17.12.1935
Neðri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2274 í B-deild Alþingistíðinda. (3242)
172. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins
Sigurður Kristjánsson [óyfirl.]:
Ég neyðist til þess að taka til máls aftur vegna ummæla hv. þm. Hafnf.
Ég kann illa við það, af því að ég gaf ekki tilefni til þess, að tekið yrði mjög óvinsamlega undir mína ræðu, að hv. þm. Hafnf. hafði eftir mér ummæli, sem ég alls ekki viðhafði. En þetta er mönnum náttúrlega viðkvæmt mál og þeim tekur sárt til þess, enda skal ég gjarnan taka tillit til þess. En hv. þm. Hafnf. verður að venja sig á að segja satt. Það er auðvelt, ef menn vilja leggja sig niður við bað, að skýra frá því, að annar maður hafi sagt allt annað en hann sagði. En það er ekki góðra manna háttur að haga sér þannig.
Úr því að svona fór, að ég stóð upp aftur, þá skal ég byrja á að leiðrétta það mikla hneykslismál, sem mér virtist hv. þm. álíta að væri, að ég að ég hafði sagt, að það ætti að knýja þetta mál fram með svigurmælum. Nú vildi hv. þm. Hafnf. snúa því þannig við, að ég hefði verið að ávíta andstæðinga mína fyrir ósæmilegt orðbragð, og vildi álíta, að meiri þörf hefði verið á, að snúa slíkum aðfinnslum til minna samherja. Ég sagði ekkert orð um það, hvernig umr. féllu, en ég taldi það óviðeigandi og enga þörf að knýja mál fram með slíku offorsi, sem hér er gert. Hér stóð upp þm. í gærkveldi, sem er ekki viðstaddur nú, og vildi krefjast þess af hæstv. forseta, að hann léti okkur sjálfstæðismenn ekki hafa venjulegan fundartíma til þess að halda flokksfund, sem okkur var nauðsynlegur til þess að undirbúa brtt. við fjárl. Þessi hv. þm. sem er hv. 2. þm. Reykv., vildi knýja hæstv. forseta til þess að taka af okkur þennan fundartíma til þess að knýja þetta mál fram á næturfundi, en að öðrum kosti, að við lofuðum að veita afbrigði frá þingsköpum til þess að þetta mál gæti náð fram að ganga. Ég kallaði þetta að knýja mál fram með svigurmælum og tek það ekki aftur. En um það, hvernig ræður hata fallið um þetta mál, hefi ég ekkert sagt, fyrr en nú, að ég við segja, að framkoma hv. þm. Hafnf. hafi verið ósæmileg, því að hann gerði mér upp ummæli, sem ég aldrei viðhafði. En annað, sem ég sagði um undirbúning þessa máls, var það, að ekki hefði verið leitað til þeirra manna, sem helzt höfðu praktíska reynslu í þessum efnum. Þetta er rétt, enda hefir hv. þm. Hafnf. ekki reynt að afsanna það.
Ég sagði um grg. frv., að hún væri löng og leiðinleg, og ég held, að enginn geti annað sagt. En hv. þm. Hafnf. vildi ekki við annað kannast en að málið væri mjög vel undirbúið, og sagði, að það hefði verið flutt á þinginu í fyrra. En nú hafa flm. þess komizt að þeirri niðurstöðu, að það hafi ekki verið flutt á réttum grundvelli í fyrra.
Það er einkennilegt, að hér hefir verið sett á stofn nefnd, sem kostar tugi þúsunda og er kölluðu skipulagsnefnd atvinnumála. En flest, sem hún gerir, er alveg óviðkomandi atvinnumálunum. Hún hefir samið mörg frv., en fæst hafa orðið að lögum. N. er nú upp á síðkastið ekki orðin annað en einkafyrirtæki hjá sósíalistum til þess að unga út frv., allskonar óskapnaði, og þetta er eitt af því, sem hún hefir ungað út, sem algerlega er óskylt skipulagningu á atvinnumálum. (EmJ: Er ekki móttaka ferðamanna atvinnuvegur?). Við vitum ósköp vel, hverjir atvinnuvegir eru stundaðir hér á landi, og hingað til hefir ekki móttaka ferðamanna verið talinn atvinnuvegur. Það getur ekki talizt mikilsverður atvinnuvegur, ef það þarf að leggja nýja skatta á fólkið til þess að halda uppi þessari skrifstofu. Það er alveg óhæfilegt, að leggja sérstakan skatt á alla þá, sem þurfa að ferðast innanlands, til þess að ríkið geti haldið uppi þessari skrifstofu. Vitanlega eiga þeir einir, sem einhvers góðs njóta af þessari skrifstofu, að borga fyrir það, hinir ekki. Hvað mundu þeir njóta góðs af þessari skrifstofu, sem fara með áætlunarbifreiðum, t. d. til Hafnarfjarðar? Þeir mundu einskis góðs af henni njóta. Auðvitað á sú skrifstofa, sem sér um ferðalög erlendra ferðamanna, að hafa sínar tekjur af ferðalögum þeirra og annara ekki. Ef þarf að kosta einhverju til annars, t. d. kynningarstarfsemi, þá á ríkissjóður að bera kostnaðinn af því, en ekki fólkið, sem ferðast um landið. Það er merkilegt, að hv. flm. þessa máls skuli hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að það þyrfti að forða erlendum ferðamönnum úr greipum þeirra manna, sem hafa séð um þessi ferðalög undanfarið.
Síðan þetta mál kom á dagskrá hefi ég spurt menn, sem aðstöðu hafa til þess að vita það, hvernig útlendingar, sem hér hafa ferðazt, beri Íslendingum söguna. Ég hefi að vísu ekkert í höndum um þetta, en ég trúi því, að þessir menn segi satt. En mér hafa verið hermd fjölda mörg lofsamleg ummæli um það, hvernig með þá sé farið. Og það mun vera mjög sjaldgæft, þegar þessir menn segja frá heima, að þeir kvarti undan illri meðferð, að þeir séu snuðaðir í viðskiptum eða farið illa með þá á annan hátt eða að þeir fái ekki að skoða þá staði, sem þeim er hugleikið að sjá, og fái ekki sæmileg farartæki og kurteisa menn til fylgdar. Yfirleitt munu þeir fara lofsamlegum orðum um viðtökur og allar fyrirgreiðslur hér á landi.
Ég veit, að erlendir ferðamann njóta ekki verri aðbúðar heldur en innlendir ferðamenn, og ég hefi ferðazt mikið með bifreiðum hér innanlands, og ég get ekki borið bifreiðastjórunum annað en það, að þeir hafa bæði verið áreiðanlegir og sérstaklega kurteisir. Ég skil því ekki, að menn hafi undan neinu að kvarta. En það er að vísu aldrei hægt að girða fyrir, að í einstökum tilfellum sé misbrestur á þessu, en það hefir ekki gildi almennt.
Hv. þm. Hafnf. minntist á Eimskipafélagið og sagði, að það hefði mælzt undan því að laða menn til landsins, en við verðum að gæta að því, að þið er ekki búið þannig flutningatækjum, að það eigi þægilegt með það, og við megum þess vegna ekki gera allt of háar kröfur til þess um þá hluti. En hvernig er það með Eimskipafélagið? Mundi sitja vel á þeim sömu mönnum, sem telja, að þið standi ekki sómasamlega í stöðu sinni, að vera að narta í þann styrk, sem félagið á að fá. Ég veit ekki betur en að það sé búið að klípa 50 þús. kr. af þeim styrk, sem félagið átti að fá. Ég vil vona, að þeir, sem bera umhyggju fyrir fólksflutningunum, sýni þá mannlund að hækka styrkinn til Eimskipafélagsins upp í það, sem hann áður var. Hefi ég fullan hug á að koma með brtt. þess efnis við fjárlögin, og geta þá þessir menn sem, hversu mikil alvara þeim er með þessa hluti.
Ég held, að það sé ekki öllu fleira, sem er ástæða til að fara út í við þessa umr. Ég vil aðeins ennþá leggja áherzlu á, að það er ákaflega tortryggilegt, svo ég leyfi mér að viðhafa það orð, hversu mikill ákafi er lagður í að koma þessu máli í gegnum þingið. Ég held, að enginn maður geti með sanni sagt, að velferð landsins velti á nokkurn hátt á því, hvort þetta verður að lögum ári fyrr eða síðar. Þessi áhugi hlýtur því að eiga rætur sínar að rekja til einhvers annars en umhyggju fyrir ferðamönnum. það hlýtur að vera einhver nauðsyn, sem er nákomin flm. sjálfum, en ég held, að við verðum að leyfa okkur að láta þá nauðsyn sitja á hakanum fyrir heill almennings, og það hafa legið mörg mál fyrir þessu þingi, sem almenningsheill er meir bundin við en þetta mál.