12.12.1935
Efri deild: 93. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2117 í B-deild Alþingistíðinda. (3091)

184. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Jónas Jónsson [óyfirl.]:

Þó að ég sé einn flm. till. á þskj. 755, þá er það í rauninni svo, að þær eru fluttar fyrir fjvn., og þó að allir fjvnm. séu ekki á bak við allar till., þá held ég samt, að meiri hl. fjvn. sé á bak við þær allar. En vegna þess, að fjvn. getur ekki lagt till. fyrir d. þingsins, þá hefi ég sem form. n. tekið að mér að flytja till., og vona ég, að aðrir nm. í d. standi að þeim.

Það var þegar ætlun okkar í fjvn, þegar við hófum starf okkar þar í sumar, að við hlytum að leggja til, að breytt væri eða frestað ákvæðum ýmsra laga, sem sett hafa verið til bráðabirgða, um eitt ár. En hinsvegar hefir það verið svo mörgum vandkvæðum bundið, að við höfum ekki sett fram frv. um það fyrr en núna síðast á þinginu, og tókum við þá það ráð, að bæta þessum till. við frv. um útflutningsgjald, þegar það var búið ganga í gegnum Nd. og tvær umr. í þessari d.

Það kom fram við atkvgr. í Sþ. í gær, að það er ekki til meiri hl. í báðum d. þingsins fyrir einni till., og verður að gera breyt. á henni áður en til atkv. kemur, þar sem hún er að nokkru leyti dauð, eftir atkvgr. í gær í Sþ. - Till. skýra sig að mestu leyti sjálfar, en ég ætla þó að fara nokkrum orðum um hverja till. út af fyrir sig.

1. till. hefir gengið í gegnum þrjár umr. í Nd. og tvær umr. í þessari d.

2. brtt. er um það, að 1936 greiði ríkissjóður dýrtíðaruppbót eftir sömu reglum og árið 1935. Stj. tók þetta ekki upp, því það mátti búast við, að það yrði tekið upp á þessu þingi.

3. brtt., um ritun þingræðna, er útrætt mál.

4. brtt. er um það, að lækka embættiskostnað presta, svo að hann verði tæplega helmingur af því, sem hann hefir verið. Og þó að prestar séu ekki hálaunaðir, þá er það að athuga, að hér er um tiltölulega ný l. að ræða, og þar sem hjá fjvn. hefir verið mikil viðleitni í þá átt, að lækka laun þeirra manna, sem fjvn. hefir getað náð til, þá verður þetta að skiljast á þann hátt, en ekki þannig, að n. telji laun þessara manna of há. En þegar spara á 1 millj., þá verður einhversstaðar að taka hana af.

5. brtt. er um það að starf gengisnefndar og launagreiðsla til hennar falli niður, þar sem verkefni hennar er lokið. Og þó að hér sé ekki um stóra upphæð að ræða, þá sýnist vera rétt að hún falli niður.

Um 6. brtt. er það að segja, að hún hefir verið felld niður, en er nú tekin upp aftur, þar sem fjvn. hefir viljað halda sig við það að fá sem flest með ákveðinni upphæð. Hér er upphæðin ákveðin lægri en áður, og það er gert ráð fyrir, að landbrh. setji reglur um það, í samráði við Búnaðarfélag Íslands, hvernig þessari fjárhæð verði skipt.

7. brtt. er um það, að á árinu 1936 skuli ekki verja hærri upphæð til búfjárræktar en 30 þús. kr., en í stjfrv. er gert ráð fyrir 42 þús. kr., og leit þá út fyrir, að það væri nægilegt, en sú upphæð, sem til búfjárræktar hefir farið, hefir farið upp í 60 þús. kr. Ég býst við, að áður en atkvgr. fer fram um málið, muni koma brtt. við þetta, og upphæðin verði þá hækkuð aftur.

8. brtt. er um að lækka upphæðina til áburðarkaupa.

9. brtt. er um það að á árinu 1936 leggi ríkissjóður ekki fram fé til bókasafna prestakall;. Ég játa, að þar er ekki um stóra upphæð að ræða, en hún getur dregið dilk á eftir sér, og því er rétt, að hún sé tekin með.

10. brtt. er um framlag til sýsluvegasjóða, og gengur hún út á það, að hámarksframlag ríkissjóðs sé lækkað. En þar sem það hefir verið hæst, hefir það verið til móts við 6% úr héruðum, og hefir það því verið töluverður baggi á ríkissjóði. Nú er lagt til, að framlag ríkissjóðs verði móts við 5% úr héruðum. Og munar þessi lækkun um 30 þús. kr. fyrir ríkissjóð, og hún munar líka miklu fyrir héruðin.

Ég mun svo ekki fara fleiri orðum um þessar till. að þessu sinni, en ég býst við, að það komi fram viðaukatill., og mun þá verða gerð grein fyrir þeim, þegar þar að kemur.