21.12.1935
Efri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2202 í B-deild Alþingistíðinda. (3186)

190. mál, málning úr íslenzkum hráefnum

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Ég get ekki annað en verið dálítið hissa, hvað mikið kapp er lagt á að ná fram á þessu þingi frv. því, sem hér liggur fyrir, sérstaklega þegar á það er lítið, hve skammt er þangað til þing kemur saman aftur, - að því viðbættu, að síðan málið kom hingað í deildina hefir verið upplýst, það eru töluvert fleiri menn en þessir umsækjendur, sem hafa lagt í kostnað við hagnýta þessi efni, sem verið er að sækja um einkaleyfi á til að hagnýta, og þegar þess er ennfremur gætt, að aðrir menn hafa töluvert betri skilyrði til að hagnýta og vinna þessi efni í stærri stíl en þessir 2 menn, sem hér ræðir um.

Ég hefi aflað mér nokkurra upplýsinga um þetta milli funda, og eru það sérstaklega 2 menn, sem hafa lagt í þessar athuganir, og er annar þeirra framkvæmdastjóri fyrir langstærsta fyrirtækinu í þessari grein, sem hefir h. u. b. helming allrar verzl. í landinu með þessar vörur. Mér finnst það hart, þegar fyrirtæki, sem hafa svona mikla möguleika til að selja, og m. a. er við riðinn sá maður, sem mesta og elzta þekkingu hefir á þessu sviði, og góða aðstöðu til að ná góðum samböndum, - þegar slíku fyrirtæki er neitað um sérleyfi. Ég neita því að vísu ekki, að þessir 2 menn, sem samkv. frv. eiga að fá einkaleyfið, geta verið duglegir í sinni grein, en mér er ekki kunnugt um, að þeir séu þekktir þar út fyrir. - Ég verð að segja, að mér finnst stefnt í óefni með því að hraða svona afgreiðslu þessa máls. Mér er kunnugt um, að utan þings hafa farið fram samningaumleitanir þessara manna og e. t. v. við ráðh., og ég teldi æskilegra, að þeir samningar næðust, sem ég tel möguleika á heldur en flaustra svona þessu máli.

Þessir menn, sem utan við standa, hafa um mörg ár unnið að undirbúningi og rannsóknum. Hví eiga þeir að verða afskiptir? Mér finnst eðlilegt að afgr. þetta mál með rökst. dagskrá. Ég fyrir mitt leyti er á móti því, að mönnum sé veitt víðtækt einkaleyfi til að vinna efni úr íslenzkri mold. Mér finnst það óviðfelldið. Samt fyndist mér nokkuð annað, ef athugað væri, hvaða möguleikar eru í þessu, og hverjir hafa unnið að þessu undanfarið, og þeir yrðu ekki afskiptir.

Þá vil ég hreyfa hér einu atriði. Mér hefir skilizt, að þetta frv. eða einkaleyfi hindraði ekki að flytja út óunnin efni, og sé ekki annað bannað en að vinna úr þeim hér af öðrum en þessum 2 mönnum. Ég skil þetta svo, en ekki að bannað sé að flytja ísl. efni óunnin út til erlendra verksmiðja, enda verð ég að segja, að þá fyndist mér skörin vera farin að færast upp í bekkinn, ef íslenzkar leirtegundir markaðshæfar mætti ekki grafa úr jörð og flytja út. Mér skilst, að þetta nái aðeins til þeirra efna, sem vinna má málningu úr. Af því að dálítill rekspölur er kominn á það mál, að útlendar verksmiðjur kaupi íslenzk hráefni og flytji út, er ekki alveg ástæðulaust að æskja svars hæstv. ráðh. við þessum aths. Ég vil því mælast til þess við hann, að athuga, hvort orðalagið í 2. gr. útilokaði þessa sölu, sem a. m. k. eitt fyrirtæki hér í bænum hefir von um að gera að útflutningsvöru. Það væri einkennilegt, ef komið yrði í veg fyrir, að flytja mætti út ísl. jarðveg, en það er kunnugt, að t. d. England kaupir að mikið af slíkum hráefnum. - Ég vil svo að lokum lesa upp svo hljóðandi rökst. dagskrá, sem ég vil leyfa mér að bera fram og mun síðan afhenda hæstv. forseta:

Þar sem það hefir komið fram undir meðferð málsins, að fleiri menn en þeir, sem í frumv. er getið, hafa haft með höndum rannsókn og undirbúning í þá átt, sem hér er um að ræða, en tími vinnst ekki til þess að laga frumv. eftir því, sér deildin sér ekki fært að afgreiða málið að svo komnu og tekur fyrir næsta mál í dagskrá.