18.12.1935
Neðri deild: 102. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1760 í B-deild Alþingistíðinda. (2768)

73. mál, fangelsi

Thor Thors:

Það lýsti sér í ræðu hv. síðasta ræðumanns, að það er ekki mikil hrifning á þessu máli hjá meiri hl., sem þó hefir lagt til, að frv. verði samþ. En ég hefi ekki getað verið þeim samferða, af þeirri ástæðu fyrst og fremst, að eins og komið er hag ríkissjóðs, þá virðist annað þarfara við fé hans að gera heldur en að leggja það í tugthús. Ég vil ekki taka þátt í tugthúspólitík þeirra, sem þetta frv. flytja. Ég tel og af annari ástæðu ekki rétt að taka þetta til meðferðar nú, því að einmitt nú stendur yfir endurskoðun á refsilöggjöfinni, og er ekki vitað, hverjum eða hve margvíslegum refsitækjum verður þar komið upp. Ég tel rétt að bíða með að afgr. þetta frv. þangað til séð verður, hvaða stefna verður ráðandi í þeirri refsilöggjöf. Ég tel sennilegt, að það verði aðrar stefnur, sem hin nýja refsilöggjöf álítur nauðsynlegri en tugthús, sem hafi það fremur með höndum að koma mönnum burt af glæpabrautinni en að útvega mönnum vist í tugthúsi. Það er af þessum ástæðum, að ég hefi neitað að taka þátt í þessari tugthúsaviðleitni meiri hl. n.