18.12.1935
Efri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1738 í B-deild Alþingistíðinda. (2708)

40. mál, iðnaðarnám

Einar Árnason:

Það er nú orðinn alllangur ómagahálsinn á þessu frv. frá því það kom fyrst fram hér á Alþingi. Satt að segja hefi ég ekki nennt að hyggja að því, hve langt er síðan, en ég hygg, að það sé ekki ofmælt, þó sagt sé, að það sé búið að liggja fyrir einum 10 þingum. Það er nú ekki orðið að lögum enn, en sennilega á nú yfir að ljúka með það nú, svo þjóðin geti nú fengið þetta ágæta mál til afnota. Ég ætla ekki að lengja mikið umr. um það, enda mun það hafa litla þýðingu, en ég vildi ekki láta það fara svo í gegnum hv. deild, að ég ekki gerði grein fyrir afstöðu minni til þess. Ég get sagt það, að öll þau ár, sem þetta frv. hefir legið fyrir þinginu, hefi ég átt tal um málið við mjög marga hv. þm., og ég verð að segja það, að ég hefi ekki fyrirhitt einn einasta, sem hefir trúað því, að það yrði að nokkru gagni eða að það kæmi nokkurn tíma til framkvæmda, þótt að lögum yrði. Þegar þetta mál hefir verið rætt og fram hafa verið færð rök á móti því, hafa svörin verið þau, að ekki væri mikið að óttast, þó frv. yrði samþ., af því það þyrfti svo mikinn meiri hl. atkv. heima í héraði til þess að þetta skipulag næði að koma til framkvæmda. Það er eins og þó leynist einhver ótti á bak við hjá formælendum frv. við það, að eitthvert sýslu- eða bæjarfélag hlypi nú í það að samþ. þetta skipulag. Ég segi fyrir mig, að ég er alveg sannfærður um, að ekkert sýslu- eða bæjarfélag lítur við því. En þegar menn hafa þá vissu, eins og jafnvel flm. frv. hafa, hvað þá aðrir, þá er það alveg dæmalaus hégómi að samþ. það.

Hv. frsm. meiri hl. menntmn. var að tala um þá rækt, sem unglingarnir fengju til sinnar sveitar fyrir það, að þeir fengju að vinna fyrir ekki neitt. Þeir mundu við það festast þar. Ég held þetta sé hreinasti misskilningur. Allir vita, að mikill skortur er á vinnukrafti í sveitunum, svo að ekki er hægt að framkvæma nauðsynlegustu störf á heimilunum. Það er svo með mörg hjón, sem búa í sveit, að einasta hjálp þeirra við búskapinn eru börn þeirra á unglingsaldrinum. Þessa einu stöð á nú að taka af foreldrunum, þegar unglingarnir eiga að fara að moka skít fyrir ekki neitt, og fara síðan í skóla innan sýslunnar. Ef þessa unglinga skyldi nú langa til að fara í skóla í öðrum landsfjórðungum, þá á að fara svo með þá, að fyrst eiga þeir að fá að vinna fyrir ekki neitt í heimahéraðinu og svo að fara á skóla í öðrum héruðum án nokkurrar hjálpar. Ég hygg, að þetta stuðli ekkert að því, að unglingarnir festi rætur í sínu héraði. Nú er þetta frv. ekki svo yfirgripslítið, þar sem það nær til kaupstaðanna líka. Hv. þm. S.-Þ. hefir sýnt fram á, hvílík fásinna það er að hugsa sér, að það geti nokkru sinni orðið, og skal ég ekki fjölyrða um það.

Nú, ungu stúlkurnar eiga líka að fá að komast í þessa paradís, en þó ekki fyrr en drengirnir eru búnir að reyna sig. Það er eins og einhver ótti sé þarna á bak við. Hv. þm. S.-Þ. spurði að því, hvað ungu stúlkurnar ættu að vinna, en það var lítið um svör. Ég býst ekki við, að nokkrum detti í hug, að þær verði látnar vinna að vegagerð. Hv. frsm. meiri hl. sagði, að hægt væri að láta þær stunda innivinnu, ganga milli bæja, spinna og prjóna og kannske hannyrða fyrir sýsluna, kannske sjóða einn allsherjar graut fyrir alla sýslubúa.

Mér finnst eins og hv. þm. S.-Þ., að með frv. þessu sé farið út á hálfgerða fjárglæfrabraut viðvíkjandi byggingu skólanna. Frsm. meiri hl. taldi, að í frv. væru sett svo greinileg takmörk fyrir framlögum ríkissjóðs, þar sem ekki mætti byggja slíkan skóla nema þingið samþ. til þess sérstaka fjárveitingu; þess vegna væri ekkert í hættu. Það á að varpa öllum áhyggjum upp á þingið; það er vonað, að það grípi í taumana og sjái um, að ekki verði flanað út í þá vitleysu að framkvæma ákvæði laganna. En ég verð að spyrja, ef Alþingi gengur inn á að samþ. frv., getur þá ekki eins verið hætta á því, að það samþ., að farið verði eftir lögunum? Sem sagt, það er engin trygging í frv., af því það er ekki trygging fyrir því, að Alþingi felli frv.

Þá var hv. frsm. meiri hl. að tala um það, að sýslan ætti að endurgreiða tillag ríkissjóðs á 40 árum, ef skólinn yrði ekki starfræktur. Ég segi: „Mikil er trú þín, kona“. Við, sem búin erum að starfa hér í mörg ár, vitum það vel, að ekki mundi endurgreiðast einn einasti eyrir af tillagi ríkissjóðs í slíkum tilfellum. Það er því engin trygging í 4. gr. frv. fyrir því, að ríkissjóður fái nokkuð af sínu tillagi endurgreitt, þó illa færi. Ég verð að segja það, að mér þætti leiðinlegt, ef frv. þetta verður samþ., þar sem ég veit, að ekki einn einasti þm. innan þessara veggja hefir trú á því, að það komi nokkru sinni til framkvæmda, þó það verði að lögum. Það sýna bezt þær ástæður, sem færðar eru fram með frv., að það sé ekkert að óttast.

Ég skal að lokum taka það fram, að ég mun greiða atkv. með brtt. hv þm. S.-Þ., en svo að lokum gegn sjálfu frv. Ég ætla ekki að sýna því neina hræsni, hefi hingað til verið á móti því, og læt hug minn í ljós skýrt og skorinort. Annars ætla ég ekki að fara að deila um þetta mál, en ég vildi, að það sæist í þingtíðindunum, að ekki líta allir hér í hv. d. með jafnmiklum hátíðleik til þessa máls og hv. frsm. virðist gera.