05.11.1935
Neðri deild: 65. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1706 í B-deild Alþingistíðinda. (2677)

142. mál, lýðskóli með skylduvinnu nemenda

Jörundur Brynjólfsson [óyfirl.]:

Það var réttilega fram tekið hjá hv. frsm. n., að þetta mál er hér ekki nýr gestur í þessari hv. d. Það er búið að flytja það á mörgum þingum og ekki fengizt afgr. Það er að vísu nokkuð breytt frá því, að það var upphaflega borið fram. Það er búið að breyta allverulega til um efni þess, en eigi að síður heldur það sínum höfuðkjarna, sem það upphaflega hafði. Það er eins og hv. flm. sé líka ljóst, að það sé eitthvert vansmíði á þessu máli. Þeir skírskota að vísu í grg. fyrir frv. til þeirrar grg., sem áður fylgdi frv., og þá í öðrum búningi en það er nú í. En svo nægir þeim ekki slík röksemdafærsla til stuðnings málinu, svo að þeir taka fram, að einstakir flm. hafi óbundin atkv. um nokkur atriði frv. Ekki er þess getið, hver þessi „nokkur atriði“ eru. Nefnd fær þetta mál til meðferðar, sem á að vera einhver virðulegasta n. þingsins, því að fyrst og fremst er þó það um málefni alþjóðar að segja, að menningarmál hennar hafa einna mest að segja um þroska og þrif þjóðarinnar. Það er því einhver virðulegasta n. þingsins, sem hefir fengið þetta mál til meðferðar. En þar sem svo er, skyldi maður ætla, að n. hefði tekið sér nægan tíma til að athuga það vendilega og íhuga. Álit þessarar virðulegu n. liggur nú fyrir, og mun ég lesa það upp, með leyfi hæstv. forseta. Það er stutt, og tekur ekki langan tíma að lesa það (ég sleppi formálanum):

N. hefir athugað frv. þetta, og leggur hún til, að það verði samþ. Einstakir nm. áskilja sér þó, á sama hátt og flm. frv., óbundna afstöðu um nokkur atriði frv.“

Svo er nú nál. ekki lengra. Bæði flm. frv. og n. hugsa sér auðsjáanlega til nokkurra breytinga á því. Aðeins einn þessara manna hefir þó sýnt nokkurn lit á því, að hann vilji í raun og veru hafa frv. öðruvísi en það er. Það er hv. 2. þm. Án., og er mér ekki grunlaust um, að ég hafi flýtt nokkuð á honum með því að benda honum á, að þetta væri ósæmileg afgreiðsla á þingmáli, að eftir að n. hefir fengið málið til meðferðar, þá áskilji bæði nm. og flm. sér óbundnar hendur um nokkur atriði þess. Það getur verið, að þeir hafi borið saman ráð sín um það, hver þessi atriði skuli vera. En það er þó ónærgætni við okkur hina, sem ekki fluttum málið inn á þing og ekki höfum getað kynnt okkur álit nm., að bera þá ekki þær brtt. fram einmitt við þessa umr. En mér er annars ekki grunlaust um, að þeir vildu gjarnan hafa óbundnar hendur um öll atriði frv. Það hefir alltaf verið vilji flm. um þetta frv. Ég ætla ekki að fara að kasta steini á þann mann, sem hefir undirbúið þetta frv. og ætlað því að verða til góðs. Hann er nú ekki viðstaddur og getur ekki varið sig. Það er þeirra þm., sem tekið hafa málið að sér að bera af sér blakið.

Mín skoðun er sú, að þetta mál eigi ekki erindi til lögfestingar. Þetta skólafyrirkomulag myndi ekki bæta fræðsluástandið í landinu. Það má að vísu segja, að ekki sé mikið í hættu, þó að þetta nái hér samþ. En ég er viss um, að það kemur aldrei til framkvæmda. Þó að stjórnarvöld einhverrar sýslu vildu koma þessu fyrirkomulagi á, er ég viss um, að kjósendur myndu hvarvetna fella það. Sýnir allur flutningur þessa máls á þingum, ekki aðeins af hálfu þm., heldur og n. að menn hafa ekki trú á, að það komist fram. Það er af tillátssemi við mann þann, sem lagt hefir vinnu í málið og trúir á það, að þetta er flutt hér. En það getur ekki verið réttlætanlegt, að menn séu að flytja mál, sem þeir hafa enga trú á. Misréttið eitt, sem hér á að skapa, hlýtur að gera það að verkum, að menn geta ekki trúað á málið, því að hér er ekki um það eitt að ræða, að verið sé að skylda fjölda ungra manna til opinberrar vinnu, enda þótt þeir eigi að fá nokkra skólavist fyrir, heldur og hitt, að á engan hátt er leitazt við að fullnægja menntunarþörf ungra kvenna. Í frv. segir, að ekki skuli byggja þessa skóla fyrir stúlkur fyrr en reynsla sé fengin af piltaskólum.

Ég ætla ekki að rekja frekar, hversu ómögulegt þetta mál yrði í framkvæmd. En ég vona, að hv. þm. hafi þann trúleik til að bera, að þeir fari ekki að lögfesta hluti, sem þeir hafa enga trú á og leiða hljóta til misréttis gagnvart þegnum þjóðfélagsins.

Ég neyddist til að taka hér til máls, af því að mér sýndist sem Alþingi ætlaði að fara að samþ. þetta mál og af því að mér ofbauð óeinlægni menntmn. og flm., en ég vil ógjarnan verða bendlaður við slíka málsmeðferð á Alþingi.