18.02.1935
Efri deild: 5. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (26)
Kosning fastanefnda
Jón Baldvinsson:
Mér sýnist nokkur ástæða vera til þess að samþ. till. hv. þm. S.-Þ. Allshn. mun fá til meðferðar stór og umfangsmikil mál, og mun því ekki veri rétt að amast við því að stækka n. Þessi n. mun sennilega fá flest mál til meðferðar af öllum n. í þinginu, og jafnframt stærstu málin, kannske að hv. fjvn. undanskilinni.