05.12.1935
Efri deild: 87. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2210 í B-deild Alþingistíðinda. (3197)
172. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins
Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson) [óyfirl.]:
Hv. minni hl. allshn. hefir nú gert nokkra grein fyrir sinni afstöðu til málsins. Mér skilst, sem minni hl. sé innbyrðis ekki fyllilega sammála og að það muni eiga að koma betur fram síðar. Mér skildist og á hv. frsm., að hann teldi í raun og veru ekki ávinning í því að auka ferðamannastraum til landsins, því öll ræða hans gekk út á það, að það væri varhugavert og hættulegt og till. hans hnigu allar í þá átt, að gera sem minnst. Allshn. hefir fengið það upplýst, að á þessu ári hafi borizt til landsins um 200000 kr. í erlendum gjaldeyri vegna ferðamanna. Um það eru engar heimildir fyrir hendi, hvort þetta er meira eða minna en áður hefir verið, en í því mikla gjaldeyrishungri, sem nú þjáir okkur, þá er það sýnilegt, að ef leið væri til þess að auka þessa upphæð verulega, þá væri það eitt út af fyrir sig stór ávinningur fyrir þjóðina.
Ennfremur má benda á, að í gegnum kynningu við slíka menn getum við fengið ýms sambönd og hrein og bein verzlunarviðskipti. Engu af þessu virðist hv. 10. landsk. vilja reikna með, þegar talað er um aukinn ferðamannstraum til landsins. Hann drap á það, sem ég einnig gerði, að gistihúsin væru helzt til lítil. Ég skal játa, að gistihúsvandræði yrðu okkur e. t. v. örðug í bili, en úr þeim má bæta svo að viðunandi sé fyrir alla ferðamenn, sem dvelja hér bezta tíma ársins. Hv. þm. segir, að ferðamannastraumurinn eigi að koma smátt og smátt. Það er hætt við að um það fari eins og mér er nær að halda, að aukningin verði mjög smávægileg. Hv. frsm. minni hl. minntist á, að skattarnir væru orðnir nógir, þó að ekki væri bætt við þessum skatti, sem hér er gert ráð fyrir, að geti numið 50 þús. kr., og hann á aðeins að koma niður á einum aðila, sem sé þeim, sem hafa einkaleyfi til að flytja fólk á langleiðum. Hann heldur, að þau leyfi þyki ekki þess virði, að það megi íþyngja þeim, sem þau hafa, með þessu gjaldi, og taldi, að ekki yrði jafnmikill ávinningur að halda uppi ferðum eftir sem áður. Ég held nú, að sérleyfishöfunum verði ekki íþyngt til muna, þó að 5% skattur verði á þá lagður. Annars ætla ég ekki að fara að tala um skattafrv. almennt. Við getum rætt það við annað tækifæri. Það liggur að vísu ekki fyrir áætlun um, hvað kostar að reka slíka skrifstofu, en það eru a. m. k. líkur til, að þessi upphæð muni nægja. Ég held, að það sé ástæðulaust að halda, að um meiri fjárútlát verði að ræða en hér er gert ráð fyrir, eins og ég sagði í upphafi míns máls. Ræða hv. 10. landsk. benti til þess, að þetta ætti að vera stórhættulegt fyrirtæki. Hv. þm. hélt því fram, að við myndum safna að okkur fleiru fólki en við gætum tekið á móti. Nú skulum við gera ráð fyrir þeim möguleika, að hingað kæmi óeðilega mikill straumur, þá má ekki gleyma því, að ferðamannaskrifstofan hlýtur að hafa skipulag á því, í hvaða röð ferðamannaskipin koma, svo að sem minnstur árekstur verði. Ef þetta skipulag væri ekki og mörg skip kæmu e. t. v. í einu, þá gæti orðið óþægilegt að taka á móti þeim öllum í einu. En það er einmitt þetta, sem ferðamannaskrifstofan á að sjá um, að ekki komi fyrir. Það ætti hún að geta með þeim samböndum, sem henni er ætlað að hafa við erlend ferðafélög.
Þá minntist hv. þm. á það, að ríkisrekstur á slíkum fyrirtækjum og ferðamannaskrifstofum væri aðeins í Rússlandi og Ítalíu. Ég skal játa, að við erum nú líklega jafnfróðir um það, hvaða l. gilda um þetta hjá öðrum þjóðum, en í grg. eru talin upp auk þessara landa Tjekkoslovakia, Þýzkaland og Austurríki. Að vísu er í Austurríki og Þýzkalandi hliðstætt fyrirkomulag og í Ítalíu. Með þessum l. er gert ráð fyrir, að komið verði á fullkomnu skipulagi, svo sem bent hefir verið á, að er í Noregi og Svíþjóð. Þar er fyrirkomulagið þannig, að það er falið einum félagsskap, sem hefir þessi mál með höndum. Það er alveg áreiðanlegt, að það er því að þakka, að í Noregi er ferðamannastraumurinn búinn að vera svona marga áratugi. Þar þótti nauðsynlegt að setja þetta undir eina sameiginlega stjórn, sem í norsku máli heitir „Landslaget“. Þetta mun ekki vera neitt eins dæmi, hvað sem um Sviss er að ræða. Það liggur ekkert fyrir um skipulag þar, enda mér ókunnugt um það og skal því ekki dæma um það, en ég býst við, að Sviss hafi áreiðanlega komið á einhverju skipulagi um þetta. Þá minntist hv. þm. á það, og var að draga í vafa, hvað þessi kostnaður við flutning erlendra ferðamanna yrði mikill, og hélt því fram, að ekki yrði nægilegt upp úr því að hafa, þegar þessi tvöfaldi skattur - benzínskatturinn - yrði kominn á, en hann hefir nú ekki verið samþ. á alþ. enn. En við skulum nú gera ráð fyrir, að hann geti komið, þá geri ég ekki ráð fyrir, að benzínið til af fyrir sig yrði svo þung byrði, að menn gætu ekki ferðazt eftir sem áður, því að þörfin fyrir fólkið að komast ferða sinna minnkar ekkert fyrir það, þó að fargjöldin hækki. Reynslan hefir verið sú, að fólk vill miklu heldur ferðast með bílum þann tíma, sem fært er, þó að það þurfi að borga meira fyrir það Ég býst við, að innlendi ferðamannastraumurinn myndi ekki minnka, þó að tilkostnaðurinn ykist. Þá kom hv. frsm. með það, að svo gæti farið að þessar 50 þús. kr. nægðu ekki til að halda uppi þessari ferðaskrifstofu. Hann vildi láta nægja, að fá ríkisútvarpið til þess að flytja fræðandi erindi um Ísland, þegar færi að vora. Ég er ekki viss um, að þetta yrði beinlínis til þess að hvetja menn til að koma hingað, af því að þessir fyrirlestrar yrðu aðallega fræðilegs efnis. En aftur á móti myndi ferðamannaskrifstofan benda mönnum á, hvað vert væri að sjá í landinu og gefa upplýsingar um, hvernig heppilegast væri að ferðast. Það er gert ráð fyrir, að hún hafi það verkefni með höndum að gefa út rit, einmitt með það fyrir augum að kynna landið erlendis. Í öðru lagi að halda uppi fyrirlestrastarfsemi og kannske fá erlenda menn til að halda fyrirlestra hvern í sínu landi. Loks eru það kvikmyndirnar. Þó hefir verið bent á, að hægt væri að gefa upplýsingar um landið okkar í lifandi myndum, þar sem sýnd væri náttúrufegurð þess, atvinnuhættir landsmanna og þar sem einnig mætti sýna ýmsar afurðir, en það gæti haft mikla þýðingu fyrir útflutning okkar. Hér er því sýnilega um stórt hlutverk fyrir skrifstofuna að ræða - verkefni, sem á kannske eftir að sýna sig sem ómetanlegt gagn fyrir land okkar og þjóð, fjárhagslega og menningarlega séð. En þessu hefir því miður hingað til enginn gaumur verið gefinn. Ég er ekki að áfellast neinn sérstaklega fyrir þetta. Ég veit, að þetta útheimtir sérstaklega skipulagsbundið starf og nokkur fjárútlát. Ég skal játa, að við höfum sennilega ekki jafnfullkomna leiðsögumenn ferðamanna eins og vera ætti, og ég býst við, að hægt væri að koma því í lag, þótt ekki væri stofnuð ferðaskrifstofa. En vitanlega verður ferðaskrifstofan að tryggja sér til þessa hæfa menn, sem geta gefið réttar og ábyggilegar upplýsingar um landið. En þessu hefir verið ábótavant í einstökum tilfellum. Viðvíkjandi erlendum ræðismönnum skal ég ekki hafa á móti því, að þeim verði gert að skyldu að veita meiri upplýsingar uni landið. Mér er kunnugt um, að flestir þessara manna eru útlendir menn, sem hafa þetta að aukastarfi og hafa e. t. v. mjög litlar „interessur“ fyrir okkar þjóðerni og vilja lítið leggja sig í framkróka í þessu efni, enda hygg ég, að störf þeirra séu lítið launuð. Menn ættu ekki að leggja mikið upp úr slíkum falsvonum, og ég geri ekki ráð fyrir, að við getum grætt ýkjamikið á því, að þeir kynni öðrum þjóðum landið. Hitt er annað mál, að þeir munu ekki amast við því, að þeim verði lögð í hendur þessi skilríki. Ég hefi talað við fjölda manna, sem hafa haft viðskipti við þessa menn, og þeir segja, að þetta séu upp og niður menn - flestir þeirra séu þurrir og drembnir, sem bera nafnið og ekkert annað.
Ég held, að það sé nú ekki fleira, sem ég þarf að svara hv. 10. landsk. og skal því ekki hafa þetta mál mitt lengra.