18.12.1935
Efri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1743 í B-deild Alþingistíðinda. (2712)
40. mál, iðnaðarnám
Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson) [óyfirl.]:
Mér finnst hv. 2. þm. Rang., sem er þm. fyrir það kjördæmi, sem hér á sérstaklega hlut að máli, þurfa að gera betur grein fyrir fjárhagslegum möguleikum með þessa skóla heldur en hann hefir gert. Mér finnst, að hann hafi sneitt hjá því að tala um, hvers vegna hann er á móti brtt. minni um að þessi heimild nái ekki til bæjanna. Ég geri ráð fyrir, að bæirnir komi ekki til greina, og þessi skoðun mín hefir verið studd af hv. 1. þm. Reykv., sem hefir fullkomlega tekið í þann streng, að ekki sé sýnilegt, að bæirnir hafi nokkuð með þessa heimild að gera, en það er til skaða fyrir málið, að heimildin sé veitt lengra en eðli máls stendur til. (PM: Það kostar ekkert að hafa heimildina). En það er tilgangslaust að byggja lögin þannig upp, það er eins og okkur fyndist ekki nóg að gera lög fyrir þennan hnött, en færum líka að gera lög fyrir tunglið og sólina. En við höfum sannarlega nóg með að sjá um okkur. Þessi löggjöf getur ekki náð til bæjanna vegna þess, að það er óhugsandi, að þeir notuðu hana, þótt heimildin væri látin ná til þeirra. Eðli málsins er þannig háttað.
Þá hefi ég spurzt fyrir um það, og ekki fengið nægilega skýr svör, hvernig er hugsað að kosta þessa skóla. Það er sagt, að 7 vikna vinna að vorlagi eigi að borga húsaleigu og kennslu heilan vetur á eftir. Nú eru ekki fengnar nokkrar sannanir fyrir því, að þetta fé sé nándar nærri nóg. Ég vil því snúa mér til hv. 2. þm. Rang. til þess að fá skýr svör og útreikning fyrir því, hvernig á að sjá fjárhag þessara skóla borgið. Ef teknir eru ungir menn í sýslu, sem hefir 4 þús. manns - það mun vera nærri því í Rangárvallasýslu - og þessum ungu mönnum er reiknað það kaup, sem venja er að borga í sveitum að vorlagi, þá mun sú upphæð verða litlu meiri en það, sem yfirleitt er borgað í unglingaskólum fyrir húsaleigu og upp í kennslu, en fyrir utan þetta er svo mjög stór partur kennslugjaldsins, sem hv. þm. segir, að sýslan eigi að standa undir, en það hefir ekki reynzt ennþá ein einasta sýsla, sem gæti staðið undir slíkum kostnaði. Múlasýsla hefir lítilsháttar gert það, þar sem Eiðaskóli er, en það er sýnt, að þar er alveg nóg að standa undir kostnaði við húsið. Ég vil fullyrða, eftir þeirri reynslu, sem fengin er, að þá er kennslugjald við 40 manna skóla að meðaltali alveg ofvaxið sýslunum. Það verður því að gera ráð fyrir, að kennslukostnaðurinn leggist helzt allur á landið, þótt það sé ekki sagt hér, og fer þá eins og þegar lagt var í brimbrjótinn í Bolungavík, að eftir að hann var kominn af stað, þá hefir alltaf verið krafizt, að ríkið héldi áfram að leggja fé til hans.
Hvernig leysir hv. þm. úr þeirri spurningu, hvort Rangárvallasýslu sé fært að greiða úr sýslusjóði 12 þús. kr. á ári til kennslugjalda við þennan fyrirhugaða skóla. Af því að hér er staddur sá maður, sem þessum málum er kunnugur (þ. e. hv. þm. Dal.) þá langar mig til þess að heyra, hvort hann álítur, að Dalasýsla gæti lagt fram 10 þús. kr. á ári til kennslugjalda í viðbót við annað það, sem sýslan þarf nú að greiða, og með núverandi fjármálaástandi, sem ég veit, að ekki er lakara í Dalasýslu en annarsstaðar. (ÞÞ: Ég skal taka það fram við 3. umr.). Það gæti haft áhrif nú við atkvgr. að fá upplýsingar um þetta frá fyrstu hendi. Ennfremur finnst mér standa upp á hv. 2. þm. Rang. um að veita þær upplýsingar, til þess að skýra málið, hvort Rangæingar muni hugsa sér að setja á stofn tvo skóla, annan fyrir pilta, hæfilega stóran, og svo annan jafnstóran fyrir stúlkur. Því þar mun tekjuhallinn verða ennþá meiri, vegna þess að kaup kvenna er lægra en karla. hvort sem það er nú réttmætt eða ekki. Ennfremur vil ég spyrja hv. 2. þm. Rang. um það, hvort hann álítur, að ef Rangárvallasýsla fengi svona skóla - sem við unnum henni að fá -, væri líklegt, að sýslan gæti endurborgað þá peninga. Ég tel ekki, að það sé mögulegt að gera ráð fyrir, að það yrði minna en 150 þús. kr., sem sá skóli kostaði, sem sýslan gæti sætt sig við.
Að síðustu vil ég svo svara þeirri einu röksemd, sem kom fram hjá hv. 2. þm. Rang., þar sem hann hélt því fram, að það væri svo mikil trygging fyrir starfrækslu þessara skóla í atkvgr. í sýslunni, vegna þess almenna áhuga, sem þar yrði að koma fram. Ég get alls ekki sannfærzt um, að þetta sé rétt, því þessi áhugi getur verið algerlega fölsk mynd. Ef það er rétt, sem hv. 2. þm. Eyf. hélt fram, að það sé óeðlilega lítill áhugi á bak við þetta mál, eftir því sem ætla mætti, þegar á það er litið, hve oft það hefir komið fram, og að ekki sé að marka þann atkvæðastyrk, sem það virðist hafa, þá getur alveg það sama átt sér stað innan sýslunnar. Það er vel hugsanlegt, að eldra fólk vildi fá peninga frá ríkissjóði til að byggja skólahús, og unga fólkið er ekki nema lítill hluti af atkvæðisbærum mönnum sýslunnar, og er þá vel hugsanlegt, að eldra fólkið samþ. þetta skólafyrirkomulag án tillits til þess, hvað framkvæmdamöguleika snerti, og unga fólkið væri svo á móti því. Svo það er ekki sýnt, að þessi áhugi hefði nokkra þýðingu fyrir starfrækslu og lífsmöguleika skólans, og það verður því miður að játast, að þegar þegnskylduvinnuhugmyndin kom fram, þá var unga fólkið á móti henni.
Ennfremur vil ég skjóta því til hv. frsm. meiri hl. og óska skýringar á því, hvernig muni standa á því, að hv. 1. þm. Rang. hélt ákaflega kröftuga ræðu um það, hve upphafsmaður þessa máls hefði verið lítið heppilegur fyrir Rangárvallasýslu. Það vildi svo til, að sýslumaður Rangæinga var staddur í ráðherraherberginu og hv. 1. þm. Rang., sem nýtur afarmikils trausts hjá meiri hl. kjósenda í þessu kjördæmi, hélt því fram, að þessi mikli og gáfaði hugsjónamaður hefði verið beinlínis skaðlegur fyrir héraðið. Ég vil ekki halda þessu fram, en þessi ummæli hv. 1. þm. Rang. hygg ég, að séu í Alþt. frá árinu 1929. (MJ: var þetta rætt í n.?). Nei, þetta var ekki rætt þar, sú hlið lá ekki fyrir. En þegar talað er um aðstöðu Rangárvallasýslu, þá verð ég að telja, að það spái ekki góðu fyrir framkvæmd málsins, þegar yfir þessa hugsjónahetju er steypt svona kaldri vatnsgusu, og það af þeim manni, sem mest fylgi hefir í Rangárvallasýslu. Ég gat ekki skilið þetta öðruvísi en hv. 1. þm. Rang. áliti, að þetta hugsjónamál væri þess eðlis, að það stafaði af því alvarleg hætta fyrir sýslufélagið. Þessi mæti maður hefði aldrei haft svo sterk orð sem hann hafði, ef hann hefði ekki álitið, að í þessu máli væri stefnt á villigötur.
En ástæðan til þess, að ég nú fylgi þeirri leið, sem hv. 1. þm. Reykv. sló inn á árið 1929, er sú, að ég virði þann áhuga, sem ég held, að hv. 1. þm. Rang. hafi áfellzt. Ég veit, að upphafsmaður þessa máls hefir virðingarverðan áhuga fyrir því, að það komist til framkvæmda, og fyrir þeim áhuga vil ég beygja mig, og þess vegna legg ég til, að gerð sé undantekning með þetta eina hérað. - En mér finnst, að hv. frsm. ætti að óska eftir því, að málinu væri frestað, svo honum gæfist tækifæri til þess að tala við hv. 1. þm. Rang. og vita, hvað fyrir honum hefir vakað, þegar hann mælti svo kröftuglega á móti þessu máli.