18.12.1935
Neðri deild: 102. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1761 í B-deild Alþingistíðinda. (2769)
73. mál, fangelsi
Pétur Ottesen:
Hv. þm. Snæf. talaði mikið um tugthúsapólítík, og skal ég láta honum það eftir. En ég skal reyna að upplýsa þetta mál nokkuð. Það er fram komið út af þeim erindum, sem hafa borizt fjvn., bæði nú og 1934, utan úr kaupstöðum landsins, þar sem ákaflega mikið er kvartað um það, að ómögulegt sé að halda uppi reglu á þessum stöðum, vegna þess að ekki sé til neitt hús á staðnum, þar sem hægt sé að setja menn inn, sem valdir eru að vandræðum á almannafæri, og séu ekki tök á því að gera þá óskaðlega fyrir skikkanlegt fólk, sem verður á vegi þeirra. Það hefur náttúrlega ýtt undir þessa þörf, sem verið var að tala um áðan, hinn nýji vínstraumur til landsins, sem hefir skapað mikla óró og erfiðleika, sem hafa gert þörfina fyrir þetta miklu brýnni en áður var. Menn ættu því ekki að vera að tala um þetta í hæðnistón. Þetta er fram komið af þörf, sem er fyrir hendi víðsvegar í kauptúnum landsins og kaupstöðum. Ég vildi bara láta þetta koma fram, af því að enn hefir ekkert verið upplýst um þetta, og meiri hl. n., sem að þessu stendur, fylgir þessu máli ekki eftir eins og ástæða væri til. Þetta mál gekk í gegnum Ed., og að því er ég held andmælalaust þar. Ég man, að fjvn. stóð að því óskipt, að rétt væri að koma þessu máli fram og greiða þannig úr þeim erfiðleikum, sem kvartað var um utan af landi, að slík hús væru ekki til, til þess að geyma menn í, þangað til þeir væru komnir í það ástand, að þeir væru hæfir til að vera á almannafæri.