16.12.1935
Neðri deild: 100. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (2986)

133. mál, framfærslulög

Finnur Jónsson [óyfirl.]:

Í brtt. á þskj. 826 er gert ráð fyrir, að framfærslunefnd sé jafnan skipuð 5 mönnum, er bæjarstjórn kýs með hlutfallskosningu. Mér virtist ekki rétt að binda nefndirnar endilega við þessa tölu manna í sveitarfélögum og litlum bæjum, heldur megi talan vera þar lægri. Ég vil því leyfa mér að flytja skriflega brtt. við brtt. á þskj. 826 á þessa leið:

„1. málsl. orðist svo: Framfærslunefnd skal skipuð 3 eða 5 mönnum“.

Ég tel réttara að láta hreppsnefndir og bæjarstjórnir ráða tölu manna í framfærslunefndum, en ekki fast binda töluna við 5 menn, hversu smá sem sveitarfélögin eru og hversu lítið sem þau hafa umvélis. Ég leyfi mér svo að afhenda hæstv. forseta þessa skrifl. brtt. og óska, að hann leiti afbrigða fyrir till., svo hún megi koma til greina við umr.