16.11.1935
Neðri deild: 75. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2095 í B-deild Alþingistíðinda. (3030)

83. mál, bráðabirgðaverðtollur

Frsm. (Emil Jónsson):

N. varð sammála um að leggja til, að frv. yrði samþ. með smábreyt. Fyrsta brtt. er fólgin í því, að undir 30% toll skuli falla húfur allskonar og gólfklútar. Hv. þm. N.-Þ. hefir flutt brtt., sem fer í sömu átt, en aðeins um þær húfur, sem eru úr skinni, en þar sem n. hafa borizt tilmæli um að láta líka húfur úr taui heyra undir þennan toll, bar hún þessa brtt. fram. Önnur brtt. n. er sú, að leggja 15% toll á ístöð, beizlisstengur og beizlismél, vegna þess að þessa hluti má búa til hér á landi, og er þegar gert. - Þá leggur n. til, að kaðlar, færi og fiskilínur, öngultaumar, þorskanet og lóðabelgir fari úr 10% tolli niður í 5% toll, og er það gert með tilliti til örðugrar afkomu útgerðarinnar hér á landi. Sömuleiðis hefir n. lagt til, að baðlyf verði ekki tolluð, þar sem það er upplýst, að þau eru ekki framleidd hér á landi nema að óverulegu leyti. - Þá leggur n: til, að linoleum- og gúmmídúkalím, sem veggfóðrarar nota mikið, en er dýrt, sé fellt niður úr tolli af því að menn munu nú vanrækja að láta líma dúka sína vegna þess, hve dýrt límið er, og stendur tollurinn vitanlega þar í vegi. -Síðasta brtt. n. er sú, að eins og vélar, sem notaðar eru til innlendrar framleiðslu, verða tollfrjálsar, þá verði einnig varahlutar þeirra tollfrjálsir.

Úr í einstök atriði frv. þarf ég ekki að fara, þar sem n. er sammála, að það verði samþ. með þeim brtt., sem ég hefi nú skýrt frá.