17.12.1935
Neðri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1916 í B-deild Alþingistíðinda. (2866)

192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs

Sigfús Jónsson [óyfirl.]:

Meiri hl. fjhn. á hér 2 brtt. við frv. þetta. Af því að frsm., hv. 1. landsk., er forfallaður sökum veikinda, hefir það fallið í minn hlut að hafa framsögu.

Brtt. á þskj. 824 eru fram komnar eftir ósk hæstv. ríkisstj. Aðalbreyt. er sú, að innheimta skuli 8 aura gjald af hverjum benzínlítra, sem innfluttur er á árinu, og sömuleiðis af þessa árs birgðum, að frádregnum eða undanþegnum 300 lítrum. Þessum tekjuauka skal öllum varið til lagningar og malbikunar þjóðvega, og er svo ákveðið, að í Suðurlandsbraut skuli verja 70 þús. kr., til malbikunar vegarins inn að Elliðaám 50 þús. kr., til Hafnarfjarðarvegar 50 þús. kr., til vegar á Holtavörðuheiði 40 þús. kr., til Austurlandsvegar og Geysisvegar allt að 20 þús. kr. til hvors, eða samtals 250 þús. kr., eins og áætlað er, að skatturinn muni nema. Þá er tekið fram, að endurgreiða skuli innflutningsgjald af benzíni því, sem notað er til virkjunar Sogsins. Að öðru leyti gilda ákvæði l. nr. 84 frá 6. júlí 1932, um innflutningsgjald af benzíni.

Heyrt hefir maður ávæning af, að ekki séu allir ánægðir með þessa hækkun, og er það ekki nema eins og við má búast, því enginn þarf að ætla sér að geta gert svo öllum líki. Til að sýna, hvernig skattur þessi er í öðrum löndum, þrír sem hann er alstaðar hærri, skal ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa hér upp úr skýrslu vegamálastjóra:

Benzínverð með og á skatts Skattur

skatti og tolli. og tolls. og tollur.

Ítalía ... 77,62 28,34 49,28

Frakkland ... 65,05 17,85 47,28

Þýzkaland ... 62,69 27,26 35,43

Sviss ... 52,18 27,00 25,18

Belgía ... 45,07 15,56 29,51

Engl. og Wales 34,91 18,48 16,43

Noregur ... 30,43 19,16 11,27

Danmörk ... 30,00 17,00 13,00

Svíþjóð ... 28,91 17,23 11.68

Ef maður tekur Norðurlönd, kemur í ljós, að skatturinn er alstaðar hærri en hér; í Svíþjóð er hann 28,9 aur., en þar er innflutningsverð á benzíni lægst, eða 17,23 aur. Danmörk ein er lægri með innflutningsverð, en þar er skatturinn hærri. eða 13 aur. móti 11,68 aur. í Svíþjóð. Eins og er í l. frá 1932, skal endurgreiða toll af benzíni, sem notað er til annars en rekstrar bifreiða.

Þá er hér önnur brtt. frá meiri hl. fjhn. við 2. gr., að í stað sveitarsjóða komi sýslusjóða. Er hún flutt vegna þess, að í sveitum landsins er lítið um menn, sem lenda í hátekjuskatti, og mundi líið um þann tekjuauka muna fyrir hvern hrepp, en þó kannske fremur, ef hann rynni í þennan sameiginlega sjóð, að hann kæmi að einhverju gagni.

Ég skal svo til að byrja með ekki fara lengra út í þetta, en aðeins geta þess, að það liggja hér fyrir fleiri brtt. T. d. er brtt. á þskj. 829 um heimild til fjmrh. að gefa undanþágu um vélar o. fl., og getur meiri hl. gengið inn á þá till., þar sem aðeins er um heimild að ræða. Þá er viðaukatill. á þskj. 824, frá hv. þm. Vestm., þar sem talað er um að undanskilja viðskiptagjaldi nýtt og þurrkað grænmeti og ávexti. Svipuð till. var felld við 2. umr. í hv. Ed. og meiri hl. fjhn. getur ekki fallizt á hana.

Á þskj. 843 er brtt. frá hv. 2. þm. Reykv., er mælir svo fyrir, að ef tekjur af benzínskatti fari fram úr 250 þús. kr., skuli það lagt í sérstakan sjóð, er gangi síðan til Suðurlandsbrautar árið 1937. Hvað þessa till. snertir, get ég vel samþ. hana.

Skal ég svo ekki orðlengja þetta frekar, nema ef tilefni gæfist til síðar.