09.12.1935
Sameinað þing: 28. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (287)
1. mál, fjárlög 1936
Garðar Þorsteinsson:
Ég á hér eina brtt. á þskj. 727. þar sem ég fer fram á, að Jóni Einarssyni í Rauðhúsum verði veittur 1000 kr. styrkur vegna fávita, sem hann hefir fyrir að sjá. Erindi um þetta var sent hv. fjvn., ásamt erindi frá prestinum í Saurbæjar-þingum, en hv. n. hefir ekki fundið ástæðu til þess að taka þetta til greina. Hér á í hlut mjög fátækur maður, sem hefir orðið að kosta allmiklu fé vegna læknishjálpar o. fl. fyrir þennan ungling, sem nú mun vera 19 ára gamall. Þar sem hér er aðeins um tiltölulega litla fjárhæð að ræða, þá vænti ég þess, að hún verði samþ.
Þá vildi ég leyfa mér að gera þá fyrirspurn til hv. fjvn., hvort hún hafi ekki tekið til athugunar erindi frá hreppsnefnd Ólafsfjarðarhrepps og sýslumanni Eyjafjarðarsýsiu, dags. 20. júní þ. á., þar sem farið er fram á styrk til Ólafsfjarðarhrepps vegna tjóns, er þar varð síðastl. vor af völdum brims og óvenjulegs sjávargangs.
Eins og kunnugt er, urðu Ólafsfirðingar fyrir miklu tjóni vegna ofveðurs þess, sem geisaði um Norðurland fyrri hluta júnímánaðar síðastl. Þeir misstu marga báta, en sérstaklega kom þetta hart niður sökum þess, að tveir bátarnir, sem eyðilögðust, voru óvátryggðir. Eins og sýnt hefir verið fram á í skjölum þeim, sem beiðni þessari fylgja til Alþingis, höfðu hlutaðeigendur ekki haft möguleika á því að tryggja þessa báta. Félag það, sem fyrst var leitað til um vátryggingu á þeim, gat ekki tryggt þá sökum vissra ákvæða í lögum, hafði hreint og beint ekki heimild til þess að tryggja þá. Dróst því sakir þessa og annara orsaka að koma tryggingunni í lag áður en slysið vildi til.
Ég vildi nú mega biðja hv. frsm. fjvn. að upplýsa það, hvort hv. n. hafi tekið þetta til athugunar, því hafi hún ekki gert það, verð ég að bera fram brtt. í þessa átt, en vitanlega æski ég þess helzt, að hv. fjvn. taka þetta mál upp og beiti sér fyrir því.