13.12.1935
Neðri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1914 í B-deild Alþingistíðinda. (2861)
192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Magnús Torfaaon:
Þetta, sem hv. þm. V.-Húnv. er að tyggja upp, eru staðlausir stafir. Hann getur ekki vitað, hvers vegna ég var kosinn forseti S.-Þ. En ég skal upplýsa um það. Eins og hann mun vita. komst ný stjórn að 1927, og leið svo til þings 1928. Á því tímabili stakk Jónas Jónsson upp á því að láta þessa tign ganga milli helztu manna flokksins. En af ástæðum, sem ég vil ekki greina, þá fór nú samt svo, að ég var forseti á þingunum 1928 og 1929, sennilega af því, að ég var kosinn forseti 1927. En að ég hafi sett skilyrði fyrir inngöngu í flokkinn, nær ekki nokkurri átt. Ég hefi engin skilyrði sett, hvorki fyrr né síðar; ég er ekki vanur að selja mig eða mína sannfæringu. Það hafa aðrir sótzt meira eftir því en ég. En þetta sýnir löngun hv. þm. V.-Húnv. til þess að svívirða mig, án þess að ég hafi sagt nokkurt orð honum til hnjóðs, og mun heldur ekki gera.
Þá kemur sá misskilningur fram, að ég hafi tekið mér þessa peninga sjálfur. Eins og ég tók fram áðan, var það greitt með ávísun, sem ég fékk á ríkisféhirði, eftir að hafa talað við þáv. forsrh. Ég get gefið eina ástæðu enn fyrir því, að ég fór fram á að fá fé til siglingar. Ég ætlaði utan mér til heilsubótar, og fór það. Ég var í 1 mánuð hjá lækni í Khöfn, og hann réð mér til að fara suður í lönd. Ég gerði það, og batnaði þó nokkuð. — Nú skilja menn kannske, að það er dálítið annað að ferðast sem þm. eða sem forseti Sþ., og þess vegna þarf meiri risnu en annars. Þetta taldi ég mér ekki skylt að greiða úr eigin vasa, en taldi mér hinsvegar skylt að koma fram eins og staða mín krafði.
Það er langt frá, að forsrh. hefði á móti þessum styrk, þegar við töluðum um þetta okkar á milli, og er ég spurði, hvort hann vildi ekki tiltaka einhverja upphæð, þá sagði hann bara: „Þú ræður því sjálfur“. Þetta var það, sem fór okkar á milli, enda var gott á milli okkar þá og ætíð, og varð ég aldrei var við annað en hann væri þessu fyllilega samþykkur. — Svona liggur í þessu merkilega máli, sem verið er að reyna að núa mér um nasir.
Annars skal ég geta þess, að embættimönnum hefir oft verið veittur styrkur, án þess að eftir væri talið, og ég hafði þá, þegar þetta var, gegnt embætti í hálfan fjórða tug ára, svo að frá því sjónarmiði einu saman er þessi styrkveiting eðlileg. Hvað snertir mín verk, skal ég ekki fara út í hér, en það er ýmislegt, sem ég grennslaðist eftir þá, sem hefir borið og er að bera árangur.
Hv. þm. G.-K. var að fjarskast yfir því í ræðu sinni, að orð mín hefðu verið smáskítlegt aðkast, eða ef ekki, þá a. m. k. óviðurkvæmileg orð, sem ég notaði. Sami þm. var að fjarskast yfir því, að ég hefði leyft mér að minna á það, að Ásg. Ásg. var mágur þáv. forsrh. Ég get ekki séð með mínum bezta vilja, að ég hafi gert honum nokkurn miska með að geta um það, sem allir vissu. Ég þykist vita, að enginn maður sé svo grænn, að hann viti ekki, að þetta hefir sínar ástæður og afleiðingar. Ég býst ekki við, að nokkur maður hafi heyrt eftir mér, að ég á nokkurn hátt hafi lastað eða gert lítið úr framkomu Ásg. Ásg. árið 1930. Þau orð, sem voru um það töluð, fóru því fyrir ofan garð og neðan hjá mér. Mér þykir vænt um að heyra, að hv. þm. G.-K. lætur sér annt um velsæmi þingsins, og vildi, að hann hefði alltaf gert það, og vona, að hann geri það hér eftir. Ég mun reyna að taka eftir því.