07.12.1935
Efri deild: 89. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2232 í B-deild Alþingistíðinda. (3209)

172. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Ég á eina brtt. á þskj. 711, við 5. gr. frv., um að síðasti málsl. gr. falli burt, og vildi ég mælast til þess, að hún yrði samþ. Þó þetta sé ekki annað en heimild fyrir ferðmannaskrifstofuna, að ákveða, að útlendir ferðamenn skuli sitja fyrir innlendum um rúm í gistihúsum, þá finnst mér ekki vera rétt að hafa þetta ákvæði í frv. Ég held, að það geti ekki komið til mála að gefa út í reglugerð fyrirmæli um þetta. - Um brtt. hv. 1. þm. Reykv. er það að segja, að hann virðist leggja mikla áherzlu á, að þessi störf verði ekki tekin af þeim skrifstofum, sem hafa rækt þau hér á landi undanfarið; en ég sé ekki, að það sé mikið í húfi, þó slík verkefni séu tekin af þessum ferðamannaskrifstofum, sem hér hafa starfað og eru á góðum vegi með að eyðileggja ferðamannastrauminn til landsins. Það er til hreinustu vanvirðu fyrir þjóðina, hvernig sumar þeirra hafa hagað störfum sínum og beitt sér gagnvart útlendingum.

Viðvíkjandi 2. brtt. hv. þm., að ekki sé hægt að taka veitingaleyfi af gistihúsi, ef þar er sóðaleg umgengni og slæmur aðbúnaður fyrir ferðamenn, þá er það að segja, að ákvæði þess efnis eru nú í lögum, og t. d. er svo fyrir mælt í lögreglusamþykkt Reykjavíkur. Ef sóðalega er umgengið á kaffihúsum og veitingastöðum hér í bænum, þá má taka af þeim veitingaleyfið. Enda er það ekkert tiltökumál. Það er vitað, að á gistihúsum og veitingastöðum hér á landi er yfirleitt sóðalegri umgengni en á erlendum gistihúsum. Þess vegna er full ástæða til, að hafa heimild fyrir því í lögunum, að ríkistj. megi svipta eigendur gistihúsa og veitingahúsa réttinum til þess að reka þau, ef þeir hafa eigi látið skipast við umvöndun ferðamannaskrifstofunnar. Því aðalkrafa erlendra ferðamanna, og sú, sem þeir leggja mesta áherzlu á, er, að umgengnin á gistihúsum sé sem þrifalegust.

Um síðustu brtt. hv. þm., þar sem lagt er til, að 8. gr. verði felld úr frv., er það að segja, að mér finnst hún ekki fráleit. Ég vil spyrja hv. n., hvað vakað hafi fyrir henni með þessari gr., og ef n. gefur ekki fullgildar skýringar á því, þá sýnist mér í raun og veru rétt að fella hana niður. Ég sé ekki betur en að efni hennar sé nægilega ljóst fram tekið í 7. gr. frv.