04.03.1935
Efri deild: 16. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1998 í B-deild Alþingistíðinda. (2914)
32. mál, loftskeytastöðvar í skipum
Jón Á. Jónsson [óyfirl.]:
Ég átti ekki von á, að þetta frv. kæmi nú fyrir þetta þing, eftir þær breyt., sem samskonar frv. fékk á síðasta þingi. Það er öllum vitanlegt, að það eina, sem stendur í vegi fyrir, að frv. sé samþ., er fjárhagsatriðið.
Erlendis er það ekki lögboðið að hafa loftskeytatæki, og meðan við eigum jafnerfitt með okkar litla vísi að flutningaskipum, er a. m. k. spurning um, hvort við eigum að hlaupa fram fyrir aðra í þessu efni, því ef ekki er farið óskynsamlega að, ætti þessi vísir að geta orðið lyftistöng fyrir okkar þjóðfélag. Eins og ég sýndi fram á í síðasta þingi, hér þessi útgerð hér tugi þús. kr. meiri útgjöld en hliðstæð útgert Norðmanna. Það er því sýnilegt, hvert stefnir með því að bæta enn útgjöldum ofan á öll þau, sem fyrir eru. Þeir, sem óska, að flutningarnir komist í innlendar hendur, ættu þar ekki að leggja stein í götu. Hér er ekki aðkallandi nauðsyn, því við getum notast að mestu við talstöðvar, eins og nál. mitt frá síðasta þingi sýnir. Verði það samþykkt, að taka loftskeyti upp sem alþjóðareglu, er sjálfsagt að fylgja því, því þá hafa allir sama baggann að bera. En nú fengju aðrir betri aðstöðu, og er því verið að gera okkur erfiðara fyrir en okkar samkeppnisþjóðum, og býst ég því ekki við, að frv. fái samþ. þessarar hv. d.