19.12.1935
Neðri deild: 103. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2169 í B-deild Alþingistíðinda. (3125)
184. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson [óyfirl.]:
Ég skal ekki lengja umr. mikið, en ég vil þó svara með nokkrum orðum því, sem komið hefir fram við þessar umr. - Ég vil þá byrja með því að svara síðasta ræðumanni, hv. þm. Borgf. Ég held, að hann hafi misskilið afstöðu mína til þessa frv. að verulegu leyti, svo að ég tel sjálfsagt að upplýsa hann um ástæðuna fyrir því, að ég vil fella niður þennan lið nú þegar; það er ekki af því, að ég sé mótfallinn þeim sparnaði, sem kynni að vera falinn í þessum lið, heldur af því, sem ég nú skal taka fram. Í einni till. er gert ráð fyrir, að ráðh. sé heimilað að sameina skólahéruð landsins. Ég lít í fyrsta lagi þannig á, að þótt þetta yrði samþ., þá fengist lítill sparnaður við það árið 1936, því að þetta kæmi ekki til framkvæmda fyrr en um haustið það ár. Í öðru lagi lít ég svo á, að þetta eigi ekki heima í þessu frv., heldur ætti að flytja það sem sérstaka breyt. við fræðslulögin, og tel ég nógu fljótt að gera þessa breyt. á næsta þingi. Ég er samþykkur efni þessarar till. og myndi þá verða því meðmæltur, að fræðsluhéruðin væru sameinuð. Hv. fjvn. hefir ekki reiknað með því í till. sínum við fjárlfrv., að þetta hefði sparnað í för með sér árið 1936.
Viðvíkjandi till. um að leggja rafmagnseftirlitið undir landssímastjóra vil ég segja það, að ég álít engan sparnað af því leiða, því að það yrði að hafa eitthvert eftirlit í einhverju formi eftir sem áður, og breytingin yrði því bara sú, að landsímastjóri hefði yfir eftirlit með þessu; en slíkt væri vitanlega enginn sparnaður. Hinsvegar er ég ekki á móti þessu sérstaklega út af fyrir sig. Þess ber og að gæta, að landssímastjóri hefir nú þegar í svo mörg horn að líta, að það virðist varla fært að bæta á hann fleiri störfum.
Af því, sem nú var sagt, legg ég ekki áherzlu á, að þetta nái fram að ganga. Um það að fella niður 1. bekk kennaraskólans er sama að segja frá mínu sjónarmiði og um heimild fyrir ráðh. að sameina fræðsluhéruðin. Ég lít þannig á, að rétt sé að flytja þessa till. í sambandi við þau lög, sem fjalla sérstaklega um skipulagningu skólamálanna, og til þess er nógur tími á næsta þingi, enda kæmi sparnaður af þessu ekki fram fyrr en haustið 1936. Á sínum tíma mun ég einnig verða því fylgjandi, að þessi breyt. verði gerð.
Um þá breyt., að kvennaskólinn verði felldur undir ganfræðaskólalögin vil ég segja það, að ég tel þá ákvörðun ekki eiga heima í þessu frv. Ég lít þannig á, að hv. meiri hl. fjvn., sem nú flytur brtt. við fjárl. um að gera það að skilyrði fyrir framlagi til kvennaskólans, að komi frá Reykjavík, hafi rétt fyrir sér í þessu efni, og tel ég það rétta málsmeðferð. Mun ég því greiða atkv. með þessum sparnaði á þessum grundvelli. En ég hygg hinsvegar, að það sé ekki eins rétt að setja lagaákvæði um það, að þessi skóli skuli lúta sömu lögum og gagnfræðaskólarnir. Það er því mesti misskilningur, að í minni afstöðu felist einhver lítilsvirðing á þeirri viðleitni, sem hv. meiri hl. fjvn. hefir haft til sparnaðar á þessu þingi. Ég veit ekki betur en að ég hafi stutt þessa hv. n. í hverri sparnaðarráðstöfun, sem hún hefir komið fram með.
Þá vil ég víkja nokkrum orðum að rökunum gegn því að fresta prentun umræðuparts þingtíðindanna. Það er talað um að það sé lítill sparnaður. Eftir því, sem skrifstofa Alþingis hefir reiknað út, er áætlað, að af þessu leiði 40 þús. kr. sparnað á árinu 1936, en svo hér þess að gæta, að þessi sparnaður á þessu ári verður meiri, vegna þess, að verði till. ekki samþ., þá munu koma til prentunar þingtíðindin frá árinu 1935, svo að þessu sinni verður í raun og veru meiri sparnaður heldur en 40 þús. kr. ég skal viðurkenna það, að hagur ríkisprentsmiðjunnar myndi skerðast lítið eitt við þessar ráðstafanir, en hinsvegar er ég ekki í nokkrum vafa um það, að sparnaðurinn við þessa frestun mundi meira en vega upp á móti þessum tekjumissi ríkisprentsmiðjunnar, svo að sparnaðurinn að þessu næsta ár yrði áreiðanlega minnst 40 þús. kr. Því hefir verið skotið fram, að ríkissjóð munaði ekkert um þetta, því að þetta væri svo lítil upphæð. En slíkt hið sama má segja um allar sparnaðartill. og hverja upphæð, sem spöruð er. Þegar margar upphæðir, þó smáar séu, safnast saman, þá verður úr því mikið fé, sem ríkissjóð munar mjög mikið um.
Hv. 2. þm. Reykv. minntist á það, að nál. lengdust mikið, ef prentun umræðupartsins yrði frestað, og skal ég fallast á, að það er rétt. En það er líka reiknað með því í áætlun skrifstofustjóra, að skjalaparturinn lengist allverulega við þessa breyt. Og sú upphæð, sem ég benti á, að myndi sparast, er fengin út með því að taka þetta sjónarmið til greina að verulegu leyti, þótt ekki sé hægt að segja það alveg með vissu, hversu mikill aukakostnaður stafar af aukningu skjalapartsins.
Ég ætla ekki að eyða mörgum orðum í það að ræða um þýðingu þingtíðindanna. En ég vil þó aðeins minna á það, að aukinn blaðakostur og útvarpið hafa mjög rýrt gildi þingtíðindanna fyrir þjóðina. Hv. 6. þm. Reykv. sagðist ekki skilja, að nokkur stjórnarandstæðingur væri því fylgjandi að fresta prentun umræðupartsins, en ég hefi samt orðið var við, að margir hv. stjórnarandstæðingar líta þeim augum á þetta, að nú sé, eins og nú standa sakir, fullkomin ástæða til þess að framkvæma þessa frestun.
Um landhelgisgæzluna skal ég ekki vera fjölorður. Hv. þm. Borgf. hefir að verulegu leyti skýrt út, hvað fyrir mönnum vakir með því að heimila sölu á varðskipunum. Eins og mönnum er kunnugt, er riðgerð skipulagsbreyt. á landhelgisgæzlunni á barn hátt, að gert er ráð fyrir, að notuð verðs smáskip, en þau stóru Látin hverfa. Ég skal taka það fram, að ég legg þann skilning í till. hv. þm. Borgf. - og vil ég óska, að hann leiðrétti það, ef það er ekki rétt - að hann eigi við, að það séu hafðir 4 vopnaðir vélbátar við landhelgisgæzluna yfirleitt, en ekki að þeir þurfi allir að vera við gæzluna í einn.