12.12.1935
Neðri deild: 97. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2238 í B-deild Alþingistíðinda. (3219)

172. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins

Garðar Þorsteinsson [óyfirl.]:

Ég vil ekki láta þetta mál fara orðalaust til 2. umr.

Það er kunnugt, að stj. leggur mikla áherzlu á það, af ýmsum ástæðum, sem ég mun víkja að síðar, að koma þessu frv. fram. í grg. frv. eru nokkur atriði tekin fram sem rök fyrir frv. En þrátt fyrir það hefi ég ekki getað sannfærzt um, að ríkið eigi að reka þessa stofnun. Því verður ekki neitað, að æskilegt er, að ferðamannastraumurinn hingað fari vaxandi, bæði til þess að rétt þekking á þjóð og landi megi fara vaxandi erlendis, og jafnframt vegna hins beina hagnaðar, sem þjóðin hlýtur að hafa af komu slíkra gesta. En eins og ég mun færa rök að, get ég engan veginn séð að þessi tilgangur náist bezt með ríkisrekstri á ferðamannaskrifstofu hér.

Þær stofnanir, sem hvarvetna beita sér fyrir ferðalögum, eins og þeim, sem hér ræðir um, og beina þeim í vissar áttir, eru hin stóru gufuskipafélög og ferðamannaskrifstofur erlendis, sem hafa umboð í öllum helztu borgum heimsins. Þessar stofnanir beita sér fyrir ákveðnum ferðum með ákveðnum skipum, og gera það auðvitað fyrst og fremst með allskonar víðtækri auglýsingastarfsemi. Fyrsta skilyrðið fyrir því, að ferðamannastraumurinn beinist hingað meira en verið hefir, er því að standa í föstu og góðu sambandi við hinar miklu og þekktu ferðamannaskrifstofur erlendis. En nú er mér sagt með góðum heimildum, að ferðamannaskrifstofur þar, Cook's og Bennet's, sem einkum hafa séð um slík ferðalög hingað, eða a. m. k. önnur þeirra, hafi látið svo um mælt, að ekki myndi, af þeirra hálfu verða lagt kapp á það að beina straumnum hingað, ef þessi hugmynd um ferðamannaskrifstofu ríkisins verður framkvæmd.

Ég fæ ekki séð, að nein frambærileg rök séu fyrir því, að betri árangur náist með ríkisrekstri heldur en þótt einstaklingar annist allar móttökur, eins og hingað til. Straumurinn hingað hefir farið stórum vaxandi hin síðustu ár fyrir atbeina þeirra, sem fyrir þeim móttökum hafa staðið. Ferðaskrifstofurnar hérna eru umboðsskrifstofur fyrir Cook og Bennet, en eins og ég hefi sagt áður, eigum við ferðamannastrauminn fyrst og fremst undir starfsemi þeirra stofnana. Það er fjarri því, að ég sé á móti því, að hið opinbera láta til sín taka um það, hvernig landið skuli auglýst og um sambandið milli ferðamannaskrifstofanna og gestanna, ef ástæða þykir til. En ég legg áherzlu á það, að fellt sé niður, að ríkisstj. hafi íhlutun um rekstur slíkrar skrifstofu. Ég tel víst, að nást myndi eins góður og sjálfsagt betri árangur af auglýsingastarfsemi, sem rekin væri með samvinnu ríkis og ferðamannaskrifstofanna, heldur en að hún væri í höndum ríkisins eins. Ýmsar tilraunir í auglýsingaráttina hafa þegar verið gerðar með góðum árangri fyrir atbeina ferðamannaskrifstofanna og íslenzkra ræðismanna erlendis. Þannig hafa góðir bæklingar um land og þjóð verið gefnir út á hinum þrem höfuðmálum, ensku, þýzku og frönsku. Nú hefir útvarpið bætzt við í þjónustu þessarar starfsemi. Það er engin hætta á, að ferðamannaskrifstofur þar, sem nú eru, myndu setja sig upp á móti slíkri starfsemi af hálfu ríkisins, heldur þvert á móti. Kynningarstarfsemi ætti því að geta orðið rekin með jafn góðum árangri, þótt ríkið reki ekki ferðamannaskrifstofu. Ríkið á að stuðla að slíkri kynningu, eins og það hefir þegar gert að nokkru leyti með fyrirlestrum, útgáfum bæklinga, filmum og fræðslu í útvarpi, og öll slík kynning yrði auðveldari og áhrifameiri í samvinnu við þær skrifstofur, sem hér eru fyrir.

Ég get ekki séð, að sleginn sé neinn varnagli við því, að útlendir ferðamenn verði ekki látnir greiða fyllilega fyrir sig, þótt ríkið taki að sér þennan rekstur. Enda hafa allar aðdróttanir og álygar rauðliða og blaða þeirra um okur á erlendum ferðamönnum verið kveðnar gersamlega niður. Seinast í dag er í Morgunblaðinu sundurliðaður reikningur yfir 4 daga dvöl erlendra ferðamanna hér, og sést af þeim plöggum, að þessir menn hafa jafnvel verið látnir borga heldur minna fyrir sig en tíðkast um íslenzka menn. Hitt dettur engum manni í hug að bera í bætifláka fyrir, ef það reyndist rétt, að einhver, hvort sem það væri nú bílaeigandi eða gestgjafi, misbeitti aðstöðu sinni í þessum efnum. En stj. er ekkert hægara en að slá varnagla við slíku hugsanlegu okri með almennri löggjöf. Annað en gistihús og bifreiðar kemur hér ekki til greina, nema þá túlkar, sem upplýst er um, að séu ódýrari hér en annars staðar. Hinsvegar er það með öllu rangt og ómaklegt, sem sagt er í grg., að leiðsögumenn vorir séu framúrskarandi þekkingarsnauðir, bæði í erlendum málum og um landið sjálft. Þetta kann að vísu að vera satt í örfáum tilfellum, en ég sé ekki, hvernig ríkið getur sneitt hjá slíku, þegar slíkan fjölda túlka þarf, eins og þegar 2-3 stór ferðamannaskip koma í einu. Þessi ummæli eru því aðeins illgirnisleg árás á þá menn, sem þetta hafa stundað undanfarið enda ekki við góðu að búast, þegar litið er á það, hverjir að samningu frv. hafa staðið.

En það er m. a. ein mjög sterk ástæða fyrir stjórnarflokkana að koma þessu máli fram, auk hinnar venjulegu kúgunartilhneigingar. Það er nefnilega fullyrt, að það sé ákveðinn maður úr stjórnarliðinu, sem fá eigi bitling þennan. Og þegar svo stendur á, er auðvitað ekki verið á það að líta, þó að einstaklingar utan liðsins og þjóðin í heild líði tjón af tiltektunum. Ég hefi tekið það fram, að ég tel rétt, að til séu almenn lagafyrirmæli um ferðamannaskrifstofur, verð og álagningu o. þ. h. En til þess þarf ríkið ekki afi grípa til slíkra kúgunarráðstafana, sem allir skaðast á, en engin græðir, nema sá eða þeir, er bitlingana fá við stofnunina.

Ef svo er, sem ég hefi ekki ástæðu til að véfengja, að sú skrifstofa, sem ræður í raun og veru mestu um ferðamannastrauminn hingað, sem er Cook‘s-skrifstofan, hafi látið svo um mælt, að hún mundi ekki beita sér fyrir því að beina ferðamannastraumi til landsins, ef þetta frv. næði fram að ganga, þá er það svo mikilsvert atriði, að það er næstum því útilokað, að þeir, sem standa að frv., vilji láta það ná fram að ganga.