09.12.1935
Neðri deild: 94. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1852 í B-deild Alþingistíðinda. (2828)
192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Jakob Möller:
Það var aðeins út af innskoti hæstv. fjmrh. inn í ræðu mína áðan, þar sem ég var að bera saman skattstigann samkv. núgildandi l. og samkv. þessu frv. á tekjum frá 2000 kr. og upp í 6000 kr., og sagði hæstv. ráðh., að munurinn á þessu tvennu væri 10% viðaukinn, sem leyft hefði verið að leggja ofan á skattinn. Ég sagði, að til þess að leggja hann ofan á þyrfti sérstaka heimild í l., en ég hafði þá ekki tíma til þess að fletta þessu upp, svo að ég gæti sýnt það svart á hvítu. En nú hefi ég gert þetta, og vil ég biðja hv. þm. að veita því athygli, að í tekjuskattslögunum frá 9. jan. 1935, síðast í kafla VI. í 55. gr., stendur þetta ákvæði til bráðabirgða: „Ríkisstj. er heimilt að innheimta tekju- og eignarskatt álagðan 1935 með 10% viðauka“. Það þurfti því að endurnýja hann, en það hefir ekki verið gert. Það þurfti sérstaka lagasetning til þess að fá þessa heimild. Hæstv. ráðh. virðist þá fullkomlega hafa fylgt dæmi vissrar persónu, sem hann virðist hafa tekið sér til fyrirmyndar. En um þá persónu er það sagt, að hún hafi það fyrir sið, þegar henni er réttur litli fingurinn, að taka alla höndina. Hæstv. ráðh. var það ekki nóg að taka litla fingurinn, sem honum var réttur með tekjuskattsl. frá síðasta þingi, heldur tók hann alla höndina, með því að færa þetta í nýtt frv. og stórhækka skattinn. Ég býst því við, að það verði ekki annað sagt heldur en hæstv. fjmrh. standi þessari fyrirmynd sinni fyllilega á sporði.