18.12.1935
Efri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (2661)

40. mál, iðnaðarnám

Frsm. (Páll Hermannsson):

Þetta frv. hefir þegar fengið afgreiðslu í Nd., og að ég ætla með sæmilegu samkomulagi. Í frv. eins og það er lagt fyrir þingið má sjá allglögga grg. fyrir málinu. Ég hirði því ekki um að lýsa því almennt, það yrðu aðeins endurtekningar. Iðnn. þessarar d. hefir athugað frv. og hefir rætt við ýmsa, sem málið snertir, t. d. allmarga meistara og iðnrekendur í ýmsum iðngreinum hér í bænum. Þeir hafa ýmislegt út á lagafrv. að setja, en n. hefir ekki sem heild getað fallizt á, að þær aðfinnslur væru á rökum byggðar.

Eins og sést á nál., vilja 2 nm. samþ. frv. óbreytt. Einn í n., hv. 5. landsk., vill að vísu samþ. frv., en með breyt. Þær breyt. eru á þskj. 847, og hirði ég ekki um að ræða þær fyrr en hv. þm. hefir mælt fyrir þeim, en ég get getið þess, að það sem þær ná, þá eru þær í samræmi við þær aðfinnslur, sem n. hafa borizt frá meisturunum. Ég geri ráð fyrir, að hv. 5. landsk. mæli fyrir brtt. sínum á þskj. 847, og mun ég taka þar til yfirvegunar að því loknu.