbúning, þó rubbað hafi verið upp grg. í þessum málum, sem alveg er óvíst, að nokkuð eigi hér við. Ég tel það ekki forsvaranlegan undirbúning og gagnstætt öllum lýðræðisreglum að ætla að demba þessum lögum á þjóðina óaðspurt. Því vildi ég leggja mitt lið til hins, að lengra yrði leitað eftir umsögnum, þó ekki væri nema til þess að leysa hv. framsóknarmenn frá því oki, sem á þá hefir verið lagt í þessu máli. Ég vil, að fengið sé álít minna kjósenda og annara og að þeir fái hér nokkru um að ráða, og sömuleiðis þær stofnanir, bæði til sjávar og sveita, sem byrðarnar eiga að bera, en það eru bæjar- og sveitarfélögin, sem svo stórlega á að blæða þegar til kemur. Þess vegna vil ég ekki og fleiri, - kannske ýmsir svona undir niðri, þó ekki láti uppskátt -, að gengið sé til fullnustu frá þessum málum án þess kjósendurnir eigi kost á að segja álit sitt um þau. Þegar þess er gætt, að stórmáli þessu er ekki dembt inn í þingið fyrr en svona seint, hvað þá að aðrir fái um þau nokkra vitneskju í blöðum eða umr., þá er það ljóst, að almenningur í landinu veit ekkert, hvað er að gerast. Þó sósíalistar bendi á dæmi um samþykktir nokkurra manna í ýmsum kaupstöðum, þá er það vitað, að þessir menn hafa ekki einu sinni séð málið. Það er venjuleg aðferð stjórnarflokkanna og alkunn, að senda fyrirskipanir út um landið um samþykktir, sem eigi að gera, og síðan fá þeir andsvör, sem þeir kalla þjóðarvilja, þó enginn viti neitt, hvað það er, sem þeim hefir verið sagt að samþ. Ég vil því út frá þessum forsendum leyfa mér að óska þess, að frv. þetta verði afgr. frá þessu þingi með svo hljóðandi rökst. dagskrá:

„Þar sem frv. það til laga um alþýðutryggingar, sem hér liggur fyrir, er fyrst fram komið úr milliþinganefnd á síðara hluta þessa þings, svo að eigi er líklegt, að allir þingmenn hafi, getað annað því að kynna sér til fullnustu svo margbrotinn-lagabálk;

þar sem því enn síður landsfólkið hefir haft tækifæri til þess að gera sér grein fyrir þessum ákvæðum, sem m. a. ætlast til, að allþungar byrðar verði lagðar á einstaklinga og hið opinbera (ríki og bæjar- og sveitarfélög), og þar að auki innihalda nýja og hér ókannaða tryggingagrein - atvinnuleysistryggingar -, sem mjög eru skiptar skoðanir um, - og loks,

þar sem það verður af nefndum ástæðum að teljast nauðsynlegt, enda samkvæmt réttum lýðræðisreglum, að gefa almenningi, eða þeim stofnunum hans, er hér koma mest til greina, kost á að taka þetta mál þannig undirbúið til athugunar og láta í ljós vilja sinn á því áður en það verður lögleitt, þá beinir deildin þeirri áskorun til ríkisstjórnarinnar, að hún leggi málið fyrir bæjar- og sveitarstjórnir landsins til umsagnar, og tekur fyrir næsta mál á dagskrá “

Dagskrá þessa leyfi ég mér svo að afhenda hæstv. forseta.