18.12.1935
Efri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1740 í B-deild Alþingistíðinda. (2710)
40. mál, iðnaðarnám
Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):
Síðan ég talaði hér áðan hafa ýmsir tekið til máls, þar á meðal frsm. meiri hl. Frsm. gerir ráð fyrir því, að þegar farið verði að byggja yfir stúlkurnar og þegar þær eigi að fara að vinna, þá verði þar ekki settar í vegavinnu, frekar en hingað til, og mundi því ekki vera um annað að tala heldur en innanhússtörf. Er þá komið að því, að sýslun. eða héraðsstj. yrði að lána þessar stúlkur á þau heimili, sem vantaði stúlkur á, og ég efast ekki um, að þau yrðu mörg, en ég vil segja hv. frsm. sem dæmi um, hvað svona ráðagerðir eru á móti skapi kvennfólksins: Það var samkomuhús nálægt skólahúsi, og einn sinni þegar átti að vera þar ball, þá voru þar margir ungir menn, en nokkuð fáar dömur til að dansa við. Þá kemur einn þessara ungu manna heim í skólahúsið og segir við forstöðukonuna, hvort hún vilji ekki lána sér fáeinar dömur. En aumingja maðurinn fékk ekki eina einustu dömu, en var rekinn öfugur til baka. Ég býst þó við, að kvenfólkið sé fúsara til að fara á svona samkomur heldur en að fara að vinna. Það er fullvíst, að svo illa sem það gengi að fá pilta til að vinna í þessu efni, þá yrði ómögulegt að framkvæma þetta, að lána stúlkur á heimili, þar sem mest þörfin er, og stundum þar, sem menn vilja sízt vera. Þá talaði hv. frsm. um það, að það yrði að gera ráð fyrir, að ef þessi heimild yrði ekki notuð, þá fengist húsið endurgreitt, ef það væri hætt við að nota það í þessu skyni. Ég heyrði það á ræðu hv. þm. Rang., að hann skyldi það, að þessi endurheimta mundi verða hæpin. Ég benti á það áðan, og um það er hv. 1. þm. Reykv. mér í sjálfu sér sammála, að ef einhver bær notaði þessa heimild, þá væri það bara til þess að koma upp skólahúsi, og láta svo málið stranda, en semja á eftir við ríkissjóð. Eina afleiðingin af þessari heimild yrði sú, að það yrði notað til þess að leika á Alþingi af kaupstöðunum. Af þessum ástæðum finnst mér, að hv. meiri hl. gæti gert sig vel ánægðan með, eins og við hv. 1. þm. Reykv. viljum hafa það, að það hérað, sem hefir sýnt áhuga fyrir þessu máli, fái þessa heimild, en hitt er í rauninni of mikið, þar sem miklir erfiðleikar eru að framkvæmd þess og mætti misbrúka það.
Hv. 2. m. Rang. vek nokkuð að áhuga Rangæinga fyrir þessu máli, en sagði líka, að það væri áhugi fyrir því annarsstaðar. Ég held, að hv. þm. geti ekki komið með önnur rök fyrir áhuga annarsstaðar en það fylgi, sem frv. hefir í þinginu og þessa 7—8 flm. Fyrir utan þessa flm. held ég að frv. hafi mjög lítið fylgi. Mér þætti mjög gaman, ef hv. þm. vildi benda á dæmi um fylgi við frv. annarsstaðar. Hv. þm. sagði, að þetta gæti verið uppeldismeðal fyrir unglinga. Það er nú svo, að fyrir piltana yrði þetta bara eins og hver önnur vegavinna, en fyrir stúlkurnar yrði þó a. m. k. að tiltaka, hvað þær ættu að vinna. Hv. þm. sagði, að aðsókn að öllum skólum væri mjög óviss. Þetta er ekki alveg rétt, því að þegar hvert hérað hefir lagt fram mikið fé og mikla fyrirhöfn við að koma upp skólunum, eins og t. d. Laugaskóla og Reykholtsskóla, og þar, sem unga fólkið hefir sýnt áhuga fyrir málefninu, þar verður aðsóknin tryggari. Ég veit til, að áhuginn hefir verið svo mikill við byggingu eins héraðsskólans, að stúlkurnar unnu að því að grafa fyrir vatnsleiðslunni, og sýnir það, að konur geta unnið moldarvinnu annarsstaðar. En ég hygg, að þeim verði ljúfara að gera það eftir eigin vilja heldur en eftir valdboði. (MJ: Alveg eins og með dansinn). Já, ef á að lána þær til þess að dansa. Það efast enginn um það, að ef hætt verður við að reka þessa skóla, þegar búið er að byggja yfir þá, þá verði hægt að nota húsin, en það verður bara notað eins og ég sagði áðan, til þess að blekkja Alþingi. Það yrði auðvitað að gera annað við húsin, alveg eins og spítalann á Eyrarbakka, af því að hann reyndist ekki nothæfur sem spítali. Ég er ákaflega hræddur um, að það sé ástæða til að ætla, að unga fólkið sætti sig ekki við þetta fyrirkomulag.