18.12.1935
Efri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1741 í B-deild Alþingistíðinda. (2711)
40. mál, iðnaðarnám
Pétur Magnússon:
Ég skal ekki teygja umr. um þetta mál mikið. Ég veit ekki, hvaða rétt menn hafa til þess að segja, að þetta mál hafi ekkert fylgi. Meðferð þess hér í þinginu sýnir, að þetta er alveg rangt. Það hefir ekki enn fengizt úr því skorið í Nd., en hér í d. er mér óhætt að fullyrða, að það eru margir, sem hafa þá skoðun, að þessi breytta tilhögun, sem frv. gerir ráð fyrir, geti orðið til góðs og fylgja því af því, að þeir hafa trú á málinu, en ekki af því, að það sé ekkert að óttast. Hv. þm. S.-Þ. talaði um, að það mundi ekki verða vinsælt í mörgum sveitum, að unglingarnir ættu að vinna fyrir ekki neitt. Þetta er alls ekki rétt, því eins og frv. ber með sér, þá eiga þeir að fá fría kennslu og húsnæði. Ég vil leggja áherzlu á viðvíkjandi því, sem hv. þm. sagði, að það er alls ekki meiningin með þessu, að höfuðtilgangurinn sé að fá einhver ákveðin verk í framkvæmd, heldur að þeir, sem þarna eiga að vinna, fái tilsögn og kennslu í vinnubrögðum og líkamsmennt. Þetta nýja fyrirkomulag leiddi mikið gott af sér, þó að ekki væri annað en unglingarnir lærðu betur að vinna. Auk þess er ekki þýðingarlaust fyrir unga menn að halda félagsskap með glaðværð og öðru, sem slíkum félagsskap fylgir, einmitt að vorinu til. þegar okkar íslenzka náttúra hefir upp á flest að bjóða. Ég ber ekki miklar áhyggjur út af því, að það sé ekki hægt að finna eitthvað handa ungum stúlkum að gera að vorlagi til, þó þær verði ekki lánaðar út til innanhússstarfa. Það væri t. d. ekkert á móti því fyrir ungar stúlkur að vinna nokkra vikur að garðrækt eða skógrækt. Ég ímynda mér, að margar konur myndu mega þakka fyrir ef þær hefði lært meira að garðrækt í æsku sinni heldur en þær hafa gert. Auðvitað kemur ekki annað til mála en að þessum skólum verði valdir hæfir menn, sem geta fullkomlega kennt sína grein.
Út af því, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði, vildi ég segja það, sem ég hefi áður tekið fram, að þetta kemur því aðeins til framkvæmda, að almennur áhugi sé fyrir því í héraði, að nota þessa heimild, og á það alveg eins við um Rangárvallasýslu og aðrar sýslur. En ef þessi áhugi kemur fram, á hann þá ekki að fá að njóta sín jafnvel, hvar sem er? Mér sýnist bein mótsögn í því, að gefa einstökum héruðum þessa heimild, en varna öðrum héruðum að njóta sömu réttinda, ef þau vildu taka upp þessa aðferð. Mér sýnist ekki, að það geti komið til mála, og mér liggur við að segja, að hjá þeim, sem slíku halda fram, sé ekki ástæða til að halda, að mikil alvara sé fyrir málinu. Hv. þm. S.-Þ. sagði, að minni hætta væri á, að almennir unglingaskólar legðust niður heldur en þeir, sem reistir væru á þessu fyrirkomulagi. Ég held, að þetta sé misskilningur. Hann sagðist ekki vita til, að unga fólkið hefði sýnt áhuga fyrir þessu eða að það langaði mikið til að vinna kauplaust. Ég véfengi þetta á engan hátt. - En kynslóðir koma og kynslóðir fara, og þótt sú kynslóð, sem nú er uppi, hafi sýnt einhverju ákveðnu máli velvild, þá er engin vissa fyrir því, að kynslóðin, sem á eftir kemur, sýni því samskonar velvild. Auk þess er svo þess að gæta, að til þess að sú tilhögun verði upp tekin, sem hér er talað um, þá er það skilyrði, að almennur áhugi komi fram, og er ekki síður ástæða til, að sá áhugi haldist, svo framarlega sem þessi aðferð sýnir það, að hún gefi góðan árangur. En ef hún gefst ekki vel, þá má búast við, að fyrirkomulaginu verði breytt og þau skólahús, sem reist hafa verið í þessu skyni, verða þá notuð til þess að reka í þeim almenna skóla með venjulegu fyrirkomulagi. Það má segja, að þá geti komið fram vandkvæði á að fá það tillag, sem héruðum er ætlað að leggja fram til slíkra skóla, en samt sé ég ekki neina ástæðu til að óttast það frekar í þeim héruðum, sem stofna þessa skóla, heldur en þar, sem skólar hafa verið stofnaðir eða verða stofnaðir samkv. eldra fyrirkomulagi.
Fleira hefi ég svo ekki ástæðu til að taka fram og vil ekki tefja umr.