05.12.1935
Efri deild: 87. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2221 í B-deild Alþingistíðinda. (3200)
172. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins
Forseti (EÁrna):
Ég vil vekja athygli hv. þdm. á því, að þingsköp mæla svo fyrir, að við 2. umr. um frv. sé rætt um einstakar gr. frv. og brtt., sem fyrir liggja, en ekki nema sem allra minnst um málið almennt. Það er kunnugt, að það eru mikil störf, sem fyrir þessu þingi liggja, þann tíma, sem það á eftir að standa að þessu sinni.
þess vegna þarf að haga þingstörfum þannig, að þingið geti afkastað sem mestu verki á sem stytztum tíma. Ég vil beina þeirri ósk til hv. þdm., að þeir hér eftir á þessu þingi fylgi þeirri reglu að tala samkv. þeim reglum, sem þingsköp ætlast til, og haldi sig yfirleitt að því að tala um einstakar gr. frv. við 2. umr. en almennt um málin við aðrar umr. Ég býst svo við að fresta umr. um þetta mál um stund og taka fyrir fyrsta málið á dagskránni.