13.12.1935
Neðri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1886 í B-deild Alþingistíðinda. (2842)
192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Sigurður Kristjánsson [óyfirl.]:
Hæstv. fjmrh. seildist nokkuð langt aftur í tímann áðan, þegar hann var að verja það athæfi stjórnarflokkanna að demba nú á aukaverðtolli. Hann skaut sér undir það, hæstv. ráðh., að þetta sama hefði Jón heitinn Þorláksson gert 1924. Það er rétt, að árið 1924 var lagður á nýr verðtollur, sem má vel vera, að hafi verið kallaður bráðabirgðatollur þá, sem hann og líka var að miklu leyti. En að kalla þann toll bráðabirgða toll, eins og hér er gert, sem beinlínis er lagður á til þess að standa undir föstum útgjöldum, er hreinasta rökvilla. Allt öðru máli gegnir aftur um tollhækkunina, sem gerð var 1934; hún var beinlínis sett til þess að losa ríkið við hinar miklu lausaskuldir, sem þá ógnuðu því og komnar voru yfir 5 millj. króna, því að lög, sem sett eru til þess að greiða með lausaskuldir, geta verði bráðabirgðalög, því að lausaskuldirnar ganga yfirleitt ekki aftur, eða a. m. k. gerðu þær það ekki hjá þeirri stjórn, sem með völdin fór 1924. Enda varð það svo, að þessi umræddi tollur var eftir 2 ár færður allmjög niður, því að þá höfðu lausaskuldirnar að mestu leyti verið greiddar upp. hér var því með fullum rétti hægt að tala um bráðabirgðatoll, þar sem það var notað til þess að greiða gjöld, sem ekki voru varanleg frá ári til árs og í þessu tilfelli var að mestu létt af eftir 2 ár.
Þá sagði hæstv. fjmrh., að brtt., sem ég hefi borið fram við 1. gr. frv. og er á þá leið, að segja rétt til um það, til hvers þessi nýi tollur væri lagður á, myndi, ef hún yrði samþ., algerlega geta falska hugmynd um það, sem frv. fer fram á. Ég fæ nú alls ekki skilið, hvernig hæstv. ráðh. ætlar að rökstyðja þetta, — því að er þessi skattur kannske ekki lagður á til þess að ekki verði halli á ríkisrekstrinum? Það er vitanlega alveg sama, til hvers þeir peningar, sem hann gefur í ríkissjóðinn, eru notaðir. Þeir ganga til almennra þarfa hans. Það mætti t. d. alveg eins segja, að það ætti að nota þá til þess að greiða kostnað af lögreglumálum, styrk til Eimskip o. fl. o. fl. eins og að segja, að þeir eigi að ganga til þess, sem upp er talið í frv. En það er bara ekki venjulegt að segja í lögum, að þessi króna skuli ganga til þessa og til hins. Það er því ekkert nema blekking ein, að segja, að skattur þessi eigi að ganga til þessa og þessa, eins og gert er í frv. Það er svo sem ekki verið að byrja frv. á því að lagður skuli á tollur, heldur stendur: „til þess að greiða“ þetta og hitt. Byrjunin er því sannarlega óvenjuleg, sem stafar ekkert af öðru en því, að stjórnarflokkarnir eru hræddir við þetta athæfi sitt. Þeir eru hræddir við kjósendurna, og þora því ekki að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir, og reyna því að blekkja landsfólkið með því, að það eigi að fá þetta og hitt fyrir þetta fé. En ég vil nú spyrja: Halda þessir herrar, að eftir allar þær umr., sem búnar eru að vera um þennan skatt, bæði hér á Alþingi, í útvarpinu og í blöðunum, að fólkið sjái ekki í gegnum þennan svikavef? Jú, fólkið sér þetta, og stj. stendur nakin fyrir landslýðnum í þessu máli, eins og svo mörgum öðrum. Allar yfirhylmingar hennar eru eins og fíkjublað eitt. Og það er trú mín, að þau hjónin, Framsókn og Alþfl., verði skopleg með fíkjublaðið fyrir framan sig, þegar þau á sínum tíma þurfa að fara að gera þjóðinni skil þessara hluta. Ég held, að bezt væri fyrir þau að taka fíkjublaðið frá og láta sjá sig í allri sinni nekt.
Þá vil ég í þessu sambandi sérstaklega mótmæla því, að þessi nýi skattur eigi að vera til þess að létta undir með atvinnuvegunum. Þó skal ég ekki fara langt út í þær sakir, því að það hefir þegar verið gert af öðrum, sem talað hefir á undan mer. því verður alls ekki mótmælt, a. m. k. ekki með rökum, að þessi álagning liggur bæði beinlínis og óbeinlínis á atvinnuvegunum. Því til sönnunar, að þessi nýi skattur eigi að vera til þess að létta undir með atvinnuvegunum, eru taldir upp í grg. frv. 10 útgjaldaliðir, sem greiðast eiga með þessu fé og nema alls 960 þús. króna. En eftir áætlun stj. eru þessar nýju álögur þó áætlaðar yfir 1 millj., eða 1150 þús. Af þessu fé eiga svo 200 þús. að ganga til kaupstaðanna og verða þá eftir um 950 þús., sem ríkissjóður fær. En nú hafa verið færðar sterkar líkur fyrir því, að gjaldið muni allt koma til með að nema um 1,4 millj. Verða þá um 1,2 millj., sem renna í ríkissjóðinn. Af þeim 10 útgjaldaliðum, sem taldir eru í frv., hafa 6 verið teknir upp í fjárlagafrv. eins og það liggur fyrir nú. Ég vil nú alls ekki sleppa stj. við að skýra það fyrir þingheimi, hvernig á þessu standi og hvort hún haldi í raun og veru, að það þurfi a. m. k. 950 þús. til þess að standa undir þeim 4 liðum, sem eftir eru af þessum 10. Mér virðist, að ekki nái nokkurri átt, að til þess að standa undir þeim þurfi hart nær 1 millj. kr. Það er því ekkert undarlegt, þó að menn haldi, að stj. ætli að nota mikinn hluta þessa fjár til þess að sulla með til ýmsra gæðinga sinna. Að þetta eigi að vera til þess að létta undir með atvinnuvegunum, eins og hæstv. stj. vill telja fólkinu trú um, er vitanlega fjarstæða. Til alþýðutrygginga eiga t. d. að ganga 200 þús. Ekki er það til þess að létta undir með atvinnuvegunum. Það er þvert á móti til þess að leggja þeim auknar byrðar á herðar. Þá eiga 200 þús. að ganga til nýbýlamyndunar. Dettur nú nokkrum lifandi manni í hug, að það geti orðið til að létta undir með atvinnuvegunum, þó að fáeinum mönnum verði ef til vill gert kleift að reisa bú í sveit, og það í mjög smáum stí? Það eina, sem hægt er að telja, að ganga eigi til atvinnuveganna, eru 23 þús. til fóðurtrygginga og 30 þús. til styrktar aukinni kartöflurækt, eða 55 þús. alls. Alstaðar er því reynt að blekkja með þessu frv.
Mér kom það annars nokkuð óvart, hvernig hæstv. fjmrh. tók undir þessa einu brtt. mína, því að í sannleika sagt hélt ég, að hún gæti ekki valdið ágreiningi. Það má vel vera, að hæstv. ráðh. sé illa við að slíta af sér fíkjublaðið á meðan hann heldur, að það geti hulið einhverja blygðun.
Þá komu mér og á óvart undirtektir hans undir það, að undanþiggja þessu gjaldi vélar, sem notaðar eru til atvinnurekstrar. Að ekki sé hægt að sanna, hvaða vélar séu notaðar til atvinnurekstrar og hverjar ekki, eru vitanlega firrur einar. Ég býst t. d. við, að þeim, sem byggðu verksmiðjuna á Djúpuvík við Húnaflóa síðastl. sumar, hefði verið innan handar að sanna, til hvers þeir ætluðu að nota vélar þær, sen: þeir fengu innfluttar. — Þá vildi hann ennfremur halda því fram, að það hefði ekki þýðingu að undanþiggja þessar vélar gjaldinu, af því að það munaði svo lítið um það. En þetta er bara alls ekki rétt. Vélar eru yfirleitt ákaflega dýrar. Ég held t.d., að vélarnar í verksmiðjuna við Djúpuvík hafi kostað um 300 þús. króna.
Þá vil ég í þessu sambandi geta þess, að maður, sem ætlaði að koma upp verksmiðju til þess að vinna úr karfa og öðrum sjávarafurðum, var um daginn mjög hugsjúkur yfir því, að þessi nýi skattur myndi verða svo mikill á þeim atvinnurekstri, að hann beinlínis myndi verða til mikilla erfiðleika. Ég er viss um, að þessum mönnum mun þykja það talsvert mikið atriði, hvort velar til þessa atvinnurekstrar eru skattlagðar enn á ný. Og það er aldrei of varlega farið fyrir þjóðina, sem á við miklar atvinnuleysisþjáningar að etja, að leggja ekki steina í götu nýs atvinnurekstrar. Ég held því, að það sé mjög misráðið að standa gegn þessari sanngjörnu tillögu.
Ég var búinn að lofa því, að tefja ekki tímann með því að fara út í einstök atriði frv., og ég ætla að standa við það. En í viðbót get ég þó enn sagt það um þá firru hæstv. fjmrh., að þetta tekjuöflunarfrv. snerti ekki atvinnuvegina, að ég vil minna hann sérstaklega á það persónulega, að einmitt úr hans eigin kjördæmi hafa komið mjög ákveðnar óskir og hjálparbeiðnir til ríkisstj. um, að ríkið styðji atvinnureksturinn í sjóþorpunum, til þess að hægt sé að halda þar lífinu í fólkinu. Ég hygg, að ríkisstj. hafi ekki séð sér fært að sinna þessum tilmælum, og að svarið til þeirra, sem áreiðanlega eru mjög hjálparþurfi, hafi verið það, að ríkið gæti enga hjálp veitt þeim til viðreisnar atvinnurekstrinum; hvorki útvegað þeim lán né veitt ríkisábyrgð fyrir lánum í því skyni. Nei, en ríkisstj. hefir tilkynnt þeim, að þeir gætu fengið annað; hún hefir sagt, að þeir gætu fengið nýja viðbótarskatta og tolla. Það eru kuldaleg svör og þurrar kveðjur til þurfandi manna.