19.12.1935
Neðri deild: 103. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2113 í B-deild Alþingistíðinda. (3064)

83. mál, bráðabirgðaverðtollur

Sigurður Einarsson:

Við umr. málsins í Nd. fengum við, sem stóðum að þessari till., brtt. samþykkta, sem fól það í sér, að færi, fiskilínur og öngultaumar yrðu undanþegnir þessu 5% gjaldi. Við lítum svo á, að þetta væru vörur, sem ekki gæti talizt forsvaranlegt að skattleggja á þennan hátt, þar sem þær eru nauðsynlegar til framleiðslu meiri hl. fiskimanna í landinu. Ed. hefir síðan gert þá breytingu, að þetta skyldi aftur fellt í 5%-flokkinn. Höfum við því enn borið fram brtt. þess efnis, að þessar vörur yrðu fluttar úr F-lið í G-lið. Vona ég, að hv. dm. geti verið sammála um að hafa þetta svo og samþ. brtt.