18.12.1935
Neðri deild: 102. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1960 í B-deild Alþingistíðinda. (2893)
192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Forseti (JörB):
Hv. 3. þm. Reykv. óskaði úrskurðar forseta viðvíkjandi því, hvort brtt. á þskj. 824 myndi geta komið hér til atkv. Taldi hv. þm., að með flutningi slíkrar brtt. væri gengið á snið við ákvæði stjórnarskrárinnar, þau, að frv. hvert skyldi ræða þrisvar í hvorri d. Skildist mér hann telja brtt. þessa svo viðtaka, að hún bryti í bága við ákvæði stjskr.
Í þingsköpum Alþingis er svo ákveðið um meðferð mála, að ef brtt. koma fram, hvort þar eru smáar eða stórar, þá skuli ganga til atkv. um þar út af fyrir sig. Er gert ráð fyrir, að brtt. geti fram komið á hvaða stigi máls sem er. Þó er viðtekið, að ef mál er búið að ganga milli deilda og komið í Sþ., þá má ekki bera fram brtt., sem hafa í sér fólgin önnur atriði en þau, sem verið höfðu til meðferðar í annarihvorri d. - Um meðferð mála og brtt. við þau væri erfitt að ákveða markalínu, sem ávallt skæri úr um það, hvort breytingin bryti í bága við ákvæði stjskr., hvort hún væri það stórfelld eða ekki. En nú eru til fordæmi um, að breytingar af þessu tægi, allróttækar, hafa verið fram bornar á Alþingi, og hefir þá stundum verið leitað úrskurðar forseta um meðferð slíkra till. Hefir þá venjan verið sú, að svo framarlega sem málsatriði voru skyld og ekki horfið frá grundvelli þeim, sem málið stóð á í upphafi, þá hafa þar brtt. komið til atkv. Að undangengnum slíkum fordæmum, tel ég ekki rétt að víkja þessari brtt. frá, sérstaklega þar sem hún fjallar um sama efni og áður hefir verið til meðferðar í sambandi við þetta mál. Því úrskurða ég, að brtt. skuli koma til atkv.