21.11.1935
Efri deild: 75. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2014 í B-deild Alþingistíðinda. (2931)
32. mál, loftskeytastöðvar í skipum
Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson) [óyfirl.]:
Þetta mál hefir legið nokkuð lengi niðri, og er því tími til kominn að ákveða endalok þess hér í hv. d.
Eins og hv. þm. N.-Ísf. tók réttilega fram, fer brtt. hans fram á, að atvmrh. sé veitt heimild til þess að skipa sérfróðan ráðunaut ríkisstj. til aðstoðar. Við flm. brtt. á þskj. 544 viljum, að það verði á valdi ráðh., hvort hann fyrirskipar talstöðvar eða loftskeytastöðvar. Ég skal skýra þetta nokkru nánar. Það hefir komið fram í umr. hér í hv. d., að það er eingöngu kostnaðarhliðin, sem andmælendum frv. er þyrnir í augum, en það hefir enginn reynt að færa rök að því, að ekki væri nauðsynlegt að verja öryggi sjómannanna fremur en nú er. En það, sem okkur greinir á um, er, hvort meira öryggi sé að loftskeytastöðvum eða talstöðvum. Ég segi ekki, að ekkert öryggi sé að talstöðvum, en ég hefi fært rök að því, að skipum, sem eru langt undan landi, er lítið öryggi að talstöðvunum, og að þess vegna sé ekki rétt að nota þær. Þá er ekki hægt með talstöðvum að notast við alþjóðamál, eins og með loftskeytunum. (JAJ: Nota þau alþjóðamál?). Já, það er hægt að senda ýms merki, og oft notað. Og hvaða gagn er það skipum, sem stödd eru í hættu við strendur einhvers lands úti í heimi, þó þau geti sent talskeyti, sem enginn skilur. En með loftskeytamerkjum er þetta miklu hægra, og í því felst sá munur, sem gerir öryggið mikið meira. - Þá er hin hliðin, sem að kostnaðinum snýr og ég skal upplýsa nokkru skýrar en gert hefir verið. Ég hefi leitað umsagnar landssímastjóra, þess manns, sem á að hafa mesta þekkingu á þessum málum. Og með leyfi hæstv. forseta skal ég lesa hér upp það, sem hann hefir bætt við það, sem hann hefir áður sagt. Það hljóðar svo:
„Með því að formaður sjútvn. efri d. Alþingis hefir óskað umsagnar landssímans um framkomnar brtt. á þskj. 484 við frv. til l. (þskj. 437) um loft skeytastöðvar í íslenzkum skipum, leyfi ég mér fyrst og fremst að vísa til bréfs míns til form. sömu n., dags. 2-4. okt. 1934, sem fylgir hér með í eftirriti, sem fól í sér álit mitt um hliðstætt frv. til l. um loft skeytastöðvar, sem var borið fram á þinginu 1934 II (þskj. 94). Til frekari skýringar vil ég þó geta þess, að ég tel að kalla má ekkert öryggi að afllitlum talskeytastöðvum í skipum, sem eru í förum milli landa. Annars tel ég ástæðulaust, að minnsta afl skipastöðvanna sé ákveðið 125 vött í loftneti eða miklu meira en flestar íslenzku strandarstöðvarnar hafa (75 vött). Hins vegar mundi landssíminn að sjálfsögðu krefjast þess, að talstöðvar með yfir 10 vatta afli í loftneti yrðu starfræktar af manni með loft skeytaprófi, engu síður en loft skeytastöðvar með sama afli. Samanburður á hljóðdýptarmæli og loftskeytastöð, hvað öryggi snertir, er lítt mögulegur, þar sem þessi tæki hafa svo ólíkt hlutverk að vinna, t. d. getur hljóðdýptarmælir ekki bjargað mannslífum, þegar skip er strandað eða í bráðri hættu á annan hátt.
Loks vil ég geta þess, að ég tel lítt æskilegt, að loft skeytastöðvar séu starfræktar af stýrimönnum með loft skeytaprófi, enda sýnir reynslan, að þeir hafa lítinn tíma til þess á sinna því starfi vegna aðalstarfs síns.“
Þannig er umsögn landssímastjóra. Sé ég ekki annað en hún styðji í öllum atriðum þau rök, sem við flm. höfum fært fram fyrir því, að skipum, sem eru langt undan landi, sé nauðsynlegt að hafa loftskeytatæki.
Þá kem ég að kostnaðarhliðinni. Ég hefi haldið því fram að það mundi vera hægt á skipum, sent ekki flytja farþega, að láta einhvern yfirmanna skipsins gæta lofskeytastöðvanna. Hinsvegar telur landssímastj., sem vitanlega er rétt, æskilegast að hafa sérstakan mann til þess að gæta þeirra. Jafnvel þó talstöðvarnar væru svo kraftmiklar, að þær hefðu 10 vött í loftneti, mundi það ekki koma að fullu gagni fyrir skip, sent eru í langferðum. Þess vegna þyrftu skip, sem sigla yfir höfin, að hafa mjög stóra stöð og sérstakan mann til að gæta hennar, svo að kostnaður yrði nálega sá sami og við loftskeytastöðvar. Ég sé því ekki, hvað er unnið með till. hv. þm. N.-Ísf.
Ef hv. d. hverfur að því ráði að leggja málið í hendur atvmrh., viljum við flm. brtt. á þskj. 544, láta hæstv. ráðh. hafa frjálst val um, hvort notuð eru loftskeyti eða talstöðvar, einkum ef kostnaðarmunur reynist lítill eða enginn. Ég vildi því óska eftir, að hv. d. samþ. till. okkar flm., ef till. hv. þm). N.-Ísf. verður samþ. Hv. þm. N.-Ísf. var að tala um, að nauðsynlegt væri vegna fiskiskipanna að hafa hlustvörð hér á loftskeytastöðinni allan sólarhringinn. Um nauðsyn þess verður ekki deilt, en það kemur ekki að gagni fyrir skip, sem stödd eru einhversstaðar úti í löndum, ekki sízt ef notaðar væru litlar talstöðvar, sem ekki drægu nema einn tíunda af vegalengd til lands. Mér blandast ekki hugur um, að það er að stíga skrefið aftur á bak, ef tilkostnaður er sá sami. Vitanlega greiði ég atkv. á móti brtt. hv. þm. N.-Ísf., en verði hún samþ., vil ég reyna að bæta hana eftir því, sent hægt er.
Ég skal svo ekki taka fleira fram nú, en það vill svo til, að ég hefi í höndum bréf frá mætum manni, og gætu hv. þdm. fengið að kynnast þar ýmsu af því, sem er að gerast í þessum málum úti í löndum.
Hér í d. situr nú einn hv. þm)., sem margt hefir talað og skrifað fagurlega um öryggi mannslífa á sjónum, og þykir mér því næsta dapurlegt, ef hann greiðir nú atkv. móti frv.