17.12.1935
Neðri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1760 í B-deild Alþingistíðinda. (2761)
73. mál, fangelsi
Ólafur Thors:
Ég vildi aðeins vekja athygli á því, að mér finnst óviðfelldið, að þetta mál verði rekið fram svo síðla kvölds að hv. frsm. fjarverandi. Eins og hæstv. forseti sér, vantar mikið á, að hv. d. sé fullskipuð. Ég vildi því mælast til þess, að málið fengi að bíða þangað til hv. frsm. og hv. þm. Snæf. eru viðstaddir, og finnst mér það meiri sanngirni.