18.12.1935
Efri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1739 í B-deild Alþingistíðinda. (2709)
40. mál, iðnaðarnám
Magnús Jónsson:
Ég held, að þetta frv. eða þessu svipað hafi fyrst komið fram á þinginu 1929. Menntmn., sem fékk frv. til athugunar, lagði til, að því væri vísað til stj. til nánari athugunar. Ég held, að ég hafi verið einn um að gera ágreining, og gerði þá brtt., að þessi heimild yrði eingöngu bundin við Rangárvallasýslu. Mér finnst ekki nema rétt, ef áhugi væri í einni sýslu fyrir slíku, að Alþingi gengi frá heimildarlögum í þessa átt. En það er hinsvegar engin ástæða til að gefa þá heimild fyrir allt landið. Síðan þetta mál kom fram, hafa menn jafnan skipzt í 3 hópa um það. Einn hópurinn hefir viljað samþ. það, annar hópurinn hefir viljað takmarka heimildina við eina sýslu, og loks þriðji hópurinn, sem hefir vilja fella frv. Ég get sagt það fyrir mitt leyti, að ég er enn á sömu skoðun og þegar málið kom fyrst fram, að ég tel rétt að takmarka heimildina við eina sýslu, sem sýnt hefir áhuga á þessum málum, en láta það ekki ná lengra. Ég verð að segja, að mér finnst það kannske lítil vinnuvísindi í n., að hún skuli vera með þetta mál þing eftir þing, í stað þess að samþ. þessa heimild einu sinni, þó að hún yrði gagnlaus. Mín skoðun á þessari hugmynd er sú, að þetta gæti verið prýðilegt fyrirkomulag, ef nógur áhugi stæði á bak við, en það er sem sagt skilyrðið. Ég er sannfærður um, að ef hreyfingin gripi um sig að koma þannig upp skólum, sem menn borguðu skólagjaldið með vinnu, þá mætti þetta fara prýðilega fram. Það er ekkert farið fram á annað en að þar, sem slíkur áhugi er fyrir hendi, sé lögheimilað, að það megi setja slíka skóla á stofn. Ég mun því verða meðmæltur þeirri till., sem liggur fyrir frá hv. þm. S.-Þ., um að Rangárvallasýsla fái þessa heimild til að byrja með. Ég skal ekki segja neitt um það, en ég er hræddur um, að þetta komist aldrei í framkvæmd, en það eru þá vissulega fleiri slíkar heimildir, sem aldrei komast í framkvæmd. Ég veit, að á þessu þingi og öllum öðrum er keyrður áfram mikill fjöldi mála, sem eru miklu meiri hégómi en þetta mál, t. d. skotvopnafrv. Og vera svo að tala um þetta mál sem hégómamál, það nær engri átt. Ég skal annars ekki orðlengja um þetta frekar; það getur vel verið, að ég hafi ekki farið nákvæmlega yfir till. hv. þm. S.-Þ., en við skjótan yfirlestur virðist mér hún stefna í svipaða átt eins og fram hefir komið áður, þar sem þetta er fært í það horf, að veita Rangárvallasýslu einni þessa heimild. En sérstaklega vildi ég leggja áherzlu á, að ef þessar breyt. verða felldar og frv. sjálft samþ., þá sé það hreinn hégómi að taka bæina með. Þetta er ennþá meiri hégómi fyrir bæina, af því að það er víst, að þeir notfæra sér þetta aldrei.