17.12.1935
Efri deild: 97. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1670 í B-deild Alþingistíðinda. (2628)

131. mál, alþýðutryggingar

Þorsteinn Briem [óyfirl.]:

Ég vil gera grein fyrir því, hvers vegna ég skrifaði undir nál. með fyrirvara, þótt ég hafi að vísu látið þess getið, að ég væri andvígur V. kafla frv., um atvinnuleysistryggingar. Afstaða mín til þeirra trygginga byggist á þeirri skoðun minni, að ég tel það beztu vörn gegn atvinnuleysinu, að styðja sjálfa atvinnuvegina. Ef þeir bera sig, er ekki um neitt atvinnuleysi að ræða, og með því að stuðla að því, að svo megi verða, er stemmd á að ósi hvað atvinnuleysi snertir. En þeirrar stefnu, að styðja sjálfa framleiðsluna, hefir einmitt gætt allt of lítið í athöfnum þings og stjórnar undanfarið. Hér er því, í þessu frv., farið öfugt að til þess að útrýma atvinnuleysinu, og kemur hér hið sama fram og gætt hefir um of í annari styrktarstarfsemi ríkisins, og á ég þá sérstaklega við berklavarnirnar. Þar hefir verið lögð aðaláherzlan á það, að gera vel við þá menn, sem berklaveikir eru orðnir, en miklu síður á hitt, að fyrirbyggja það, að menn verði veikir, og stemma þannig á að ósi. Þrátt fyrir það, að lofsvert sé að hlynna sem bezt að sjúklingunum, ætla ég, að flestum, bæði læknum og öðrum, sé nú orðið það ljóst, að heppilegra hefði verið að leggja aðaláherzluna á það, að byrgja brunninn, áður en barnið hefir dottið í hann. Sömu aðferð þarf að hafa í þessu máli. Atvinnuleysið er þegar orðið opið sár og sjúkdómur, sem aldrei læknast nema séð verði um það, að framleiðslan geti haldið uppi atvinnu. Atvinnuleysisstyrkirnir geta að vísu bætt úr brýnustu nauðsynjum þeirra, sem komnir eru út á hinn kalda klaka, en varnir gegn atvinnuleysinu felast vitanlega engar í þeim. Þvert á móti tákna þeir auknar álögur á hina þrautpíndu atvinnuvegi.

Af þessum ástæðum hefi ég ekki getað fylgt meiri hl. n. um afgreiðslu v. kaflans. Og auk þess verður að líta á fjárhagshlið málsins, sem að ríkissjóði snýr. Þó að hér sé fremur hógværlega af stað farið, má samt búast við því, að hér sé um byrjun að ræða, sem framvegis leiði af sér mjög aukin útgjöld fyrir ríkissjóð, alveg eins og rann hefir orðið á um hinn svokallaða berklavarnastyrk, sem bæði læknar og aðrir eru sammála um, að ekki hafi komið að tilætluðum notum.

Auk þess hefði ég ástæðu til að gera aths. við ýmsar einstakar greinar frv. Þannig þykja mér þau ákvæði 65. gr., að lögbjóða, að ekki megi stofna nema einn atvinnuleysissjóð í hverju kauptúni, mjög varhugaverð. Það hefir sýnt sig um löggjöfina um byggingarsjóði, að háværar óskir hafa komið fram um það, að mega stofna sérsjóði, og virðist engin ástæða til þess að meina mönnum slíkt.

Um 67. gr. er það að segja, að mér finnst, að ákvæðin um eign þá, er menn mega eiga án þess að missa réttindi til atvinnuleysisstyrks, vera í litlu samræmi við skattalögin. Þannig getur einhleypur maður fengið atvinnuleysisstyrk, þótt hann eigi 5000 kr. skuldlausa eign. Maður, sem á slíka eign, ætti þó að geta bjargazt nokkurn tíma án styrks, og sama er að segja um hjón, sem eiga 10 þús. kr. í góðri og gildri eign. Það skýtur nokkuð skökku við skattgreiðslu af eignum, að þeir, sem þó eru þessum efnum búnir. skuli fá opinberan styrk.

Það hefir verið bent á áður, að ósamræmi sé á milli þess ákvæðis í 69. gr., að atvinnuleysisstyrkur skuli ekki nema meiru en 3/5 af venjulegu kaupi, og hins, að menn geti neitað vinnu, ef þeir fái ekki kaup í samræmi við kauptaxta verkalýðsfélags síns. Nú er þess að gæta, að kauptaxti er allmisjafn hér á landi, frá 80 aurum á klst. til kr. 1.36 netto og 1.51 brútto. Maður úr Reykjavík hefði því rétt til að neita atvinnu í sjóþorpi úti á landi, en heimta atvinnuleysisstyrk. Að vísu var því þó bætt inn í frv. í Nd., að einhleypingar, sem eiga kost á því að vinna sér fyrir lífsframfæri í sveit, skuli ekki fá atvinnuleysisstyrk. En kvæntur maður í Reykjavík getur neitað vinnu úti á landi, ef kaupið er undir taxta verklýðsfélaganna í Reykjavík. Ég vona, að hv. frsm. upplýsi, ef ég skil þetta ekki rétt.

Að vísu er í frv. ákveðin heildarupphæð sú úr ríkissjóði, sem verja má til trygginga ófaglærðum daglaunamönnum, 75 þús. kr. En hinsvegar eru engin hámarksákvæði um það, hvað greiða má úr ríkissjóði til annara atvinnuleysissjóða fyrir faglærða menn. Hinsvegar er hér í þessum kafla ákvæði, sem ég tel svo þarft, að ástæða hefði verið að hafa slík ákvæði algerlega almenn, því það gæti einnig átt við hina kafla þessa frv. Þetta ákvæði er um það, ef einhver gerist sekur um svik gagnvart sjóðunum. Það hefði þurft að hafa almenn ákvæði í frv. um slíkt, því það mun vera reynslan erlendis, að slíkt eigi sér oft stað, og því hefði þurft að hafa hér einhver viðurlög, ef gerðar eru tilraunir til þess að koma fram svikum, ekki sízt ef þau eru framkvæmd og mikil brögð eru að þeim. - En svo er hvað þennan kafla snertir gert ráð fyrir því, að mér skilst, að öll stjórn á úthlutun atvinnuleysisstyrks sé í höndum þeirra félaga, sem þar um ræðir og í flestum tilfellum a. m. k. eru pólitísk. Ég verð að telja þetta nokkuð athugavert, jafnvel frá sjónarmiði þeirra félaga, sem hér eiga hlut að máli, því ætla má, að það skapi nokkra tortryggni, að félög, sem a. m. k. í aðra röndina eru pólitísk, hafi úthlutunina með höndum. Það mætti því teljast æskilegt, einnig frí þeirra sjónarmiði, að þar komi aðrir aðilar til.

Um hina kaflana vil ég taka það fram, að ég er alveg á því, að hugsunin, sem á bak við þá liggur, sé réttmæt. Ég álít, að það sé rétt að auka slysatryggingar og setja löggjöf um sjúkratryggingar, og þá ekki síður um ellilaun og örorkubætur. Hitt er annað mál, að á þeim köflum eru ýms vansmíði, sem ég þykist vita, að jafnvel meiri hl. í n. hefði verið fáanlegur til samkomulags um, ef ekki hefði staðið svo á, að jafnlangt er liðið á þingtímann sem raun er á. Það hefir verið gerð grein fyrir því um alla kaflana nema annan kaflann, hversu áberandi missmíði eru á þeim, og skal ég ekki fara frekar út í það mál. En jafnvel um þann kaflann, sem hv. minni hl. ræddi nú ekki um, kaflann um slysatryggingarnar, sem að vísu er ekki mikið breyttur frá núgildandi l., verð ég að segja það, að þar eru ýms ákvæði, sem ég ætla, að hefði farið betur á að lagfæra. Ég get svona af handahófi nefnt nokkur dæmi, sem sum eru að vísu ekki stórvægileg, en munu þó í framkvæmdinni geta sýnt nokkur göt á l. Í 8. gr. 2. b. er talað um það, að skylt sé að tryggja menn, sem vinna við bjargsig, en það er ekkert talað um, að mönnum, sem vinna að annari bjargfuglaveiði, sé skylt að tryggja sig. Nú hugsa ég, þó að ég sé ekki kunnugur þessum atvinnuvegi, að það sé engu minni hætta að klifra í björg heldur en síga; ég hugsa jafnvel, að það sé hættulegra heldur en bjargsigið sjálft. En nú eru aftur á móti tekin upp ákvæði um skyldutryggingu manna, sem virðist vera miklu minni ástæða til að tryggja, svo sem eins og um tryggingu þeirra manna, sem fara til og frá vinnu. ég veit ekki, hvort það er nokkuð meiri lífshætta eða slysahætta fyrir þá menn, sem fara frá og til þessarar vinnu, sem hér um getur, heldur en fyrir þá, sem fara frá og til vinnu sinnar almennt, því ég ætla, að slysahætta, t. d. hér á götunum í Reykjavík, sé ekki meiri fyrir eina stétt heldur en aðra. Mér virðist því hér vera um nokkurt handahófsverk að ræða. Sama gildir um innanhússmálningu, að menn, sem hana stunda, skuli vera slysatryggðir. Ég ætla þó, að það sé nokkuð minni hætta að mála stofu heldur en t. d. klifra í björg. - En ég hefi aftur á móti ekki getað komið auga á, að þeir menn skuli skyldutryggðir, sem vinna í þágu skipulagsbundinnar björgunarstarfsemi, og mætti þó ætla, að það starf væri a. m. k. eins hættulegt og algeng stofumálning og eins og algeng ganga hér um göturnar. Einnig virðist mér, að í slíku frv. sem þessu hefði ekki verið ástæðulaust að setja einhver ákvæði um tryggingu þeirra manna, sem bjóða sig fram til björgunar, jafnvel þó að það sé ekki í þágu skipulagsbundinnar björgunarstarfsemi. Mér virðist, að í þeim tilfellum, þegar menn af fúsum og frjálsum vilja leggja líf sitt í hættu til þess að bjarga öðrum mannslífum, þá eigi það opinbera vissulega að leggja þar fram til tryggingarbóta fyrir slíka menn. ég hefði talið miklu meiri ástæðu til þess að hafa ákvæði um þetta heldur en um tryggingarskyldu þeirra manna, sem fara frá og til vinnu sinnar eða mála stofu innanhúss. En það má kannske vera, að mér hafi sezt yfir þetta.

Það eru ýms fleiri atriði, sem hefði mátt taka til athugunar í sambandi eið þennan kafla, sem ekki hefir verið minnzt á sérstaklega, en þetta sýnir, að það hefir ekki verið lögð nægileg vinna í undirbúning frv. Þó náttúrlega segja megi, að tækifæri sé til þess síðar að bæta hér um, þá verður það að teljast allmikið mein, að ekki hefir verið svo frá gengið í fyrstu sem gera hefði mátt kröfu til um slíkt frv. sem þetta, þar sem það er undirbúið af sérstakri n. og hefir verið mjög lengi í undirbúningi. - hafði hugsað mér að bera fram ýmsar brtt. við þá kafla frv., sem ég er fylgjandi, en eftir þeirri vitneskju, sem maður hefir fengið um það, hvernig haga eigi afgreiðslu frv., og nú síðast eftir þeirri yfirlýsingu, sem fram hefir komið frá frsm. frv., þá mun ekki vera um það að ræða, að það beri nokkurn árangur, og hefi ég því látið það vera, en aðeins gert grein fyrir mínum fyrirvara.