23.10.1935
Neðri deild: 55. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2031 í B-deild Alþingistíðinda. (2962)
133. mál, framfærslulög
Flm. (Jónas Guðmundsson) [óyfirl.]:
Á þessu stigi málsins er óþarft að ræða um einstakar gr. Það er sjálfsagt, að allshn. taki til athugunar bæði þau atriði, sem fram hafa komið hjá þeim, sem talað hafa um þetta mál. En út af því, sem fram kom í ræðu hv. þm. V.-Húnv. viðvíkjandi 20. gr. frv., vil ég taka það fram, að það er mesti misskilningur, að verið sé að skapa nýjan atvinnuveg, eins og hv. þm. komst að orði, með því að ganga á milli sveitarfélaganna. Þetta á aðeins við um þá, sem verða styrkþegar erlendis. Í gr. segir að vísu, að sá maður, sem þannig er ástatt fyrir, megi kjósa sér sveit, en jafnframt er ákvæði í þessari gr. um það, að allt sem þessi maður þarf að þiggja fyrsta árið, sem hann er hér á landi, eftir að hann kemur heim, skuli greitt úr ríkissjóði, en ekki af þeirri sveit, sem hann vill vera í. Þetta er í fullu samræmi við annan anda þessa frv., sem sé þann, að fátækur maður, sem á heima í landinu, geti kosið sér verustað og farið þangað, sem hann vili setjast að, an þess að nokkur maður geti hindrað hann í því. Þetta hefir verið og er sá andi, sem menn helzt virðast hafa hallazt að, að hver maður eigi framfærslu þar, sem heimili hans er, en það verður þar, sem hann telur bezta afkomumöguleika. Það er því mjög ósennilegt, að nokkur sveit geti grætt á því að verzla við þennan mann um það, að hann setjist t. d. að á Hvammstanga, en ekki í Rvík. Slík verzlun er yfirleitt útilokuð. Sennilega vilja flestir setjast að í Rvík, því að hér er atvinnuvonin mest, sérstaklega munn menn helzt vilja setjast að hér í Rvík, ef þeir koma hingað heim frá útlöndum, til þess að draga fram lífið á fátæks manns vísu.
Þá minntist hv. þm. V.-Húnv. á framfærslumálastjórastarfið, sem hann taldi óþarft. því er til að svara, að þetta er einungis heimild, sem atvmrh. beitir ef hann telur þess þörf. Okkur sem sömdum frv. var það kunnugt, að þessum störfum hefir verið skipt niður á milli hagstofunnar og sérstaks manns í atvinnumálaráðun. Það má vel vera, að mönnum þyki fara eins vel í því, að fyrirkomulagi því, sem verið hefir, verði haldið áfram, og er því þá ekkert til fyrirstöðu, ef það er almennur vilji, því að hér er aðeins um heimild að ræða, sem ráðuneytinu er veitt. Í þessu sambandi má benda á það, að það er ekki svo lítið fé, sem varið er til fátækramála í landinu. Það er hvorki meira né minna en 2 millj. kr., sem sveitarfélögin greiða beinlínis til fátækramála í landinu. Það er ekki sama, hvernig farið er með þetta fé. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá, frá sjónarmiði sveitarfélaganna, að lækka þessi útgjöld, án þess að skera of við nögl það, sem veitt er til einstakra þurfamanna. Nú virðist mér það vera svo, að mörg sveitarfélög séu blátt áfram í vandræðum með að leysa þetta vandamál af eigin ramleik, nema með miklum útgjöldum. Væri ekki skynsamlegra, að til væri í landinu ráðunautur, sem gæti veitt leiðbeiningar í þessu efni?
Þá minntist sami hv. þm. á 39. og 40. gr. frv. Taldi hann, að maður, sem sveitarstjórn hefir veitt styrk í heimili, geti krafizt þess áfram, þótt sveitarstjórn vilji ráðstafa honum á annan stað. Ég get ekki séð, að þetta standi í frv. Vitanlega hlýtur þetta atriði að vera framkvæmdaratriði í hverju einstöku tilfelli. Segjum t. d., að gömlum manni hafi verið lagður styrkur á einhverju heimili, en svo þyki hentugra að koma honum á vist með ákveðnu meðlagi; þá er fullkomin heimild til þeirra ráðstafana samkvæmt ákvæðum 40. gr.
Loks minntist hv. þm. á jöfnunargjald framfærslukostnaðarins. Var hv. þm. vorkunn í því, að hann misskildi 3. lið í 72. gr. Þar stendur:
„Sveitarfélög í öðrum jöfnunarflokki greiða meðaltalsframfærslugjald þess flokks, að frádregnum 10%, og fá endurgreidda 2/3 þess, sem þar er fram yfir.“
Þetta vill hv. þm. skilja svo, að sveitarfélög, sem ná ekki meðaltalsframfærslugjaldi, eigi að borga upp í meðaltalsgjöldin. Þetta er vitanlega rangur skilningur hjá hv. þm., og þetta vakti alls ekki fyrir okkur, sem sömdum frv. Ef þetta ákvæði þykir orka tvímælis, þá skal það tekið fram, að það vakti ekki fyrir okkur, að þau sveitarfélög, sem hafa lægri framfærslukostnað en önnur, fari að borga meira í viðbót, sem gangi svo til annara sveitarfélaga, enda mundi það vera óframkvæmanlegt að innheimta slík gjöld hjá sveitarfélögum.
Þá minntist hæstv. fjmrh. á, að nauðsynlegt væri að binda upphæð þá, sem gengur til framfærslunnar af ríkisins hálfu, við ákveðið hámark í lögum. Skal ég ekki að svo stöddu segja margt um þetta atriði. Nú mun þessi upphæð vera milli 170 og 200 þús. kr. þessi ár, sem búið er að skipta þessu gjaldi niður, og eftir þeim útreikningum, sem við létum gera og birtir eru í töflu um skiptingu fátækraframfærslunnar, sem er að finna aftast í frv., þá reiknaðist okkur, að ef svo er ástatt í hverju sveitarfélagi, sem segir í skýrslunni, þá yrði þetta gjald 253 þús. kr. við þetta er það að athuga, að ekki er hægt að leggja til grundvallar útreikninginn eins og hann er frá 1933, vegna þess að nokkuð af þeirri fátækraframfærslu, sem talið er, að veitt sé í sveitum landsins, er ekki veitt þar, heldur í kaupstöðum, og því mundi meðaltalsframfærslukostnaðurinn í sveitum lækka stórkostlega. Í þessu sambandi má benda á það, að á þús. 29 í frv. er það tekið fram, að í Grunnavíkurhreppi er fátækrabyrði ársins 12622 kr., en skattskyldar tekjur aðeins 1950 kr. Þessi hreppur hefir ekki innt á hendi þessa greiðslu á árinu, heldur hafa einstakir kaupstaðir, líklega mest Ísafjörður, lagt út gjaldið, og vitanlega hér að endurgreiða þangað þá endurgreiðslu, sem er frá ríkissjóði. Þannig er ástatt um marga fleiri hreppa. Þetta dæmi sýnir, að ef það fyrirkomulag, sem frv. gerir ráð fyrir, hefði verið 1933, þá hefði fátækrakostnaðurinn í kaupstöðunum yfirleitt orðið hærri en hann er og lægri í sveitum.
Mun ég svo ekki fjölyrða frekar um þetta að sinni.