09.12.1935
Neðri deild: 94. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1835 í B-deild Alþingistíðinda. (2823)
192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Jóhann Jósefsson:
Ég get verið fáorður eftir það, sem hv. þm. Snæf. hefir nú tekið fram, þar sem hann hefir komið við öll þau höfuðatriði í þessu frv., sem af hálfu okkar sjálfstæðismanna helzt þykja athugaverð.
Ég skal játa það, að mér kom mjög á óvart, þegar sá varð uppi fyrir nokkrum dögum síðan, að í stað þess að reyna að jafna á annan hátt fjárl., þá yrði horfið að því að stórhækka bæði þá beinu og óbeinu skatta, sem á landsmönnum hvíla, og ég hygg, að fleiri en ég hafi undrazt það. Bæði ég og fleiri bjuggust við því, þegar sú ráðstöfun var gerð, að kalla fjvn. saman mörgum vikum áður en þing kom saman, að það hefði verið gert til þess að gefa þessari n. enn betra tækifæri til að koma við sparnaði á fjárl., meira en ella hefði orðið, ef henni hefði verið ætlaður nákvæmlega sami tími og þingið stendur, eins og verið hefir ávallt endranær. Maður skildi þessar ráðstafanir þannig, að þær væru til þess, að n. gæfist betra tækifæri til þess að koma við sparnaði. Síðan heyrðist ekkert um það; það virtist ekki koma nokkrum manni í hug fram að þessu, að stj. hefði í hyggju að auka á skattaálögur, og allra sízt svo mjög sem hér gefur raun vitni um.
Þetta er kallað bráðabirgðatekjuöflun, frv. heitir það. Og svo er í 1. gr. farin sú óvenjulega leið að lýsa því, til hvers eigi að verja þessu fé, en þeir er sagt svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Til þess að greiða með sérstök framlög úr ríkissjóði til atvinnuveganna, verklegra framkvæmda, nýbýlamyndunar og alþýðutrygginga er ríkisstjórninni heimilt að afla tekna á rann hátt, er hér fer á eftir“. Og síðan kemur lýsing á því, hvernig teknanna skuli aflað, sem sagt með aukningu á tekju- og eignarskatti og gífurlegri hækkun tolls á nauðsynjavörum almennings. Þetta er kallað bráðabirgðatekjuöflun.
Ég vil nú vekja athygli hv. þdm. á því, að það, sem sagt er í 1. gr. að gjald þetta eigi að renna til, þar virðist ekki vera um þau verkefni að ræða, sem maður gæti kallað bráðabirgðaframkvæmdir eða að hægt væri að framkvæma það á mjög skömmum tíma. Hér er þvert á móti um þau útgjöld að ræða, sem mundu verða fastur liður í fjárl. framvegis, en ekki neinar bráðabirgðaframkvæmdir. Hvers vegna er þá stj. að blekkja bæði þing og þjóð með því, að þessar skattaálagningar séu aðeins til bráðabirgða? Ég álít, að hæstv. fjmrh. eigi að gefa skýringu á því. fyrst og fremst, hvers vegna hann kallar þetta bráðabirgðatekjuöflun og tekur það svo fram í 1. gr., að þessar tekjur eigi að fara til verkefna, sem sýnilega eru engin bráðabirgðaverkefni.
Ég skal nú ekki fjölyrða um það „princip“brot, sem jafnarmenn eru komnir inn á hér. Það er búið að taka það hér fram, og greinilega búið að benda á það, en það er svo sem engin nýlunda, þó að þeir brjóti þessi svokölluðu princip sín, því að þeir hafa áður fyrr á þingi aukið við þessa óbeinu skatta, þó að þeir hafi fordæmt þá niður fyrir allar hellur, þegar við sjálfstæðismenn höfum borið þá fram. Þá hafa óbeinu skattarnir verið óalandi og óferjandi, og þá hefir verið sagt, að verið væri að skattleggja hvern kaffisopa og brauðbita, sem fólkið legði sér til munns, og skattleggja hverja spjör, sem fólkið klæðist. Nú er annað hljóð komið í strokkinn. nú berjast þeir fyrir mikilli hækkun á þessum óbeinu sköttum.
Mér þykir ekki undarlegt, þó að jafnaðarmönnum þyki leiðinlegt að heyra þetta dregið fram, enda var það sýnilegt, að þegar hv. þm. Snæf. fór að lýsa þessum svikum sósíalista við þjóðina, þá drógu þeir sig allir út úr þessari d. (JakM: Og eru ekki komnir enn). Ég geri ráð fyrir, að þessi skattur, sem hér er lagður á, reynist nokkuð þungur, a. m. k. á sumum vörutegundum, sérstaklega vegna þess, að þessar vörutegundir, sem hér eru tollaðar, eru nú þegar mjög hátt skattaðar. Í Ed. var af hálfu Sjálfstfl. gerð nokkur tilraun til þess að undanskilja allra nauðsynlegustu vörutegundirnar þessu svokallaða viðskiptagjaldi, en ég sé ekki, að þær tilraunir hafi borið neinn árangur, eða þær verið teknar til greina.
Ég ætla ekki að fara í neinn sparðatíning í þessu máli, en ég vil þó benda á það, að þeir, sem heilbrigðismálunum stjórna, hafa haldið því fram, að þjóðin eigi að neyta grænmetis og ávaxta, því að það sé svo hollt, og efast ég ekki um, að það sé rétt. En ber eru stjórnarvöldin að því er virðist að gera grænmeti og ávexti að lúxusvöru, sem ég get ekki ímyndað mér, að nokkur maður geti keypt, ef þetta frv. verður samþ., svo hár er tollurinn, sem gert er ráð fyrir, að lagður verði á þessa fæðutegund. Hér er gert ráð fyrir, að 25% tollur verði á nýjum ávöxtum, en sá tollur, sem nú er á þeim, er 20% vörutollur af því algengatta af þessum vörum, svo sem eplum og appelsínum. Þegar þessum 25% tolli er svo bætt þarna við, þá vantar lítið á, að ríkið taki 50% af innkaupsverði þessarar vöru. Sjá þá allir, hversu líklegt það er, að menn geti veitt sér þessa fæðu, sem læknar eru alltaf að ráðleggja og halda fram, að sé mjög svo holl.
Ég verð að segja það, að þegar jafnþunglega er tekið í nauðsynlegustu fjárframlög eins og nú á sér stað hjá hæstv. stj. um fjárframlög til þeirra staða, þar sem framleiddur er stór hluti af útflutningsvöru landsmanna, elns og á sér stað í mínu kjördæmi, þá eru það harðar búsifjar, að verða að horfa á það, að um leið sé afkoma þess fólks gerð eins erfið og hér á að gera með þessum nýju skattaálögum ofan á allt, sem fyrir er.
Ég get ímyndað mér, að spádómur hv. þm. Snæf. reynist réttur, sá spádómur, að hér muni fólkinu þykja vera farið langt yfir það mark, sem hæfilegt er í hvorumtveggja þessum skattaleiðum, sem frv. fjallar um, því þótt þeir séu margir, sem ímynda sér, að þessi svokallaði hátekjuskattur komi ekki niður á verkamönnum og sjómönnum, þá mættu þó a. m. k. sósíalistar vita, að það er óhrekjanleg staðreynd, að því meir sem skattaboginn er spenntur á því sviði, því erfiðara er um allar atvinnuframkvæmdir, og því tregari eru menn til að láta fé sitt, lánstraust og þrek til að brjótast í framkvæmdum, sem hafa mikla áhættu í för með sér, þegar svona þungur skattur er yfirvofandi, ef eitthvað skyldi vera í aðra hönd. Atvinnulífið stendur svo höllum fæti, að flestum verður miklu vísara tap en gróði, en ef svo vill til, að einhversstaðar kynni að vera um gróða að ræða, þá eru gerðar ráðstafanir til þess, að hann verði í öllu falli burt numinn. Hvernig ætlast menn til, að framtakslöngun manna og framtaksþrek til að brjótast í framkvæmdum geti haldizt við á þennan hátt?
Nei, það er alveg áreiðanlegt, að eins og nú er komið, þá er hér verið að kippa fótunum undan því, að menn yfirleitt ráðist í nokkuð, sem kostar þá persónulega ábyrgt, og tel ég það mjög illa farið. Það er t. d. dálítið eftirtektarvert tímanna tákn, að það var dregið fram í eldhúsumr. hér af hæstv. atvmrh. sem einhver sérstaklega merkilegur viðburður, að nokkrir menn hefðu tekið sig saman um að ráðast í að kaupa einn gamlan togara. Fyrir nokkrum árum var það þannig hér, að það var nærri því kapphlaup um að komast í að leggja fé fram til þess að kaupa þessi skip. En misjafnt árferði og skattastefna valdhafanna hefir komið því til leiðar, um leið og þrengzt hafa útlendir markaðir, að nú er það talinn stórviðburður af atvmrh. sjálfum, ef einhver ræðst í að kaupa eitt skip, jafnvel þó að það sé gamalt.
Ég ímynda mér því, að þessi skattastefna, gangandi út í þær öfgar, sem hún gerir með þessu frv., auki aðeins á framtaksleysi manna og auki þar með á atvinnuleysið.
Ég gat um það í sambandi við unnað mál í þessari d., að það, sem stj. gæti bezt gert þjóðinni til handa, væri að rýmka, auka og glæða atvinnuskilyrðin í landinu. En með því, sem hér er haft með höndum, en þó einkum og sér í lagi með þessu tekjuaukafrv., sem hér er kallað til bráðabirgða, er unnið að því að atvinnuframkvæmdir minnki í landinu, en atvinnuleysi stórum aukist. Um leið er svo stillt svo til af hálfu hæstv. stj., að þeir, sem eiga nú við atvinnuleysi að búa, verða að gjalda drjúgum meira gjald fyrir flestar lífsnauðsynjar á komandi erfiðum tímum en þeir hingað til hafa átt að greiða.
Ég tel mér skylt f. h. þeirra manna, sem hafa kosið mig á þessa virðulegu samkomu, að mótmæla þessu skattafyrirkomulagi stj. og stjórnarflokkanna. Ég mótmæli auknum skattaálögum og tel, að það sé algerlega spor í öfuga átt á þessum tímum að ganga þá leið. Ég krefst þess f. h. minna kjósenda, að létt verði af atvinnuvegunum gjöldum, en ekki þyngt á þeim, og ég krefst þess fyrir hönd fólksins, að nauðsynjavörur verði ekki hækkaðar í verði með auknum tollum og sköttum. Það er engin bót í máli í því efni, þó að þessir auknu tollar séu kallaðir nýju nafni og nefndir viðskiptagjald, og það er heldur engin bót í máli, þó að sé flaggað með því hér, að þetta sé aðeins til bráðabirgða, þar sem það er augljóst af efni frv. sjálfs, að það er ekkert annað en blekking.