16.12.1935
Efri deild: 96. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2148 í B-deild Alþingistíðinda. (3108)

184. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Sigurjón Á. Ólafsson:

Það eru örfá orð út af brtt., sem ég á; þær eru á þskj. 811. Ég er búinn að gera grein fyrir fyrri brtt., og skal ég ekki endurtaka það nú. Viðvíkjandi hinni brtt. vil ég taka það fram, að ég tel mjög nauðsynlegt að hafa prófdómendur við öll siglingafræðipróf og vélgæzlupróf, sem haldin eru úti um land. Skal ég ekki rökstyðja þetta meira en ég gerði síðast, þegar mikið var til umr., en þó vil ég segja það, að ég tel jafnnauðsynlegt að hafa prófdómara við þessi próf, sem ég nefndi, eins og við próf í skólunum hér í Reykjavík. Ég hefi bætt því inn í till., að menntaskólarnir skuli hafa aðkomna prófdómara við burtfararpróf, því að ég tel rétt, að kennaralið skólanna sé ekki haft til þess að prófa þá, sem ganga undir stúdentspróf. Ég legg miklu áherzlu á, að fá þetta samþ.