20.12.1935
Efri deild: 100. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2086 í B-deild Alþingistíðinda. (3019)

133. mál, framfærslulög

Guðrún Lárusdóttir:

Þó eru aðeins örfá atriði viðvíkjandi þessum lögum sem mig langar til að minnast á. - Ég verð að harma það, eins og aðrir hv. þdm., hve lítill tími er gefinn til þess að athuga þetta stórmál, en eigi að síður er rétt að leita upplýsinga um þau atriði, sem vafi leikur á, benda á galla þá, sem á frv. eru og bera fram aths. Ég vil vekja athygli á 13. gr., þar sem talað er um, hvar menn öðlist framfærslurétt og hvar ekki. Það er tekið fram í þessum framfærslul. og er líka í gömlu fátækral., að menn öðlist ekki framfærslurétt í annari sveit með dvöl sinni þar í skóla eða á sjúkrahúsi. En því er við bætt í þessum l., að menn öðlist þegar framfærslurétt í þeirri sveit, er þeir taka sér bólfestu í, að dvölinni lokinni. Þetta ákvæði virðist mér varhugavert fyrir þá staði, þar sem sjúkrahús eru. Þangað kemur fólkið og dvelur á sjúkrahúsi, á meðan því er brýn þörf á því, en hverfur aftur af sjúkrahúsunum, eftir að læknir telur ekki brýna þörf fyrir það að dvelja þar lengur sem sjúklingar. En þó að sjúklingur geti komizt af án sjúkrahúss vegna þess, að læknir telur honum ekki nauðsynlegt að dveljast þar, verður hann þó í mörgum tilfellum sjúklingur eftir sem áður og óvinnufær. Og vitanlega getur hann dvalið í sveitinni eða kaupstaðnum áfram, þar sem sjúkrahúsið er, þegar hann kemur af sjúkrahúsinu. Verður hann því þeirri sveit eða þeim kaupstað í mörgum tilfellum til þyngsla. Og hvað sem sjúklingum líður, þá er enginn hlutur eðlilegri en það, að þegar svo er komið, að hver maður á þegar framfærslurétt í þeirri sveit, sem hann dvelur í, þá fari menn að hafa vakandi auga á því, vegna síns sveitar- eða bæjarfélags, hvers konar fólk það er, sem sezt að á hverjum stað, hvort það er fólk, sem kemur til með að bjarga sér, eða hvort því er fólk, sem líkur eru til, að geti þá og þegar orðið þurfalingar. Álít ég nauðsynlegt að gefa þessu atriði laganna nákvæmar gætur, því ósanngjarnt virðist, að það eitt, að sjúkrahús sé á staðnum verði til stóraukinna sveitarþyngsla fyrir viðkomandi hrepps- eða bæjarfélag.

Þá vil ég minnast á 26. gr. frv. og er hún þannig:

„Nú giftist ekkja, sem meðlög fær með börnum sínum samkvæmt fyrirmælum þessara laga, og falla þá meðlagsúrskurðirnir sjálfkrafa úr gildi“.

Það er þetta orð: „sjálfkrafa“, sem ég vil gera aths. við. Nú er það oft svo, að kona, sem missir mann sinn og á börn í ómegð, er efnalega illa stödd. Hin nýju l. létta að vísu undir með slíkum ekkjum, samkvæmt lagagreininni um meðlög með börnum ekkna. En giftist ekkjan svo að nýju, þá fellur úrskurðurinn um meðlag með börnum hennar niður, með öðrum orðum hún tapar af meðlaginu með börnum sínum við það að giftast aftur. Hins vegar er ekkert því til fyrirstöðu, að maður, sem hún mundi ganga að eiga, ef l. væru ekki þannig úr garði gerð, gæti flutzt inn á heimili hennar og búið með henni utan hjónabands. Þannig gæti þá þetta ákvæði 26. gr. þessa frv. orðið til þess, að ekkja, sem er kannske á bezta aldri og gæti fengið góðan ráðahag, giftist ekki, heldur byggi ógift með manni, til þess að missa ekki af þeim fríðindum, sem framfærslulög þessi veita henni. Ég vil vekja athygli á því, að hér er raunverulega með þessu ákvæði 26. gr. verið beinlínis að stuðla að því að ekkjur búi með karlmönnum, án þess þó að giftast þeim. Ef stjórnarvöldin vilja virða hjónabandið, þá er þetta ákvæði a. m. k. allóviðkunnanlegt.

53. gr. frv. er um það, að setja megi framfærsluþurfa í fangelsi fyrir þær sakir, sem upp eru taldar í þeirri gr., og er síðasta mgr. þessarar 53. gr. frv. um það, að kostnaður við fangelsisvist eftir gr. þessari greiðist af ríkissjóði. - Nú vil ég spyrja: Er hér ekki átt við neinn annan kostnað en þann, sem leiðir af dvöl fangans persónulega vegna fangavistar hans? Eða er hér einnig átt við það, að ríkissjóður greiði þann óbeina kostnað, sem leiðir af fangavistinni, ef fanginn þarf fyrir fjölskyldu að sjá, og fjölskylda hans verður að fá hjálp vegna vinnutaps heimilisföðursins á meðan hann er fangi? Það er mjög algengt hér í Reykjavík, að menn, sem brotlegir verða, eru hafðir í fangelsi, en samtímis því verður heimilisfólk þeirra að fara á sveitina og fá frá bænum það, sem það þarf til framfæris. Þetta síðartalda tel ég aðalkostnað við fangelsisvist slíkra manna. Vera má, að það sé undirskilið, að þessi framfærslukostnaður eigi líka að greiðast af ríkissjóði sem „kostnaður við fangelsisvist“, sem hann og er í raun og veru, en ég vildi fá það upplýst hjá þeim, sem fróðir eru. - Í 66. gr. frv. er talið upp, hvað taka skuli til athugunar, ef maður þarfnast framfærslustyrks, áður en 4 mánuðir eru liðnir frá því hann fluttist til þess sveitarfélags, er hann heima í. Hv. 1. þm. Skagf. hefir bent á það við þessa umr., að sízt mundi verða minna málarex út úr þessum l. heldur en þeim l., sem við búum nú við um framfærslu þurfalinga. Ég hygg, að þessi gr. gæti stuðlað mjög til þess. Það gæti verið að um það þyrfti að grennslast, hvort sveitarstjórn eða aðrir í þeirri sveit, sem framfærsluþurfi er nýlega fluttur úr, hafi hvatt hann til þess að skipta um bústað. Og ekki get ég hugsað mér að slíkt sé til þess fallið að treysta góða samvinnu á milli hreppa. - Ég hefði gaman af að bera saman þær spurningar, sem gert er ráð fyrir í þessari gr. og upp eru taldar þar, við spurningar, sem lagðar hafa verið fyrir framfærsluþurfa og ég hefi hér á skýrslu, sem ég er með. Á þessari skýrslu eru allt aðrar spurningar en þær, sem hér í 66. gr. eru taldar upp. Spurningar, sem á þessari skýrslu eru, eru um aldur, barnafjölda, hvort viðkomandi er giftur eða ógiftur, hvernig heilsufarið er, hvaða atvinnu hann hafi, hvað hann eigi, hvort hann hafi notið styrks, hvernig framtíðarhorfur styrkþurfa séu um atvinnu, hvaða matarbirgðir hann hafi og annað þessu líkt. Sem sagt, allt persónulegar spurningar um hagi hans sjálfs. En í þeim spurningum, sem í frv. getur, er farið mjög út fyrir þennan ramma, því að þar er talað um aðra menn, sem alls ekki eru viðstaddir og geta því ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Ég get hugsað mér, að slíkar spurningar geti orðið tilefni til óskemmtilegs málaflutnings og jafnvel málaferla. Því að 68. gr. frv. gerir ráð fyrir, að ef uppvíst verður, að sveitarstjórn hafi á einhvern hátt stuðlað að flutningi manna til annars sveitarfélags í því augnamiði að komast hjá að framfæra hann, skuli fyrrverandi heimilissveit styrkþegans borga svo sem til er tekið í þessari gr., og getur það orðið allmikið fé.

Það getur vel komið til mála, að einhver maður spyrjist fyrir um, hvar gott sé að búa, hvort gott sé að vera á þessum eða hinum staðnum. Honum er svo ráðlagt af mestu góðgirni að flytja sig á einhvern vissan stað. Harðvítug sveitarstjórn gæti hártogað þetta. Og ég óttast, að t. d. í svona tilfellum gæti orðið út af þessum ákvæðum leiðinleg rekistefna.

Ég ætla nú ekki að gera aths. við fleiri gr. frv. Yfirleitt er ég frv. hlynnt, þó ég hinsvegar sjái, að margt í því mætti lagfæra og er bráðnauðsynlegt að lagfæra, ef tími væri til þess. Og það er leiðinlegt, að ekki skuli vera hægt að koma við þeim lagfæringum, áður en frv. verður gert að l. Hér er um vandamál að ræða, sem getur varðað allmikið mikinn hluta þjóðarinnar og snertir alla þjóðina að meira eða minna leyti. En um galla frv. mun ekki vera til neins að fast, að svo komnu.