05.12.1935
Efri deild: 87. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1826 í B-deild Alþingistíðinda. (2809)
192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Þorsteinn Briem:
Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir það, að hann tók vel í þá brtt., að láta tollinn ekki ná til landbúnaðarverkfæra, enda hafði hann áður lýst yfir því, að það, sem sérstaklega snerti framleiðsluna, skyldi undanþegið þessum bráðabirgðatolli. En fóðurbætirinn snertir líka framleiðsluna, þótt hann sé útlendur. Hann sagði, að ekki væri verið að leggja neinn skatt á menn í harðindum með þessum tolli, en það er ekki á rökum byggt. Þegar sauðfé er í langri innistöðu. nægir ekki eintómt síldarmjöl, a. m. k. ekki, ef hey eru lítil. Þegar svo stendur á, spöruðu gömlu mennirnir töðuna við kýrnar og gáfu hana fénu, en kúnum aftur fóðurbæti. En það er margsannað með tilraunum, að síldarmjöl, sem gefið er kúm, þarf helzt að vera blandað með 2/3 af öðrum fóðurbæti, t. d. maís, og jafnvel þótt það væri ekki blandað nema til helminga, er augljóst, að talsvert þarf að kaupa inn í landið af erlendum fóðurbæti, og þegar út í neyð er komið, munar um hverja krónuna, sem gjalda þarf í viðbót fyrir þá vöru.
Út af ummælum hæstv. ráðh. um brtt. hv. þm. Dal. verð ég að segja, að mér fannst þau satt að segja talsvert furðuleg. Ríkið hefir undanfarið styrkt byggingar í sveitum og hjálpað fátækum mönnum í kaupstöðum til að byggja yfir sig, og jafnvel efnuðum mönnum (sbr. samvinnubyggingar). En nú bregður svo við, að þessi styrkur til sveitanna og fátækra manna í kaupstöðum er lækkaður og jafnframt lagður skattur á hin frumstæðustu efni til bygginga. Enginn er að hafa á móti því, þótt lagður sé skattur á flísar og því um líkt, sem teljast má notað til lúxusbygginga eingöngu. En okkur finnst sanngjarnt, að hin fyrstu og nauðsynlegustu byggingarefni séu undanþegin. Byggingar vorar eru yfirleitt illa á vegi staddar, nema að nokkru leyti í Rvík, og í sveitunum a. m. k. er það miklum erfiðleikum bundið að bæta úr þeim vandræðahúsakosti, sem þar er víða. Þetta svar stj., að skattleggja í stað þess að styrkja, er því næsta illa viðeigandi. Og mér finnst, að till. sú, er hér var borin fram um styrk til bygginga í þágu framleiðslunnar, til súrheystófta og hlöðugerðar, hafi fengið nógu köld svör, þótt þetta bætist ekki ofan á. En þetta er svo sem eftir öðrum velvilja stj. í garð framleiðslunnar.