30.10.1935
Efri deild: 56. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2005 í B-deild Alþingistíðinda. (2923)

32. mál, loftskeytastöðvar í skipum

Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson) [óyfirl.]:

Þetta mál, sem nú liggur hér fyrir, er gamall kunningi í þessari hv. d. En í þeirri von, að frv. fái aðrar undirtektir nú en á síðasta þingi, höfum við flm. leyft okkur að flytja þetta mál nú. - Það er að vísu nokkur breyt. í þessu frv., frá því, sem flutt var á síðasta þingi, og er breyt. aðallega í 1. gr., en þar segir „að hvert íslenzkt skip, sem er í förum milli landa og hefir minnst 12 manna áhöfn, svo og hvert íslenzkt farþegaskip, er siglir með ströndum fram og er 200 rúmlestir eða stærra, skal hafa fullkomlega starfrækta loft skeytastöð“. - Með þessu eru að vísu fiskiskip, sem sigla með veiði sína til útlanda, skylduð til þess að hafa loftskeyti. En ég hygg, að það komi ekki neitt í bága, því að hver íslenzkur togari er nú með loftskeytatækjum. Það kann að vera, að önnur skip geti komið til greina, en það verður varla á næstunni. En af slíkum skipum, væru það helzt stærstu línuveiðararnir, sem gætu komið til greina. - Í 2. gr. er gert ráð fyrir því, að afl stöðvanna verði minnst 125 vatt í loftneti á 600 metra öldulengd.

Þetta er þá efni frv. í stuttu máli, og þarf ekki að fara ýtarlega út í það að gera grein fyrir því. En það hefir viljað svo til, að mál þetta hefir mætt óvenjulega mikilli mótspyrnu í þessari hv. d. Í fyrra vildi minni hl. sjútvn. skylda menn til þess að hafa talstöðvar í þessum skipum, en meiri hl. gat ekki fellt sig við þá lausn, og því flytjum við nú þetta frv. Við leggjum mikið upp úr því, að það verði loftskeytastöðvar, en ekki talstöðvar. Ég hefi áður gert grein fyrir því, hver er munurinn á þessu tvennu. Það virðist svo sem við séum nú ekki einir um það að vilja lögleiða loftskeytastöðvar í skipum, því að meðal erlendra þjóða er nú mikil hreyfing um þetta mál. Í nál. meiri hl. er gerð grein fyrir kostnaðarhliðinni, og er þar byggt á ýtarlegum upplýsingum frá hinum fróðustu mönnum í þessari grein. Ég hefi persónulega átt tal við landssímastjóra um þetta mál, og einnig haft tal af öðrum mönnum, sem eru sérfræðingar á þessu sviði. Og ég hygg því, að tæplega sé hægt að rengja með rökum þær tölur, sem við höfum bent á. Eins og kemur fram í nál. minni hl., er kostnaðarhliðin ein ástæðan fyrir því, að hann snýst á móti málinu. Það má segja, að hann geri úlfalda úr mýflugu, þar sem hann gizkar á, að kostnaðurinn verði meiri en hann verður. Hann gerir ráð fyrir því, að loft skeytatækin verði dýrari en við gerum ráð fyrir. Hann gerir ráð fyrir því, að það verði óhjákvæmilegt að hafa fastlaunaðan mann við gæzlu tækjanna. Ef það verður óhjákvæmilegt að hafa sérstakan mann við það starf, þá er þar auðvitað að ræða um aukin mann á skipi, hvort sem það þarf að borga honum 5000 kr. eða lægra kaup, en það skiptir auðvitað ekki miklu máli. Ég hygg þó, að kaupið sé þarna áætlað of hátt. Loftskeytamenn byrja vanalega á lágum launum, en svo fara þau stighækkandi á nokkrum árum. En við höfum bent á, að í núgildandi reglugerðum hvílir ekki loftskeytamannsskylda nema á farþegaskipunum. En ef loftskeytatæki eru sett í flutningaskip, þá ætlumst við til, að gæzla þeirra sé falin einhverjum af yfirmönnum skipsins, sem fær er til þess. Ef til vill þyrfti sá maður að læra til þess, en ég tel, að það væri ekki neitt því til fyrirstöðu, að stýrimenn væru látnir læra að fara með loftskeytatæki. Ég get alls ekki talið það frágangssök.

Ég get ekki farið fram hjá því, að hv. minni hl. hefir bent á annað tæki, hljóðdýptarmælinn, og telur hann eins fullkomið öryggistæki og loftskeytatækin. En ég vil benda á það, að úti á hafi getur svo margt það komið fyrir, að skip þurfi að senda skeyti í land, og getur þá hljóðdýptarmælirinn ekki komið í stað loftskeytatækjanna. Hljóðdýptarmælirinn er til þess að varast grynningar, og hv. minni hl. veit vel, að hann getur ekki jafnast á við loftskeytatækin. En ég skal nú ekki fara ýtarlega út í það með hljóðdýptarmælinn. En þeir, sem vit hafa á þessu, segja, að reynslan sé sú, að hljóðdýptarmælirinn sé ekki öruggur í ókyrrum sjó. Ég held, að ef það ætti að fara að skylda skip til þess að hafa hljóðdýptarmæli, að þá væri byrjað á öfugum enda. Eftir því, sem fróðir menn skýra frá, er dýptarmælir ekki eins ódýr og hv. frsm. minni hl. segir. (JAJ: Sagði ég nokkuð um það?). Já, hv. þm. minntist á það.

Í raun og veru er óþarft að tala um talstöðvar í skipum í sambandi við þetta mál, því að það liggur ekki fyrir. Hv. minni hl. sjútvn. hefir ekki gert till. um það nú, að talstöðvar verði settar í skipin. - Ég vil benda hv. þm. á bréf í íslenzkri þýðingu frá loftskeytafélagi í Boston. Þar eru færð skýr rök fyrir stefnu Ameríkumanna í þessu máli. Þar sést, hvaða mismun þeir gera á talstöðvum og loftskeytastöðvum í skipum. Talstöðvar eru góðar á stuttum vegalengdum, en á löngum vegalengdum geta þær ekki komið í stað loftskeytastöðva til að veita það öryggi, sem loftskeytastöðvar geta veitt. - Þetta mál er í fyrsta lagi öryggismál, að áliti okkar flm. frv. Við erum sannfærðir um, að loftskeytastöðvar séu þau albeztu tæki fyrir skip til hjálpar, þegar í nauðir rekur og skipin eru fjarri landi og jafnvel líka þótt skipin séu við land. Það mun öllum hv. þm. í minni, að fyrir loftskeyti björguðust mennirnir af „Skúla fógeta“, sem strandaði í Grindavík í hitt eð fyrra. „Jóni forseta“ voru það líka loftskeytatæki, sem komu til sögunnar til hjálpar. Á mörgum skipum hefir skipshöfn bjargazt þannig, að loftskeyti hafa orðið til þess að vekja menn um hánótt til að hjálpa til við björgun. Ég þykist þess fullviss, að hv. d. unni svo þessum mönnum, sem á sjónum eru, hvort sem þeir eru í flutningaskipum úti á hafi eða á fiskiflotanum, að hún vilji gera sitt til þess að skapa þeim allt það öryggi, sem nútímatæki hafa lagt mönnum upp í hendur, þau tæki, sem á meðal flestra þjóða er talið nauðsynlegt, að komi í flest skip að meira eða minna leyti.

Ég ætla ekki að fara út í samanburð við erlendar þjóðir um þetta mál. Við erum að tala hér um mál fyrir okkur. Það mun ekki líða langur tími, þangað til Norðmenn taka þetta mál upp á mjög svipuðum vettvangi og við hér höfum gert.

Ég vænti, að hv. þdm. líti á mál þetta með fullkomnum velvilja vegna þeirrar stéttar, sem hér á hlut að máli, svo að það mætti a. m. k. fara út úr þessari hv. d. og sjútvn. Nd. gæfist einnig kostur á að fjalla um málið.