19.12.1935
Neðri deild: 103. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2158 í B-deild Alþingistíðinda. (3121)

184. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Forseti (JörB):

Ég skal aðeins geta þess út af atkvgr. um þá brtt., sem ég ber fram á þskj. 906, að ég hefi hugsað mér - og tel það líka fullkomlega þinglegt - að bera brtt. einstakra þm. upp við þá stafliði, sem eftir eru í frv., þegar búið er að samþ. brtt. mína, enda séu þær fluttar á eftir frvgr. og stílaðar við frv., þá geta þær allar komið til greina. En ef meiri hl. fellst é mína brtt., þá mun ég bera hana upp í einu lagi (HV: Hv. þdm. geta verið á móti brtt. hæstv. forseta). Ég ætla, að brtt. liggi nú fyrir um það, að fella niður alla þessa liði í frv., að einum undanskildum.