13.12.1935
Neðri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1868 í B-deild Alþingistíðinda. (2835)
192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Ég ætla að byrja á því að svara nokkru hv. þm. G.- K. En flest atriðin í ræðu hans hafa komið fram áður í þessum umr., annaðhvort frá honum eða flokksmönnum hans, sem deilt hafa á frv. við 1. umr. Ég mun því ekki minnast nema á sum þessara atriða.
Hann kvað ástæðu til að véfengja áætlun grg. um tekjurnar af þessum ráðstöfunum. Tilfærði hann í því sambandi orð, sem atvmrh. viðhafði í viðtali við Alþýðublaðið, og sagði, að af þeim mætti ráða annað en það, sem ég upplýsti. Hv. þm. byggði þetta á því, að hæstv. atvmrh. hefði skýrt blaðinu frá því, hve hátt innflutningsgjald væri áætlað af innfluttum vörum í ýmsum gjaldflokkum. En hæstv. atvmrh. lagði til grundvallar fyrir þeim útreikningi cif-verðið og fær því hærri tölu en ég til að miða við. Hinsvegar er tollurinn reiknaður af fob-verðinu. verður því að draga frá cif-verðinu allháa upphæð til þess að finna þá tölu, sem tollurinn er reiknaður af. Þessi upphæð í frv. er byggð á 38 millj. kr. innflutningi. Eftir að þessi áætlun hafði verið gerð, fór tollstjóri yfir allt saman, til þess að athuga, til hvaða fob-verðs þetta svaraði, og hann fékk einmitt þær tölur, sem ég lagði til grundvallar.
Síðan hæstv. atvmrh. gaf þessar upplýsingar hefir nokkuð af vörum verið fært milli flokka. T. d. voru síldartunnur og efni í þær lagðar undir 2% gjaldið, en nú hefir ráð verið leiðrétt.
Hv. þm. vítti mig fyrir, að ég hefði ekki gefið n. þeirri, sem um málið fjallaði, upplýsingar um þetta. ég skil ekki þessa gagnrýni hv. þm., því að hann og hv. 3. þm. Reykv. mættu ekki á þeim eina fundi n. um málið, sem boðaður var. En ég lét form. n. í te þá útreikninga, sem ég hafði gert, svo að því fer fjarri, að n. hafi ekki haft aðstöðu til að kynna sér, á hverju þeir eru byggðir.
Ég tel, að með 38 millj. kr. innflutningi sé ekki gerlegt að áætla gjald þetta hærra en 750 þús. kr. Það er því fjarri sanni, að hér sé verið að blekkja þingið til að samþ. hærri toll en þeir hafa hugmynd um, að felist í frv., eins og hv. þm. gefur í skyn.
Þá get ég ekki látið hjá líða að minnast á það, sem hv. þm. sagði um skattahækkanir mínar. Hann sagði, að stj. hefði hækkað skattana um 3 millj. kr. Ég hefi nú sýnt fram á, að þessi hækkun leiðir til þess, að ríkissjóður heldur sömu tekjum og hann hefir haft. hér er því ekki verið að seilast til hærri upphæða af þjóðinni en áður. Ég skil ekki, hvernig sjálfstæðismenn geta alltaf verið að stagast á þessu. Þar, sem þeir hafa ráðið, hafa þeir sjálfir farið miklu lengra en hér er farið, t. d. í Reykjavík. Ef við áttum að fara eftir sömu stefnu og þar hefir verið höfð, ættum við ekki að krefjast 15 millj., heldur 31 millj. af þjóðinni. Þessa pólitík sína í Reykjavík afsaka þeir með því, að ríkið taki svo mikið af Reykvíkingum. En það er ekki rétt. Það gagnstæða kemur í ljós, ef betur er að gáð. Á undanförnum árum hefir ríkið létt undir með Reykjavíkurbæ, með því að leggja til atvinnubótafé, sem ekki var áður gert ráð fyrir í l. Þar með hefir ríkið létt miklu af fátækraframfærslunni af bænum.
Hv. þm. G.-K. og hv. 6. þm. Reykv. núa stj. því um nasir, að hún taki meira úr vösum þjóðarinnar en áður hefir verið gert. Ég ætla, að ég hafi nú sýnt fram á, að þar, sem þeir eru við völd, þar fara þeir helmingi lengra en núv. stj. í því efni.
Þá spurðu þessir tveir hv. þm., hvers vegna þetta frv. væri kallað bráðabirgðatekjuöflunarfrv. og hvernig þetta ætti að verða í framtíðinni. Þetta kom líka fram við 1. umr. frá hv. þm. Snæf., og ég svaraði því þá, en þeir virðast ekki hafa heyrt það. Mér þykir líklegt, að núv. tekjustofnar ríkissjóðs geti staðið undir gjöldum ríkisins á venjulegum tímum. En hvenær þeir tímar koma aftur, um það skal ég engu spá. Og eins og útlitið er nú, kæmi mér það ekki á óvart, þó að á næsta þingi yrði að framlengja þessa tekjuöflunarheimild. En með hliðsjón af því, að núv. tekjustofnar gætu staðið undir greiðslunum í venjulegu árferði, þótti rétt að kalla þetta bráðabirgðatekjuöflun. Hv. 6. þm. Reykv. kallaði þetta fals eitt, af því að þessi tekjuöflunarleið átti aðeins að vera til bráðabirgða. En slíkt er hvorki einsdæmi né óþinglegt. Ég man ekki betur en að á þinginu 1924, þegar Jón heitinn Þorláksson var fjmrh., væri samþ. frv. til l. um verðtoll, sem átti að vera til bráðabirgða, en varð ekki til bráðabirgða. Þó var engin fölsun, sem lá til grundvallar fyrir því að kalla það bráðabirgðaákvæði. Vonir manna stóðu til þess, að ekki þyrfti að hlíta þessum ákvæðum nema til bráðabirgða, en þær vonir rættust ekki. Þetta var alls ekki hægt að kalla fásinnu eða fölsun. Ég man ekki betur en þessi verðtollur hafi í meginatriðunum staðið síðan, þó hann hafi ef til vili eitthvað lækkað. Það munu vera til fleiri dæmi um, að svipað hafi átt sér stað, og má þar m. a. nefna toll, sem settur var á kaffi og sykur nokkru eftir síðustu aldamot.
Hv. þm. G.-K. spurði að því. hvernig ætti að fara að, þegar hátekjuskatturinn hefði eyðilagt allan grundvöll fyrir því, að hægt væri að fá tekjuskatt í framtíðinni. Ég veit ekki, hvort þessi spurning hefir verið sett fram í alvöru. Ég held ekki, að hann geti hugsað, að 200 þús. kr. ný tekjulind ríkissjóðs því það, sem ætlað er sveitar- og bæjarsjóðum, er ekki nýr tekjuskattsauki, það hefði hvort eð var komið fram í útsvörum) geti í raun og veru haft þessi áhrif. Ég held, að þótt þessar 200 þús. kr. komi til frádráttar með þeim 40% viðauka, sem við höfum átt svo skemmtilegar umr. um hér fyrr, þá muni niðurstaðan verða sú, að meðalskattur á tekjur á þessu bili fari alls ekki fram úr 20%, og sannleikurinn er sá, að hann mun ekki einu sinni reynast svo hár.
Þá talaði hv. þm. G.-K. um, að það væri að koma aftan að mönnum, þar sem þessi skattauki væri lagður á svo seint á árinu, að menn væru búnir að verja tekjum sínum til annars, og hefðu ekki gert áætlanir fyrir því að þurfa að mæta þessari nýju skattaukningu. Það getur vel verið, að það hefði verið æskilegra, að þetta hefði komið fyrr fram. En þessum hv. þm. ferst ekki djarft úr flokki að tala. Ég man ekki betur en hann stæði að því á þingi 1933 að leggja 40% viðauka á skattupphæð ársins á undan, og sé það að læðast aftan að mönnum að setja á þann skattauka, sem nú er rætt um,
þá er hitt ekki síður, (ÓTh: Ég man ekki eftir, að ég greiddi atkv. með því). En hann lánaði því sína aðstoð og sitt lið, því það verður að álíta, að herforinginn beri ábyrgð á hermönnunum. (ÓTh: Ég var ekki formaður flokksins þá). Jæja, eða sá, sem þá var form. flokksins.
Þá sagði hv. þm. G.-K., að það væri alrangt að halda því fram, að þessi tekjuöflun kæmi ekki niður á framleiðendum. Ég hefi gert grein fyrir þessu áður, svo ég skal lítið fara út í það nú. Hann sagði, að þetta kæmi beint niður á framleiðslunni þegar neyzluvörur þeirra manna hækka, sem framleiðendur fæða, þ. e. a. s. þegar kaup er að nokkru leyti goldið í fæði. Ég játa það, að þetta er að vissu leyti rétt. Í þessu kemur verðhækkunin niður á framleiðendum, en ekki af því að þeir eru framleiðendur, heldur af því að þeir nota neyzluvörur eins og aðrir.
Ég lagði áherzlu á það, að allar vörur, sem beinlínis eru notaðar til framleiðslunnar, eru undanþegnar aðflutningsgjaldinu, og að tekjuskattsaukinn kemur ekki niður á smáframleiðendum, og líklega ekki heldur niður á stórframleiðendum, því þeir geta dregið frá töp undanfarandi ára. Ennfremur benti ég á það, að allt það fé, sem fæst með þessari tekjuöflun, á að nota til þess að létta undir með smáframleiðendum, og benti í því sambandi á þær greiðslur, sem ætti að inna af höndum með þessu fé, svo sem til nýbýlamyndunar, til skuldaskilasjóðs útvegsmanna, til mjólkurbúa og til vaxtagreiðslu af fasteignaveðslánum bænda o. fl., og til trygginga, sem koma framleiðslunni til góða. Og þótt það megi segja aðeins í því tilfelli, sem hv. þm. G.-K. benti á, að þetta komi beint niður á framleiðendum, þegar þeir hafa fólk í vinnu, sem fær frítt fæði, þá munar það svo litlu, að ekki er um það talandi, þegar allar vörur, sem beinlínis eru notaðar til framleiðslunnar eru undanþegnar, og þegar það fé; sem með þessu fæst gengur til þess fyrst og fremst að styrkja smáframleiðsluna.
Hv. þm. G.-R. talaði líka um gengislækkun, og mér skildist, að hann væri henni hlynntur. Hann sagði, að þessi skattálagning væri í raun og veru gengislækkun. Hann má auðvitað nota yfir þetta hvaða orð sem hann vill, en vitanlega er þetta ekki gengislækkun. En hann sagði, að það sem skildi á milli venjulegrar gengislækkunar og þessarar, sem hér væri á ferðinni, væri það, að venjuleg gengislækkun kæmi atvinnuvegunum til góða, en þessi gengislækkun væri aðeins til hagnaðar fyrir ríkissjóð. En nú hefi ég sýnt fram á það, að þetta hefir þann kost til að bera, að tekjurnar ganga ekki til ríkissjóðs eftir venjulegum skilningi, heldur fara þær til þess að styrkja smáframleiðendur og auka framleiðsluna. Auk þess vil ég benda hv. þm. á það, ef hann telur gengislækkun til bóta fyrir framleiðsluna, að athuga, að vitanlega verkar gengislækkun eins og tollar með það að gera dýrari hverja þá vöru sem framleiðendur þurfa að nota, og gengislækkun kemur fram á þann hátt að allar vörur, sem til framleiðslunnar þarf, verða dýrari; en þessi skattur gerir ekkert dýrara af því, sem til framleiðslunnar þarf, nema þann sáralitla hluta af vörum, sem þeir framleiðendur þurfa að nota, sem hafa í þjónustu sinni menn, sem þeir láta hafa fritt fæði.
Þá vil ég lítið eitt minnast á ræðu hv. 2. landsk. Hann benti á, að sér fyndist óeðlilegt að innheimta skattinn fyrir sveitar- og bæjarfélögin eins og gert er ráð fyrir í þessu frv. Þetta er sett inn til samkomulags á milli stjórnarflokkanna, og get ég ekki fallizt á að fella það niður, en ég get bent á það, að ég sé ekkert á móti því, að farið sé eftir þeirri till., að sýslufélögin og bæjarfélögin njóti skattsins, en ekki hrepparnir.
Mér fannst kenna nokkurs misskilnings hjá hv. þm., þegar hann var að tala um, af hverjum þessi hátekjuskattur yrði heimtur og að byrjað væri að leggja á of lágar tekjur, þar sem miðað væri við 6000 kr. árstekjur. Ég vil þess vegna skjóta því fram, að þessar 6000 kr. eru alls ekki lágar tekjur, þegar þess er gætt, að hér er talað um skattskyldar tekjur, og ef miðað er við fjölskyldumann, þá mun hann þurfa að hafa á milli 8 og 9 þús. kr., og þó nær 9 þús. kr. árstekjur til þess að hafa 6 þús. kr. skattskyldar tekjur. Það er alls ekki svo, að venjulegum embættismönnum sé íþyngt með þessu frv., en ef lágmarkið er fært upp í 8 þús. kr. skattskyldar tekjur, þá hittir þessi skattauki ekki aðra en þá, sem hafa 11 þús. kr. árstekjur eða þar yfir. Ég tel það þess vegna eðlilegt að byrja við 6 þús. kr. skattskyldar tekjur, eins og lagt er til í frv.
Ég heyrði það á ræðu hv. 6. þm. Reykv., að 1. gr. frv. hafði farið í taugarnar á honum, og get ég í raun og veru skilið það út af fyrir sig. því gr. er sett í frv. til þess að leggja áherzlu á það í löggjöfinni sjálfri, að þessi tekjuöflun er ekki gerð til þess að standa undir venjulegum gjöldum ríkissjóðs, heldur til nýrra framlaga, sem sumpart voru samþ. á fyrri hluta þessa þings og sumpart á þessum hluta þingsins. Ég vil leggja áherzlu á það, að eldri tekjur ríkis sjóðs munu nægja til þess að standa undir eldri greiðslum eftir að niðurfærsla hefir verið gerð samkv. till. hv. fjvn., og að þessara nýju tekna þarf ekki við til þess.
Hinsvegar kemur þetta ákvæði sér illa fyrir stjórnarandstæðinga, því það eyileggur tilraunir þeirra til að gera þennan skatt óvinsælan með því að þessara tekna sé aflað til þess að hafa þær fyrir venjulegt eyslufé handa ríkissjóði. Ég tók það fram við 1. umr., að það mundi vera auðvelt að gera þennan skattauka óvinsælan hjá þeim, sem hann kemur niður á, með því að fella undan að tala um það, hvað það er, sem fæst í aðra hönd, ef ekki væri gerð grein fyrir því í frv. sjálfu. 1. gr. gerir það erfiðara, að slíta í sundur ákvæðin um álagningu skattsins og þau fríðindi, sem þjóðin fær fyrir þennan tekjuauka, og koma við falsrökum. Það er af þessari úrsök, sem hv. 6. þm. Reykv. er illa við 1. gr., og þess vegna er ég ekki hissa á því, þótt hann flytji till. um að fella þetta burt og setja í þessa stað ákvæði, sem gefa ranga hugmynd um það, til hvers þessir nýju tekjustofnar eiga að notast. Það mundi verða ólíkt þægilegra fyrir stjórnarandstæðinga að gera þjóðina óánægða með þessa nýju tekjuöflun, ef þeir gætu fengið lætt inn þeim skilningi, að hún væri gerð til þess að fá venjulegt eyslufé handa ríkissjóði, en þeir treysta sér ekki til þess að fá þjóðina til að verða þessu mótfallna, ef hún fær jafnframt að vita, til hvers það er, sem þessum peningum á að verja. vegna þess að hv. þm. finnur vanmátt sinn í þessu efni, vill hann ná þessari skilgreiningu út úr frv.
Að lokum vil ég svo minnast á brtt. hv. 6. þm. Reykv. um það, að undanþiggja vélar til nýs atvinnurekstrar. Ég álít, að ekki sé hægt að samþ. hana eins og hún liggur fyrir, m. a. vegna þess, að ákveðið er svo ónákvæmt, að ekki er hægt að hafa slíkt í tollalögum. Ég hefi borið þetta undir tollstjórann í Reykjavík, og hann álítur ekki gerlegt að hafa slíkt ákvæði í tollalögum. Auk þess er það um þetta gjald að segja, að það er ekki nema 2% af þeim vélum, sem ekki eru beinlínis undanþegnar, og þetta gjald er svo lágt, að það munar þá sama sem engu, sem hlut eiga að máli. Líka má benda á það í þessu sambandi, að með frv. til l. um breyt. á verðtollsl., sem nú nýl. var afgr., hefir verið felldur niður verðtollur af vélum til atvinnurekstrar.
Það er svo fjarri því, að núv. þingmeirihluti vilji íþyngja tolli á vélum til atvinnurekstrar, að jafnvel þó þetta 2% gjald sé samþ., þá stórlækkar tollur á mörgum vélum til nýs atvinnurekstrar með því frv. um breyt. á verðtollsl., sem samþ. var nú nýafstaðið.
Ég skal svo ekki lengja umr. meira. Ef til vill hefi ég skilið eftir eitt eða tvö atriði í ræðu hv. þm. G.-K., en það er þá af því, að ég hefi svarað þeim í fyrri umr. um málið og sé enga ástæðu til að endurtaka það hér.