18.02.1935
Efri deild: 5. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (28)

Kosning fastanefnda

Magnús Guðmundsson:

Mér sýnist það mætti bíða að fjölga mönnum í allshn., en ef það er ætlunin að drífa það fram, þá verður Sjálfstfl. að biðja um fundarhlé. Annars skil ég ekki, hvers vegna ekki má hið sama ganga yfir báðar n., hv. landbn. og allshn. (JJ: Hér eru aðrar ástæður fyrir hendi, sem eru efnisástæður). Það getur vel verið, að fylgismenn hæstv. stj. þurfi ekki að bíða reynslunnar um það, hvort þörf sé á að fjölga í n. Þeir vita nú þegar, hver mál koma eiga fyrir n., en við sjálfstæðismenn vitum það ekki. (PM: Við óskum eftir fundarhléi í 3—5 mínútur).