29.11.1935
Efri deild: 82. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1804 í B-deild Alþingistíðinda. (2787)
192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Magnús Jónsson [óyfirl.]:
Hv. 1. þm. Skagf. er nú bundinn á nefndarfundi, en hann bað mig að skrifa niður fyrir sig, ef á sig yrði yrt, og geri ég ráð fyrir, að hann muni nú vilja svara með fáeinum orðum einhverju af því, sem ég hefi skrifað; og get ég þá, á meðan beðið er eftir honum, fyllt út með nokkrum orðum um sumt af því, sem hér hefir borið á góma við þessar umr., sem nú virðast vera að fjara út, þótt hér sé um stórt mál að ræða.
Ég setti hér fram í minni fyrri ræðu þá spurningu, sem hvorki hæstv. ráðh. né hv. 4. landsk. hafa svarað. Spurningin var sú, hvort þeim dytti í hug, að það væri rétt stefna að bera fram hvert mál sem væri, bara ef það gæti talizt þarft, alveg án þess að taka til athugunar, hvað framkvæmd þess kostaði og hve mikla skattahækkun það hefði í för með sér, og alveg án þess að athuga, hvernig gjaldþoli skattþegna væri háttað. Á hvergi að nema staðar, — eða hvar á að nema staðar? Það er um þetta, sem deilan stendur, og það er þetta, sem verður að vega og meta.
Hv. 4. landsk. tók t. d. bónda, og eftir því sem hann sagði, þá var þessi feill á, að hann sá sér ekki fyrir tekjum. Ja, það væri nú ekki mikill vandi að komast af í henni veröld, ef ekki væri annað en sjá sér fyrir tekjum. Það er eins og hv. 4. landsk. gangi út frá því, að það sé ekkert annað en sjá sér fyrir tekjum. En hvernig á nú efnalítill bóndi að sjá sér fyrir tekjum? Hann þarf að kaupa jörð, hann þarf að kaupa bústofn, byggja útihús, rækta tún og slétta, byggja vörzlugarða, gera áveitu, byggja íbúðarhús og svo fjöldamargt fleira. Hvernig á hann svo að sjá sér fyrir tekjum til allra þessara framkvæmda? Ef hann þyrfti ekki annað en sjá sér fyrir tekjum, þá myndi hann sennilega sjá sér fyrir svona 100 þús. krónum í tekjur. — Þetta er einmitt sú hættulega pólitíska stefna, að leggja sí og æ í nýjan og nýjað kostnað, eins og ekkert sé annað að gera en sjá sér fyrir tekjum, og þetta er því hættulegra í pólitísku lífi heldur en fyrir bóndann, að bóndinn hefir takmarkaðar tekjur og getur ekki séð sér fyrir öðrum tekjum; en ríkisvaldið hefir þetta leynda vald til þess að fara ofan í vasa skattþegnanna. Þess vegna verða þm. að meta það vandlega, hve mikið af þessum þörfu málum eigi að taka til þess að framfarirnar geti orðið sem jafnastar. Hve mikið af þeim megi taka án þess að gjaldþoli skattþegnanna verði ofboðið og allar framfarir hljóti að stöðvast. Það er auðvitað hægt að gera miklar framfarir á 4 árum, t. d. ef því er til kostað að tæma alla gjaldstofna í landinu. En sá hyggni maður virðir, hvað miklu honum sé óhætt að kosta til, með það fyrir augum, að hann geti risið undir því og framfarirnar geti orðið sem jafnastar og öruggastar. Alveg á sama hátt er það um þá, sem stjórna þjóðarbúinu. Þeir verða að virða það, hve mikið megi leggja á gjaldþol þegnanna án þess að atvinnulíf landsins og heilbrigðir framfaramöguleikar biði við það hnekki, og um þetta er það, sem á greinir milli sjálfstæðismanna og stjórnarflokkanna.
Hv. 4. landsk. sagði um Sjálfstfl., að þetta væri sá stóri feill á honum, að þegar komið væri með góð mál, — jú, þá viðurkenndi hann að vísu, að málið væri gott, en tímarnir væru bara svo vondir, að það væri ómögulegt að framkvæma það. Svona vígorðum má auðvitað sleppa út úr sér, en þau hafa bara ekki við nein rök að styjast.
Ég vil aðeins benda á þann tíma, sem Sjálfstfl. var við völd. Þegar hann tók við völdum, var allt í hyldýpis skuldafeni. 5 millj. króna voru lausaskuldir á víxlum, og skrifstofustjóri varð á hverjum degi að fara í bankann til að bjarga þessum víxlum. Skuldirnar máttu teljast alveg óbærilegar, en Sjálfstfl. tókst á þessum 4 árum — þótt hann hefði við veikan meiri hl. að styðjast, og yrði að njóta stuðnings þm., sem ekki voru flokksmenn — að lækka skuldir ríkissjóðs um 1/3, og hafði þó lækkað að mun skatta á landsmönnum. Samt má benda á frá þeim tíma fjölda af þörfum málum, sem komust til framkvæmda. eins og t. d. jarðræktarlögin og mörg fl. Ég hefi ekki skrá yfir þessi mál hér við hendina, en það hefir oft verið á þau bent bæði í blöðum flokksins og á þingmálafundum hér og úti um land. Það þýðir ekkert að vera með vígorð eins og það, að Sjálfstfl. hafi aldrei beitt sér fyrir þörfum málum. Ég get þá alveg eins sagt, að Alþfl. hafi aldrei komið með almennilegt mál. Það er auðvitað hægt að láta svona vígorð út úr sér, ef menn krefja sjálfa sig engrar hugsunar, en eru ánægðir með að kvaka eins og páfagaukar í búri. Og svo sagði hv. 4. landsk., að það væri af þessari tregðu Sjálfstfl. til fylgis við góð málefni, að flokkurinn væri svona lítill. En við skulum nú hugsa okkur, að þessi hv. þm. sæi sinn flokk orðinn jafnstóran; hann myndi alveg rifna af monti, fyrst hann er nú svo stoltur af honum eins og raun ber vitni um, og hefir þó sá flokkur ekki helming af því trausti kjósendanna í landinu, sem Sjálfstfl. hefir. Sjálfstfl. hefir unnið sér það traust, að hann er hér um bil jafnfjölmennur eins og báðir stjórnarflokkarnir til samans, og það munaði nú ekki nema þessu eina hlutkesti, að hann færi með völdin í landinu. (Rödd af þingbekkjum: Það er þá víst, að Bændafl. hefir átt að vinna með Sjálfstfl.). Ég geri ráð fyrir, að það hefði fengizt samvinna við hann um það að standa á móti þeim ófögnuði, að núv. stjórnarflokkar færu með völd. Hv. 4. landsk. tekur ekki eftir því, hve harðan dóm hann fellir yfir sínum eigin flokki, þegar hann er að tala um, að Sjálfstfl. vilji ekki beita sér fyrir góðum málefnum og njóti þess vegna ekki trausta kjósendanna í landinu. Reynslan hefir sýnt, að flokkur þessa hv. þm. er svo bölvaður, að kjósendurnir treysta Sjálfstfl. betur til þess að fara með mál þjóðarinnar, þó hann eigi nú að vera svona bölvaður eftir dómi hv. 4. landsk., dæmi, sem fyrst og fremst verður þó áfellisdómur á hans eigin flokk.
Ég vissi svo sem, hverju hv. 4. landsk. mundi svara því, sem ég sagði um erfiðleikana á því að láta endana mætast fyrir þá menn, sem hefðu þetta frá 5 til 6 og allt upp í 7 þús. kr. tekjur á ári. Ég vissi, að hann mundi svara með því, að það væru ýmsir, sem yrðu að lifa á minni tekjum. En ég veit nú samt, að hv. þm. verður að viðurkenna, að þegar hann gerir launakröfu sína sem bankastjóri, þá verður hann að miða við, að það eru gerðar kröfur til hans um, að hann lifi dýrara lífi en almennir verkamenn, og það alveg án tillits til þess, hvort hann sjálfur kærir sig nokkuð um það eða finnst sér líða nokkuð betur með því. Það getur vel verið, að honum líði alveg eins vel þótt hann væri ekki í eins fínum fötum eða þótt hann byggi í minni íbúð og hefði yfirleitt minna af því, sem almennt eru kölluð lífsþægindi. Það er ekkert víst, að hann kæri sig um það. En hann veit það sjálfur, að við breytum ekki svo hugsunarhætti þjóðarinnar, að ekki verði gerðar um þetta mismunandi kröfur.
Ég bjó eitt sumar í litlu húsnæði. Það stóð þannig á því, að maðurinn, sem átti húsið, sem ég bjó í, ætlaði að selja það, og ég gerði það fyrir hann að flytja úr íbúðinni og flutti mig í lítið bakhús. Það hefir líklega verið álíka og venjuleg verkamannaíbúð, og mér leið þarna alveg prýðilega og mig hefir alltaf síðan hálflangað til að eiga heima í svona húsi. Ég varð veikur þá um sumarið og lá nokkuð lengi. Rúmið mitt var undir súð, og það var svo lágt undir súðina, að ég gat varla risið upp; en mér leið svo prýðilega, að mig hefir beinlínis langað til þess síðan að eiga heima í svona húsi, en ég veit, að það mundu allir líta svo á, að ég væri að gera þeirri virðulegu stofnun Háskóla Íslands — og þjóðinni í heild — skömm með því að búa í svona húsi. Svona er hugsunarhátturinn, og fyrir honum beygja menn sig. Það er ekki af því út af fyrir sig, að það séu lífsþægindin, sem menn þrá. Ég skil ekki í því, að hv. 4. landsk. og fleiri flokksmenn hans væru ekki tregir að þiggja þau háu laun, sem þeir fá, ef þeim fyndist, að allir ættu að hafa jafnt; en ég veit, að hv. þm. finnur, að þetta, sem ég segi, er rétt. Það eru gerðar mismunandi kröfur, og hin mismunandi laun stafa miklu meira af því, að látið er undan þessum kröfum, heldur en af því, að menn séu ágjarnir og vilji draga til sín og telji sig eiga að hafa betra en aðrir.
Ég veit ekki, hvort ég á að fara að tala um þetta pólitíska fóður, sem hv. 4. landsk. var að ræða um. Hann sagði, að Sjálfstfl. væri alltaf að gleypa aðra flokka, og væri þó alltaf jafnhoraður eftir. Ég er nú búinn að sýna fram á það, að Sjálfstfl. er langfeitasti flokkurinn í landinu og ólíku saman að jafna honum og Alþfl., og veit ég þó ekki betur en hann sé sí og æ að naga utan úr sambýlisflokki sínum — Framsóknarfl. Annars þótti mér gaman að því, að hv. þm. skyldi vera með þessar skáldlegu líkingar, og stöðu minnar vegna þótti mér mjög vænt um að heyra, að hann er svona vel að sér í helgum fræðum og gat farið svona vel með jafnvandasama sögu og söguna um kýrnar hans Faraós.
Hv. 4. landsk. sneri út úr því, sem ég sagði um að ég gæti komið með gott mál á hverjum degi í heila viku. Sagði hann, að það væru þá aðeins 7 góð mál, sem ég vissi af. Hann vissi vel, að ég var að segja, að það væri enginn vandi að koma með góð mál, ef ekkert þyrfti að hugsa um möguleikana fyrir því að koma þeim í framkvæmd, annað en það eitt að heimta síhækkaða tolla og skatta, og ég nefndi ýms dæmi, og auðvitað er hægt að nefna mörg fleiri. Ef ekki er annar vandinn heldur en sá, að sjá sér fyrir tekjum, því þá ekki t. d. að leggja malbikaða vegi um allt land og byggja hafnir bæði hér og þar, og svo ótal margt fleira? M. ö. o., því eru framfarirnar þá ekki margfalt, margfalt stórstígari? Það er af því, að allir vita, að regla okkar sjálfstæðismanna er laukrétt. Það verður að fresta góðum málum, þegar ekki er geta til að framkvæma þau.
Hæstv. fjmrh. var mjög hneykslaður á, að ég skyldi nefna það, að ef hann réði um innflutningsleyfin, þá mundi hann verða hlutdrægur í veitingu þeirra. Hann sagðist ekki vita, á hverju ég hefði byggt þessi ummæli mín. Ég sagði það í ræðu minni, að þetta væri byggt á hans eigin ummælum, og svo bætti hann nú um þau með því að segja, að það væri stefna Framsfl. að færa verzlunina frá kaupmönnum til samvinnufélaganna. Fyrst það er yfirlýst stefna að færa verzlunina frá kaupmönnum til samvinnufélaga, því þá ekki að nota þetta dæmalausa tækifæri, — og kannske það hafi verið notað? Hafi samvinnufélögin átt erfitt uppdráttar, því þá ekki að nota þetta eindæma tækifæri og nota það vald, sem einni vissri stjórnardeild er fengið í hendur? Hæstv. ráðh. hefir beinlínis gefið ástæðu til þess, að það vakni grunur á honum um, að hann beiti rangindum í úthlutun leyfanna. Hann hefir beinlínis gefið tilefni til þess.
Ég veit naumast, hvort ég á að fara út í það, hvernig innflutningsnefndinni og hæstv. ráðh. hefir mistekizt. með niðurfærslu innflutningsins. Hann sagði, að aldrei hefði verið um það rétt að koma innflutningnum neðar en 37—38 millj. kr. Ég hafði nú skrifað hér eftir honum 36 millj., en það getur verið, að hann hafi meint hitt.
Það er lítið búið að prenta af umr. frá síðasta þingi, og ég get ekki fundið í því þau ummæli hæstv. fjmrh., sem mig rekur minni til, að hann hefði hér í fyrra, að innflutningur þyrfti að komast niður í 32 millj. kr. En við skulum halda okkur við þessar 37 millj. Nú er innflutningurinn, að því er séð verður á bráðabirgðayfirliti, kominn upp í þetta, og þegar þetta yfirlit er gert, er eftir sá hluti árs, sem samkv. venju skilar ekki minni innflutningi en 8 millj. Auk þess er þetta aðeins bráðabirgðayfirlit, og reynslan hefir sýnt, að raunverulegur innflutningur er alltaf um 10% meiri heldur en slík yfirlit sýna, og er þá, að þessu hvorutveggja töldu, innflutningur ársins orðinn 47—48 eða jafnvel allt að 49 millj., í staðinn fyrir 37, og ef hæstv. fjmrh. er ánægður með þetta, þá er svo sem ofur auðvelt að ímynda sér, hvernig fara muni á næsta ári.
Ég get ekki heldur fundið þau ummæli, sem hann bar á móti, að hann byggist við að verða búinn að koma á greiðslujöfnuði um áramót; og ég man ekki, hvort hann sagði þetta beint. Ég man, að hann svaraði hv. 1. þm. Skagf. út af og sagði, að hans spurning væri svo vitlaus, að hún væri ekki svaraverð, en minni spurningu tók hann miklu skár og sagði, að það væri þó vit í henni og hann vildi svara henni, og svarið var á þá leið, að hann byggist við, að um næstu áramót yrði kominn á greiðslujöfnuður. Að öðru leyti get ég svo látið útrætt um þetta atriði.
Ég sagði, að eins og nú væri ástatt væri ekki skemmtilegt að taka við völdum. Ég vil nú spyrja hæstv. ráðh., hvort honum finnist þetta ekki á rökum reist. við skulum taka til dæmis fyrirtæki, sem upphaflega hefði verið gott, en búið væri fara verulega illa með, jafnvel svo, að ekki væri sýnilegt, að því yrði bjargað frá gjaldþroti. Gæti þá ekki vel farið svo, að margur hygginn maður segðist ekki treysta sér til að taka við því, jafnvel þótt hann hefði áhuga fyrir fyrirtækinu og vildi því allt hið bezta? Þegar þannig er búið að fara með fjárhaginn, getur vel verið, að það sé allt eins heppilegt, að þeir, sem leitt hafa út í ófæruna, fái að fara með málin til enda. Það getur vel verið, að þjóð, sem er jafnóþroskuð í stjórnmálum og okkar þjóð er, þurfi jafnvel á svo ströngum skóla að halda til þess að augu hennar opnist. Ef aðrir tækju við og leiddu þjóðina út úr ógöngunum, þá gæti svo farið, að sumt af þeim ráðstöfunum, sem nauðsynlegar væru til bjargar, yrði skoðað sem óþarfa harðýðgi og að þjóðin lærði minna á því en hún myndi ella gera.