23.03.1935
Efri deild: 33. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1755 í B-deild Alþingistíðinda. (2747)
73. mál, fangelsi
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Ég þarf ekki að svara hv. 2. þm. Rang. nema fáeinum orðum, því að hæstv. forsrh. hefir svarað honum að nokkru. Ég get ekki neitað því, að ég er hissa á þessum undirtektum hjá hv. 2. þm. Rang. Ég fer nú að skilja, hvers vegna mál þetta náði ekki fram að ganga á síðasta þingi þrátt fyrir sterka aðstandendur. Það er auðvitað vegna þess, að þá átti hv. 2. þm. Rang. sæti í allshn. Ástandið er verra um fangelsi nú en áður. Það voru byggð fyrir löngu smáfangelsi hingað og þangað, sem ekki hefir verið haldið við, og er því ástandið orðið svo, að ekki nema á örfáum stöðum utan Rvíkur er hægt að fangelsa mann. Það eru ekki til nein ákvæði um rekstur og viðhald þessara húsa í löggjöf vorri og þess vegna er rétt að selja lög í þessu efni.
Það er sjálfsagt rétt hjá hv. þm., að margt er nauðsynlegra en fangelsi. En það stendur líka í frv., að ekki skuli byggja meira en ákveðið er í fjárlögum hvers árs. Hér er því fullt frelsi til þess að taka tillit til annara þarfa. Hann fann að því, að við höfum ekki nefnt, hve margir staðir það eru, sem til mála getur komið að reisa fangelsi á, en það getur hver og einn fundið út sjálfur, þar sem miðað er við ákveðna íbúatölu. Það er sjálfsagt rétt, að þeir staðir eru milli 10 og 20, en eins og tekið hefir verið fram, verður ekki allt byggt í einu, og eftir því sem staðirnir eru fleiri, eftir því dregst það lengur. Hann sagði, að það mundi fáanlegt húsrúm til að setja inn í fulla menn, þegar á liggur, en ég held, að þetta sé alveg rangt. Menn eru ekki fúsir á að taka slíka menn í híbýli sín og þola þau ólæti, sem því fylgja. Ég hefi verið lögreglustjóri og reynt þetta og komizt í vandræði, og það er þó nokkuð oft sem það kemur fyrir, að fangelsa þarf menn, sérstaklaga í kaupstöðum og stórum kauptúnum. Hv. 2. þm. Rang. þarf ekki að vera hræddur um að fé verði lagt til þessa að ófyrirsynju, í fyrsta lagi vegna þess, að fjárveitinga- og löggjafarvaldið hér á Alþingi ákveður framlagið í hverjum fjárl., og í öðru lagi af því, að helmingur fjárins á að koma frá hlutaðeigandi héruðum, og það er sannarlega mælikvarði á þörfina, ef héruðin vilja binda sér þann fjárhagsbagga. Hv. þm. viðurkenndi þörfina, sem væri í kaupstöðunum. Hér er því til að svara, að fyrst mundi verða byggt þar, sem þörfin er mest, og í kauptúnunum e. t. v. ekki fyrr en efir 10—15 ár, og sé ég þá ekki, hvað það gerir til, þó þetta ákvæði sé í lögunum um 700 íbúa, en annars er hverjum frjálst að gera brtt. þar um, og verður hún þá tekin til athugunar.
Um 8. gr. frv. get ég tekið í sama streng og hæstv. forsrh. Mér finnst kostnaðinum sanngjarnlega skipt til helminga. Húsnæði þetta mun verða notað í þágu bæði ríkis og bæjar- og sveitarfélaga. Það getur að vísu farið svo einstök ár og á einstaka stað, að ekki verði rétt hlutföll, en ég er sannfærður um, að ekki er yfirleitt hægt að finna réttlátara hlutfall. Það mun líka sannast, að kostnaður við rekstur þessara húsa verður miklu minni, ef bæjar- og sveitarfélögin bera hann að hálfu, en ef ríkissjóður ber kostnaðinn einn. Ég vænti því, að frv. þetta fái að ganga áfram, en náttúrlega mun n. taka til athugunar brtt., sem fram kunna að koma.