17.12.1935
Neðri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1923 í B-deild Alþingistíðinda. (2871)
192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Eiríkur Einarsson:
Ég vil taka það fram, að fyrst frv. um aukinn benzínskatt er á annað borð komið fram, þá tel ég það frv. til gildis, að þeim tekjuauka, sem ríkissjóði er aflað með þessum hætti, er varið á þann hátt, sem hér er gert ráð fyrir, sem sé til ýmsra aðkallandi vegagerða, því að væri það ekki gert, þá álít ég, að frv. um aukinn benzínskatt væri með öllu óforsvaranlegt. En þó ég láti þessa getið tekjuöflun frv. til málsbóta, þá fylgja því svo miklar skuggahliðar frá mínu sjónarmiði, að ég tel mjög varúðarvert að ætla því framgang á þinginu. Þessir vegir, sem hækkun benzínskattsins á að fara til, eru allir nauðsynjavegir, enda er hér æðimikið fé, sem til þeirra er ætlað. Auðvitað er hér ekki um annað að ræða en ýmsar þurftarfrekustu framkvæmdirnar í vegakerfi landsins, og það þær sem hvort sem var stóð næst að gera. En það er svo að sjá á fjárl., að ekki sé til fé til þessara vega nema fundnir séu nýir tekjuliðir fyrir ríkissjóð til þess að mæta kostnaðinum. Það vill nú svo vel til, að hæsti liðurinn af þessum nýja benzínskatti á að fara til Suðurlandsbrautarinnar, að upphæð 70000 kr. Náttúrlega er þetta mikil tálbeita fyrir málsvara þess vegar, er vilja mikið í sölurnar leggja. En ég ætla nú fyrst um sinn að hinkra við og gefa enga yfirlýsingu um það, hvort ég með meira að fá þetta fé til vegagerðanna eða annmarkana við að auka benzínskattinn, en þó virðist mér strax að gallarnir megi sín meira. Auðvitað finnst mér þessar 70000 kr. til Suðurlandsvegar í raun og veru ekki neitt há upphæð, samanborið við sumar aðrar fjárveitingar, sem þessi nýji skattur á að fara upp í, þar sem verja á til malbikunar á veginum frá Reykjavík inn að Elliðaám 50000 kr. og til vegarins milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar jafnhárri upphæð, sem sagt 100000 kr. í stutta vegarspotta hér umhverfis bæinn. Ég segi það eins og mér finnst, að þessar 70000 kr. er ekkert rífleg upphæð, þegar litið er á hina miklu þörf á bættum vegi yfir Hellisheiði. Ég segi þetta ekki af því, að ég álíti ekki nauðsynlegt að malbika þessa vegi, eða að höfuðstaðarbúar séu ekki vel að þessari upphæð komnir, þar sem þeir nota svo mikið bíla, sem raun er á og greiða svo mikið í ríkissjóð sem kunnugt er. Þar sem því hefir verið haldið fram, að framlagið til Geysisvegar sé í þarfir Árnessýslu, þá er þess að geta, að því fé er ekki aðallega varið til framkvæmda í þágu Árnesinga, heldur er það, eins og allir vita, fyrst og fremst veitt vegna hins endurvakta Geysis, vegna ferðamanna. Þær 20000 kr., sem til þessa eru ætlaðar, eru því ekki veittar til héraðsins, heldur í sportveg vegna þeirra, er heimsækja Geysi og héraðið.
Þegar benzínskattinum er fært það til málsbóta, að hann sé þrátt fyrir hækkunina miklu lægri en í nálægum löndum, þá álít ég, að sá samanburður sé mjög villandi, enda þótt hann sé hér ekki nema 8 aurar á lítra, en í Noregi og Danmörku 11 aurar á lítra, því það er hvergi nærri sambærilegt með benzíneyðslu og bílslit hér og þar, eða þá með áhættu og öryggi við bifreiðanotkun á óvegunum hér eða hinum rennsléttu vegum í þessum löndum, þar sem hvergi steytir á ósléttu og ferðaáætlanir í tryggu horfi. Slíkt er ekki hægt að bera saman. Og þótt skýrsla okkar ágæta vegamalastjóra sé teoretískt rétt, þá er þessi samanburður á skattinum samt sem áður algerlega villandi, þegar litið er alhliða á málið. ég þekki ekkert hérað á þessu landi, sem hefir eins aðkallandi þörf fyrir bætt vegasamband og Suðurlandsundirlendið hvað snertir leið til markaðsstaðar, og sú þörf er ekki einasta fyrir Suðurlandsundirlendið, heldur einnig fyrir Rvík og Hafnarfjörð, því eins og menn vita, er Suðurlandsundirlendið uppland Rvíkur. En ef á að kaupa þessar vegabætur með mikið dýrara benzíni, þá er það fyrst og fremst tilfinnanlegur skattur fyrir hinar fjarlægari sveitir eystra, því eins og allir vita, eru flutningar þangað ákaflega kostnaðarsamir. Í Grímsnesið, Biskupstungurnar, Hreppa og fleiri sveitir er vegalengdin frá kaupstað 100 km. og yfir það til höfuðstaðarins. Og hvað fer tveggja tonna bíll með af benzíni á 100 km. akstri fram og aftur. Hann fer með 80-100 lítra. Benzínskatturinn í eina slíka ferð yrði þá með 8 aur. á lítra sama sem a. m. k. 8 kr. Má segja um það, að lítið dregur snauðan. Þetta er sísitrandi gjald á fátækan almenning, og glaður getur maður aldrei gengið inn á svo tilfinnanlegt gjald. Ég og mínir líkar verðum því að hugsa okkur vel um, gera það upp, hvort þetta sé ekki allt of þungur skattur fyrir þessa vegabót og fjárins verði að leita á annan hátt.
Því hefir hér verið haldið fram af hv. 2. landsk., að mikið af flutningi til þessara sveita kæmi frá Eyrarbakka. Þetta er nú rétt og ekki rétt, því mikil flutningasambönd eru enn við höfuðstaðinn, eins og raun hér vitni um, þar sem verið er að streitast við að halda uppi daglegum ferðum til höfuðstaðarins, sem er óhjákvæmilegt nú eftir stofnun mjólkurbúanna, og sést einnig, þegar á það er litið, hve benzínskatturinn er tilfinnanlegur. En samkv. því, er ég hefi tekið fram, álít ég, að það hefði verið mjög miklu betra, að sú upphæð hefði fengizt til Hellisheiðar án þess að benzínskatturinn væri hækkaður, með því að fá féð annarsstaðar frá, og ég álít, að það hefði verið hægt, og vil ég í því sambandi vísa til brtt., sem ég og hv. þm. Rang. fluttum við aths. um atvinnubótaféð fyrir árið 1936, þar sem gert var ráð fyrir, að varið væri af því fé 150000 kr. til Hellisheiðarvegar. Ég hefði haft gaman af að heyra gildar ástæður færðar fram gegn þeirri till. Ég sýndi fram á í því sambandi, að meiri ráðdeild væri í því að verja því fé þannig heldur en til þeirra framkvæmda, sem það er fyrirhugað til. Og í þessu sambandi vil ég segja það, að ég tel líka meiri ráðdeild í að verja atvinnubótafénu til vegalagningar á Hellisheiði heldur en fara að leggja á nýjan þungan benzínskatt í sama augnamiði. Ég mun því geyma mér að ákveða nánar atkv. mitt um þessa tálbeitu, þar til ég sé, hver afdrif fær brtt. mín og hv. þm. Rang. við fjárl. um að verja atvinnubótafé til vegagerðar á Hellisheiði.