13.12.1935
Neðri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1905 í B-deild Alþingistíðinda. (2852)
192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Páll Zóphoníasson:
Nú hafa tveir þm., hv. þm. G.-K. og hv. 6. þm. Reykv., verið að tala hér um, að þeir hafi ekki haft aðstöðu til að rannsaka mál í n. Út af þessu vil ég segja það, að þetta er rangt. Og þegar það kemur frá þm. Sjálfstfl., þá þykir mér það hart, því að hvað eftir annað hefir orðið að fresta að taka afstöðu í málum á nefndarfundi, því að þm. Sjálfstfl. hafa ekki látið sjá sig. Ég nefni ekki nöfn. En meðal grg., sem fylgja frv. á þingi, er heill hópur, sem afgr. eru frá n. til þingsins, þar sem tekið er fram, að þau hafi verið afgr. án þess, að þessi og þessi þm. hafi verið mættur. Þegar svo þessir þm. koma og segjast ekki hafa fengið aðstöðu til að rannsaka málin, þá kemur það úr hörðustu átt. Ég vil því í bróðerni mælast til þess við hv. form. Sjálfstfl., að hann vandi um við hv. þm , svo að við þyrftum ekki að bíða með málin á nefndarfundum eins og tvo og jafnvel fjóra og fimm daga, og síðast afgreiða þau án þess að allir hafi verið mættir. Og þá fyrst geta þeir, sem talað hafa hér um, að þeir hafi ekki nægilega getað sett sig inn í málin, haft ástæðu til að halda því fram, ef þeir sækja nefndarfundi og þingfundi.