18.12.1935
Efri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1745 í B-deild Alþingistíðinda. (2713)
40. mál, iðnaðarnám
Páll Hermannsson:
Það er búið að benda á það réttilega, að þetta frv., eða frv. um sama efni, er búið að liggja fyrir mörgum undanfarandi þingum, en ég man ekki eftir, að það hafi fyrr legið fyrir þessari hv. d., og finnst mér þess vegna ekki óeðlilegt, þótt hv. þdm. vilji lýsa skoðun sinni á þessu máli, sem svo lengi hefir legið fyrir til meðferðar í hv. Nd.
Eftir því sem mér skilst, er þungamiðja málsins sú, að það á að láta unga menn - á aldrinum 18 ára - vinna í þágu sveitar- og bæjarfélaga í því augnamiði, að vinnan verði þeim skóli, og jafnframt á þessi vinna að skaffa unglingunum aðgang að sex mánaða skóla að vetrinum, svo kennslan verður þannig bæði verkleg og bókleg, því það er meiningin, að þessi vinna, jafnframt því að vera skóli, eigi líka að greiða skólagjald og húsaleigu á sex mánaða skóla veturinn eftir. Mér þykir alls ekki ólíklegt, að svo vel megi vanda fyrirkomulag á þessari vinnu, og líka á þessum skóla, að þetta verði gagnlegt fyrir þá nemendur, sem þetta vilja nota. Ég álít, að reynslan ein skeri úr því til fulls, en tel ekki ólíklegt, að þetta gæti orðið gagnlegur skóli. En það er önnur hlið þessa máls, sem ég vil vekja athygli á. Það er nú þegar búið að reisa hér á landi marga skóla fyrir þetta sama fólk, og þessir skólar eru teknir til starfa. Þessir skólar munu vera um 20. Ég þarf ekki að telja þá upp; ég hygg það muni vera a. m. k. 6 unglingaskólar og auk þess 2 bændaskólar, sem sóttir eru af mönnum á sama reki, og svo man ég eftir 4—5 húsmæðraskólum. Ég vil vekja athygli á því, hvort ekki sé nokkur ástæða til að óttast það, ef þetta frv. kæmist til framkvæmda, að þá yrði fólki almennt ýtt á nýja skólafyrirkomulagsbraut, og að viljað gæti til, að það yrði til þess, að reistir yrðu fleiri skólar en þörf er fyrir. Mér finnst, að hv. þdm. eigi líka að gefa þessu gaum. Mér hefir fundizt stundum undanfarið, að svo væri komið, að hingað og þangað væri búið að reisa nægilega marga skóla. Nú má ekki gleyma því, að til viðbótar við þá skóla, sem ég taldi upp áðan, eru líka unglingaskólar í bæjunum og gagnfræðaskólar, sem líka taka fólk á sama aldri. Mér hefir stundum dottið í hug, hvort ekki væri jafnvel búið að stofna fleiri skóla heldur en þörf er fyrir; en það má vera, að þetta sé ekki rétt. Ég mun hafa fengið þessa hugmynd af því að ég hefi veitt því eftirtekt, að bæði húsmæðraskólar og líka sumir hinna skólanna hafa ekki verið fullskipaðir, en það getur hafa stafað af fleiru en því, að fólk hafi ekki verið til til þess að sækja þá. Það getur líka hafa stafað af því, að fólk hafi vantað peninga til þess að sækja skólana, því nú á undanförnum árum hefir almenningur ekki gengið með fulla vasa af peningum. En vegna þess að ég hygg, að til séu nægilega margar námsstofnanir, sem hafa það hlutverk að taka á móti ungu fólki, þá tel ég ekki víst, að það sé hættulaust að opna nú nýja braut með nýju fyrirkomulagi, sem kannske er betra en það, sem nú er, en hvorki verður betra né verra, nema það sé notað.
Brtt. frá hv. þm. S.-Þ. verður til þess að beina málinu inn á ákveðna braut, og ef um er að ræða hættu af of mikilli skólafjölgun, þá er sú hætta að mestu útilokuð, ef gengið er inn á brtt. hv. þm. S.-Þ. og heimildin ákveðin í sambandi við eitt sýslufélag. Ég hafði ekki veitt því eftirtekt, hvernig málið lítur út, ef það er athugað frá þessari hlið, en það er rétt að vekja athygli á þeirri hlið málsins.