13.12.1935
Efri deild: 94. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2138 í B-deild Alþingistíðinda. (3102)

184. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Sigurjón Á. Ólafsson [óyfirl.]:

Ég ætlaði mér í upphafi ekki að segja mikið um þetta mál, en ég get ekki setið hjá eftir að þessar mörgu brtt. hafa komið fram við það við þessa síðustu umr. málsins. Mér hefir virzt það einkennandi fyrir þá hv. þm., sem hafa verið að ræða um að finna leiðir til þess að spara og draga úr útgjöldum ríkissjóðs, að þeir virðast vera svo svartir í sínum eigin huga, að þeir geta aldrei séð neitt bjart fram undan. Þessir hv. þm. virðast vera orðnir svo fastir í þeirri trú, að nauðsynlegt sé að skera niður, að það liggur við, að þeir séu eins og karlinn, sem hélt, að pest væri komin í, kindurnar og drap þær því, þó að í raun og veru væri pest aðeins í einni kindinni. Mér finnst kenna svipaðs hugsunarháttar hjá þeim, sem nú bera fram brtt. um þetta frv., sem hér liggur fyrir, þó að það sé hægt að virða tilganginn með þeim, eins og hann er út frá þeirra sjónarmiði. En oft er það líka svo, að það er eins og það komi líka með þraut, og að úr greiðist betur en menn gerðu sér vonir um. Og skal ég í þessu sambandi benda á það, að eftir síðastl. hörmungarsíldarsumar hefir nú í haust veiðzt síld í Faxaflóa, sem hefir verið seld fyrir um 2 millj. kr. En hvern skyldi hafa dreymt um það á liðnu sumri? Og það eru jafnvel til birgðir mína, sem eflaust er hægt að selja fyrir eitthvað. Þó að útlitið sé dökkleitt, þá verða menn samt að vona, að ekki séu allar bjargir bannaðar fyrir þjóðarbúskapinn næsta ár. Ég er einn af þeim mönnum, sem horfa fram á örðugleikana, en ég loka þó ekki augunum fyrir því, sem menn kalla bjartsýni.

Ég vil þá víkja örlítið að þeim brtt., sem liggja hér fyrir á þskj. 755. Um 1. og 2. brtt. skal ég ekki ræða. En um 3. brtt. hefir verið rætt hér töluvert og færð fram skýr rök fyrir nauðsyninni á því að prenta þingtíðindin. En í þessu sambandi hefir ekki verið minnzt á þá stétt, prentara, sem leysa þetta starf af hendi. Ég vil benda á, að á næsta ári mun óttinn við það, að þröngt verði í búi og kaupgeta almennings lítil koma niður 5 bóka- og blaðaprentun, og þá koma harðast niður á þeim, sem að henni hafa unnið, sem sé prenturum. Á slíkum tíma sem þessum er það ekkert lítill póstur fyrir þessa stétt, að hætt sé að prenta þingtíðindin, en fyrir það er greitt nálega 40 þús. kr. Og þó að nokkuð af þeirri upphæð fari fyrir efni, þá er þó mestur hlutinn vinnulaun. Það er því ekki nema eðlilegt að prenturum þyki það kuldaleg jólagjöf frá Alþ. að ætla nú að fella niður á næsta ári þennan vísi til lífsframfæris fyrir þá. Ég vil líka benda á, að ríkið á fyrirtækið, sem vinnur að þessu, svo þetta er í rauninni að láta úr einum vasa í annan. Það er gert ráð fyrir því í fjárl., að rekstrarhagnaður ríkisprentsmiðjunnar sé 60 þús. kr., og get ég ekki betur séð en að hann sé skertur að miklum mun, ef sleppa á niður 40 þús. kr. upphæð. Ég sé því ekki betur en að það verði þá að draga nokkuð frá rekstrarhagnaðinum í fjárl. En mér virðist, að þetta hafi ekki verið tekið með, þegar rætt hefir verið um að leggja niður prentun þingtíðindanna.

Um 4. brtt. skal ég vera fáorður. Ég hefi ekki haft tíma til þess að kynna mér það, hvort hér er um þungbæra niðurfellingu að ræða fyrir þá, sem hlut eiga að máli, nefnilega prestana. Ég hefi ekki gert mér skýra grein fyrir því, hver laun þessara manna eru, eða hvort það sé mögulegt að klípa af þeirri uppbót, sem hér er um að ræða. Ég skal ekki fara frekar út í liðina á þessu þskj. Þeir snerta flestir landbúnaðinn, og er því eðlilegt, að fulltrúar landbúnaðarins tali um þá.

Þá kem ég að till. á þskj. 794. Ég sé nú, að hv. flm. er horfinn út úr d., en ég mun nú samt halda ræðu minni áfram. Ég skal ekki fara út í 1. liðinn, því að flm. hefir þar verið að nokkru leyti svarað af hæstv. kennslumálaráðh. og einnig af 2 öðrum hv. ræðumannum. En ég kemst ekki hjá því að minnast á 3. liðinn, sem er um varðskipin. Ég skal geta þess, að ég var með í því að flytja till. til þál. um það, að athugaðir væru möguleikarnir fyrir ódýrari landhelgisgæzlu, og var sú till samþ., að skipuð væri n. til þess að athuga það mál. Nefndin, sem skipuð var, vann verk sitt losaralega, en hún kom þó með till., þar sem hún benti á, að hugsanlegt væri að gera landhelgisgæzluna ódýrari með því að nota minni skip. Nú hefir Alþ. heimilað ríkisstj. að leita tilboða í 2 af skipunum, Óðin og Þór, og var það samþ. þrátt fyrir mótstöðu alþýðuflokksmannanna. En nú verður að líta á það, að hér er um ólík skip að ræða. Óðinn er dýrasta skipið, sem notað er við landhelgisgæzluna. En Þór er aftur á móti miklu ódýrari, og er munurinn mikill á rekstrarkostnaði skipanna. Ég get verið samþykkur því, að Óðinn sé seldur, ef fyrir hann fæst viðunandi verð, en ég vil ekki láta selja hann fyrir neitt spottverð, eða verð, sem við getum ekki verið þekktir fyrir að selja hann fyrir. Nú skilst mér á hv. flm., að von sé um tilboð í Óðin, og ef það er sæmilegt, þá tel ég rétt að selja hann. En frá mínu sjónarmiði á sú upphæð, sem fæst fyrir hann, að fara til þess að kaupa hagkvæmara og hentugra skip, en ekki að hafa það sem eyðslufé fyrir stj. Mitt atkv. er bundið við það, að annað skip komi í staðinn. En þó að ég geti verið með því, að Óðinn sé seldur, þá er ég andvígur því, að Þór sé seldur. Eins og nú er háttað, þá er ekki hægt að fá við Vestmannaeyjar ódýrara skip en Þór, sem fullnægi þeirri þörf, sem er á gæzlu skipa og mannslífa þar. Ég hefi ekki trú á því, að við fáum öllu betra skip en Þór af sömu gerð til þess að fara út í hvaða veður sem er og bjarga, ef með þarf. Ef Þór yrði seldur, þá teldi ég það brigðmælgi við fiskimannastéttina, ekki einungis við Vestmannaeyjar, heldur líka annarsstaðar, en hún krefst þess, að ríkið veiti henni þá aðstoð, sem það megnar, og reyni að hafa eftirlit með því, ef eitthvað verður að skipum. Það verður að teljast, að Alþ. beri skylda til þess að gera það, sem því er unnt, til þess að vera á verði fyrir þau mannslíf, sem færa þjóðarbúskapnum drýgstan skerfinn. Á meðan engar líkur eru til þess, að hægt sé að fá jafngott skip og Þór, þá má það teljast næstum goðgá að láta hann af höndum. Það eru engar líkur til þess, að það fáist gott verð fyrir hann, því hann er ekki af þeirri gerð togara, sem eru eftirsóttir hér. Hann er af hinni minni stærð, og hefir ekki aflmikla vél, og það hefir sýnt sig, að slíkir togarar eru ekki reknir hér með góðum árangri. Togari af líkri stærð var dreginn einu sinni út af Söndunum, og hefir hann reynzt einna lakast af þeim togurum, sem dregið hafa vörpu hér við land. Þeir eru ekki samkeppnisfærir við hin stærri skip úti á djúpmiðunum. Og hið sama mundi bíða Þórs, svo að útgerðarmenn myndu ekki verða fíknir í að kaupa hann og láta hann stunda veiðar með botnvörpu. Og þó að harm sé nothæfur til síldveiða, þá verður hann aldrei keyptur til þess að nota hann eingöngu til slíkra veiða. Það eru því engar líkur til þess, að hann verði keyptur fyrir það verð, sem ríkið getur verið þekkt fyrir að láta hann fyrir. Af þessari ástæðu er það barnaskapur að láta Þór úr eigu ríkissjóðs. Ég skal geta þess, að það er draumur margra manna, að landhelgisgæzlan og björgunarstarfsemin sé sameinuð. Ég hygg, að það sé skoðun mjög margra, að þetta sé mögulegt. Björgunarstarfsemin í landinu er nú orðin sérstakur félagsskapur, sem er þó nokkuð voldugur, og sýnir það, að landslýðnum hefir skilizt, að það hér að leggja mikið í sölurnar fyrir þá, sem leggja út á hafið til þess að færa björg í land. En það er ekki víst, hvort hægt er að sameina landhelgisgæzluna þeim félagsskap, sem hefir slysavarnir með höndum. Ef það er álitið kleift, þá verður að byggja björgunarbátana þannig, að þeir geti um leið verið gæzlubátar. En ennþá er enginn útbúnaður hafinn í þá átt. Á meðan svo er, er ekki hægt að kasta frá sér þeim varðskipum, sem til eru. Ég hygg, að Alþ. muni berast þungar ásakanir og kvartanir, ef ríkið sér sér ekki fært að hafa landhelgisgæzluna í sæmilegu horfi, því fjöldi fiskimanna á mikið undir því, hvernig landhelgisgæzlan er framkvæmd. Það hefir verið svo undanfarið og mun verða svo á næstu áratugum.

Það hefir verið drepið á það af hv. flm., að halda mætti uppi landhelgisgæzlu með minni bátum. Ég er sammála honum að svo miklu leyti sem slíkir bátar geta komið í stað hinna fullkomnari skipa. En þeir bátar, sem notaðir hafa verið 2 undanfarin ár, hafa ekki verið svo fullkomnir, að hægt væri að bjóða þeim út í hvaða veður sem er. Það hafa verið gömul skip og ekki svo örugg, að hægt sé að beita þeim út í hvaða sjó sem er. Þessir bátar hafa líka aðallega verið notaðir þann tíma, sem veðrið er bezt og blíðast. En það er þörf annara stærri og fullkomnari skipa, þegar nótt er dimmust og allra veðra von. Og til þess að annast landhelgisgæzluna á þeim tíma þarf skip, sem menn geta verið öruggir um líf sitt á. En um þau skip, sem notuð hafa verið til landhelgisgæzlu að sumarlagi undanfarið, er það að segja, að menn geta ekki verið meira en svo öruggir um líf sitt nú þeim á þeim tíma, þegar allra veðra er von. Og ég er á móti slíkri landhelgisgæzlu. Ég er því á þeirri skoðun, að við getum ekki látið af hendi nema eitt af skipunum. Ég vildi láta þetta koma fram í sambandi við þær umr., sem orðið hafa um varðskipin.

Um Hermóð er það að segja, að ég get verið flm. sammála um það, að ríkið getur að meinalausu losað sig við Hermóð. Hann var keyptur fyrir vitana og notaður til þess að flytja efni til byggingar vita og vistir til þeirra, sem vinna við vitana. En til þess þarf ekki sérstakt skip. Það hefir verið bent á, að við suðurströndina getur Skaftfellingur annazt þessa flutninga, enda er það till. samgmn. Reynslan hefir líka sýnt, að sumpart er hægt að flytja þetta með skipum Eimskipafél. og sumpart með strandferðaskipunum. Nú hefir líka dregið úr vitabyggingum vegna hins erfiða fjárhags ríkissjóðs, og engar líkur eru til þess, að flutningur efnis verði svo neinu nemi, og er þá hægur vandi að nota strandferðaskipin til þess að flytja það. Ég verð því að álíta, að ríkið geti sér að meinalausu látið Hermóð. En ég veit bara ekki, hvað er hægt að gera við hann. Hann er gamall hvalveiðabátur, sem búið er að leggja í mikið fé, og er hann þeirrar tegundar, sem ég efast um, að menn vilji eiga. Það mætti ef til vill nota hann til síldveiða. Hann gæti líka verið flóabátur. Í því sambandi má geta þess, að Ísfirðingar ættu að geta notað hann, því þeir hafa nú um tíma notazt við mjög ófullkominn bát. Ég álít því, að það ætti að reyna að leigja Hermóð, því ég býst við, að engar líkur séu til þess, að hægt sé að selja hann.

Um 4., 5., 6. og 7. brtt. hefir verið rætt allmikið. En ég vil ekki láta hjá líða að minnast á 6. brtt. sem er um að afnema prófdómendurna. Fyrst var hugmyndin sú, að láta hana ná til allra ríkisskólanna, en það hefir nú verið leiðrétt, sem betur fer, svo að nú eiga að vera prófdómendur við embættispróf í háskólanum og burtfararpróf í kennaraskólanum og fleiri skólum, sem nefndir eru. Ég get sagt fyrir mitt leyti, að ég er á móti þeirri stefnu, að kennararnir, sem hafa undirbúið nemendurna undir prófin, dæmi einir um frammistöðu þeirra. Ég held, að það ætti að vera regla, að utanaðkomandi menn dæmi a. m. k. um getu nemendanna, þegar þeir fara út úr skólunum. Ég álít, að það sé næstum því goðgá að láta kennarana eina dæma um hæfileika nemendanna við burtfararpróf, því það er vitað, að menn hafa náð prófi fyrir atbeina einstakra kennara. Þetta er auðvitað ekki algengt, en dæmi munu vera til þessa. Ég er því með till. að því leyti, sem hún gerir ráð fyrir því, að prófdómendur séu við embættispróf í háskólanum og burtfararpróf í kennaraskólanum, stýrimannaskólanum og vélstjóraskólanum. En ég býst við, að það þurfi að launa prófdómendur við fleiri skóla. En ég get sagt það, að ég er á móti þeirri stefnu, sem kemur fram í fyrri hluta till.

Um kvennaskólann skal ég ekki fjölyrða, og þarf ég að afla mér frekari upplýsinga áður en ég greiði atkv. um það, hvort rétt sé að skella skólanum á Reykjavík eða ekki. Yfirleitt er kvennaskólinn góður skóli, þó að það megi segja, að yfirleitt sé hann skóli efnaðra borgara í landinu, en það sannar ekki neitt um nauðsyn skólans, og mín skoðun er sú, að kvennaskólar séu nauðsynlegir bæði hér og annarsstaðar. Hitt greinir á um, hvað kenna eigi. Ég er enginn sérstakur fræðimaður, en ég hefi mína leikmannsskoðun á því, hvað beri að kenna húsmæðraefnum og hvað þeim sé mest áríðandi að kunna. Ég hefi mína persónulegu skoðun um þetta, en ætla ekki að fara frekar út í það.

Ég get svo látið útrætt um þessar till. að sinni. Ég þykist vita, að ýmislegt komi fram í umr., sem gefur ástæðu til að taka ýmislegt fleira fram en ég hefi gert í þessari ræðu minni.