18.12.1935
Neðri deild: 102. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1761 í B-deild Alþingistíðinda. (2770)
73. mál, fangelsi
Thor Thors:
Það má vel vera rétt hjá hv. þm. Borgf., sem nú hefir tekið upp vörn fyrir þetta frv., að það sé víða þörf fyrir tugthús. Ég skal ekki mótmæla því. En það er svo ákaflega margt, sem þörf er fyrir í okkar þjóðfélagi, og það miklu meiri en tugthús. Ég er á þeirri skoðun, að það sé margt annað, sem sé heillavænlegra fyrir þjóðfélagið að koma sér upp á undan tugthúsunum.