10.12.1935
Sameinað þing: 29. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í B-deild Alþingistíðinda. (306)
1. mál, fjárlög 1936
Frsm. 3. kafla (Þorbergur Þorleifsson):
Ég tel mig ekki þurfa að bera hér af mér neinar sakir, en það voru aðeins örfá orð út af ræðu hv. 2. þm. N.-M. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem hann gefur nú, eru þær á annan veg en þar, sem lágu fyrir fjvn. Ég hefi nú ekki umboð frá n. til þess að taka till. aftur, en n. mun athuga þetta áður en atkvgr. fer fram.